Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Neytendur milli steins og sleggju: „Séu kröfur greiddar er verið að staðfesta réttmæti þeirra“

Kona sem lenti í því að vöktun Motus á umdeildum reikningi og uppflettingar fyrir­tækisins hjá Creditinfo, löskuðu lánshæfismat hennar töluvert, upplifði sig í erfiðri stöðu gagnvart innheimtu­fyrirtækinu. Báðir kostir í stöðunni voru slæmir í hennar huga; að borga reikning sem hún taldi ekki eiga rétt á sér, eða að fylgjast með reikningnum hækka og lánshæfis­mati lækka á meðan beðið væri eftir niður­stöðu kæru­nefndar.

Lítið um svör

Um er að ræða reikning sem kröfuhafi og konan deildu um. Konan taldi reikninginn ekki réttmætan, í það minnsta ekki í óbreyttri mynd. Hún fór með málið fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustu­kaupa eftir að hafa fengið reikninginn í heima­banka sinn og staðið í stappi við kröfu­hafann, en fékk síðan í fram­haldinu kröfu frá Motus. Hún hafði samband við Motus og lét vita af því að um umdeildan reikning væri að ræða og að málið væri komið til kæru­nefndarinnar. Samskipti við Motus gengu illa og lítið var um svör. Á meðan lækkaði lánshæfismat konunnar hjá Creditinfo, vegna vöktunar og uppflettinga Motus.

Hugleiddi að greiða með fyrirvara 

Konan, sem hefur reifað málið í samtali við blaðamann Mannlífs og lagt fram gögn máli sínu til stuðnings, segist hafa orðið ótta­slegin vegna lækkandi lánshæfis­mats og hækkandi upphæðar kröfunnar með álögðum dráttar­vöxtum og gjöldum. Hún hafi því velt því fyrir sér að greiða kröfuna til þess að losna við þau umtals­verðu hliðar­áhrif sem hún olli, með þeim fyrirvara að fá reikninginn endur­greiddan ef úrskurður yrði henni í vil.

Konan sendi eftir­farandi fyrir­spurn á Motus, á vefsíðu fyrir­tækisins:

„Ef ég greiði ykkur, getið þið þá ábyrgst að ég fái endur­greitt ásamt kostnaði ef krafan verður dæmd ógild? Þessum aðila er ekki treystandi til að endur­greiða þegar hann er nógu siðlaus að útbúa reikning sem á sér enga stoð í raun­veru­leikanum.“

Svar barst frá Motus í gegnum vefinn degi síðar. Þá hafði konan áður reynt að fá svör frá fyrir­tækinu í gegnum tölvu­pósta og koma mótmælum sínum á framfæri.

„Séu kröfur greiddar er verið að staðfesta réttmæti þeirra. Búið er að flytja mál yfir í löginnheimtu og þá átt þú að geta tekið til varnar,“ sagði í svarinu frá Motus.

Konan gat ekki hugsað sér að greiða reikninginn undir þessum formerkjum. Hún furðaði sig einnig á því að innan við mánuður hafi liðið frá því að fyrsta bréf frá Motus var dagsett, þar til krafan var komin yfir í löginnheimtu.

Þegar hún spurðist fyrir um það kom í ljós að kröfuhafi hafði einfald­lega óskað eftir því að krafan yrði flutt yfir í löginnheimtu, með tilheyrandi auknum kostnaði, og fyrir­tækið orðið við því. Þess ber að geta að lögfræði­kostnaður bætist við önnur gjöld þegar kröfur fara í löginnheimtu.

Fór í löginnheimtu á 20 dögum

Fyrsta bréf frá Motus var dagsett þann 5. febrúar síðastliðinn en konan fékk það ekki í hendurnar fyrr en um viku síðar. Samkvæmt þeim upplýsingum sem hún fékk var krafan send yfir í löginnheimtu þann 25. febrúar. Það liðu því einungis 20 dagar frá því að fyrsta bréf var dagsett, þar til krafan var komin í löginnheimtu.

Krafan var að lokum fryst þann 9. mars síðastliðinn, á meðan niður­stöðu er beðið frá Kærunefnd vöru- og þjónustu­kaupa. Þá hafði konan þó þegar lækkað úr flokki A niður í flokk C í lánshæfis­mati hjá Creditinfo. C-flokkur þykir afar slakur, hálf­gerður „rusl­flokkur“ og getur flokkunin haft umtals­verð áhrif á einstaklinga. Til að mynda ef viðkomandi ætlar sér að kaupa fasteign, endur­fjármagna eign, taka yfir fyrirtæki eða leggja af stað í annars konar viðskipti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá