Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Lánshæfismat hrapaði vegna sinnuleysis Motus: „Ef ágreiningur er uppi er látið vita af því“

Lánshæfismat hrapaði vegna sinnuleysis Motus: „Ef ágreiningur er uppi er látið vita af því“

Vöktun kröfu hjá Motus hafði þau áhrif að ein­stak­lingur hrap­aði niður flokka í láns­hæf­is­mati hjá Creditinfo. Um var að ræða umdeildan reikn­ing sem við­kom­andi hafði sent til Kæru­nefndar vöru- og þjón­ustu­kaupa. Við­kom­andi lét Motus vita en svör bár­ust seint og illa; á meðan hélt láns­hæf­is­mat áfram að lækka. Motus seg­ist ávallt láta Creditinfo vita af umdeildum kröfum og að ábyrgðin liggi þeim megin; það sé ákvörðun Creditinfo að láta vöktun umdeildra reikn­inga hafa áhrif á láns­hæf­is­mat. Creditinfo segja hins vegar að ef um sé að ræða umdeilda kröfu og inn­heimtu­fyr­ir­tæki láti vita af því að svo sé, séu áhrif vökt­unar ekki látin hafa áhrif á láns­hæf­is­mat.

Motus svaraði seint og illa

Mannlíf fjall­aði á dög­unum um við­skipta­hætti inn­heimtu­fyr­ir­tækja í sam­hengi við mál konu sem fékk senda kröfu frá Motus vegna reikn­ings sem hún var ekki sam­þykk og taldi ekki eiga rétt á sér. Konan fór með reikn­ing­inn fyrir Kæru­nefnd vöru- og þjón­ustu­kaupa og lét Motus sömu­leiðis vita af mót­mælum sínum og því að ekki væri sátt um reikn­ing­inn. Svör frá Motus bár­ust hins vegar seint og illa, en konan reyndi ítrekað að koma máli sínu á fram­færi.

Þegar henni bár­ust loks svör var henni tjáð að krafan væri komin í lög­inn­heimtu, með til­heyr­andi kostn­aði. Á meðan öllu þessu stóð var Motus með kon­una í vöktun, sem hafði slæm áhrif á láns­hæf­is­mat hennar hjá Creditinfo.

Að lokum féllst Motus á að frysta kröf­una. Þá var skað­inn þó skeður og konan búin að hrapa niður um tvo flokka í láns­hæf­is­mati Creditinfo; komin í hálf­gerðan rusl­flokk.

Motus bendir á ábyrgð Creditinfo

Mannlíf hafði sam­band við Motus og spurð­ist fyrir um verk­ferla þeirra og nefndi dæmi úr ofan­greindu máli. Svörin voru á þá leið að Motus léti Creditinfo ávallt vita ef um umdeilda reikn­inga væri að ræða. Fyr­ir­tækið þyrfti hins vegar að geta vaktað ein­stak­linga sem ekki greiddu kröfur, því öðru­vísi væri það ekki að þjón­usta sína við­skipta­vini, kröfu­haf­ana, sem skyldi.

Það væri hins vegar alfarið á ábyrgð Creditinfo að láta vöktun ein­stak­lings vegna umdeildrar kröfu hafa áhrif á láns­hæf­is­mat við­kom­andi. Lög­mað­ur­inn sem blaða­maður ræddi við sagði að sér þætti það eðli­legt að Creditinfo tæki til­lit til þessa. „Það að við séum með ein­hvern á vakt er eitt­hvað sem Creditinfo ákveður að skipti máli,“ sagði hann. „Ef ágrein­ingur er uppi, þá er látið vita af því til Creditinfo. Engu að síður láta þeir það hafa áhrif á láns­hæf­is­matið.“

„Af hverju eru þeir að láta það hafa áhrif á láns­hæf­is­matið ef tveir ein­stak­lingar eru að ríf­ast um það?“ sagði lög­mað­ur­inn meðal ann­ars í sam­tali við blaða­mann.

Creditinfo segjast taka út áhrif

Þegar blaða­maður Mannlífs sendi fyr­ir­spurn vegna sama máls á Creditinfo feng­ust þau svör að Creditinfo tæki sann­ar­lega út áhrif vökt­unar á láns­hæf­is­mat ein­stak­linga þegar um raun­veru­lega umdeildar kröfur væri að ræða. Í slíkum til­fellum væri það á ábyrgð Motus eða ann­arra inn­heimtu­fyr­ir­tækja að láta Creditinfo vita af slíkri stöðu.

Ljóst er að í máli kon­unnar, þar sem sann­ar­lega var um umdeildan reikn­ing að ræða og látið vita af því að málið væri komið til kæru­nefndar, hafði vökt­unin tölu­verð áhrif á láns­hæf­is­matið. Áhrifin voru því ekki tekin út en af svar­leysi Motus að dæma má ætla að Creditinfo hafi ekki verið látið vita af mál­inu. Mannlíf hefur undir höndum tölvu­pósta sem sýna sam­skiptin milli kon­unnar og Motus ann­ars vegar, og Creditinfo hins vegar.

Í svari Creditinfo við fyr­ir­spurnum blaða­manns segir eft­ir­far­andi:

„Kröfur eru flokk­aðar sem umdeildar ef hinn skráði hefur sann­an­lega komið and­mælum á kröfu á fram­færi við kröfu­hafa, greint honum frá ástæðu and­mæl­anna og krafan hefur ekki verið stað­fest með aðfar­ar­hæfum dómi eða ákvörðun sýslu­manns um að fulln­usta kröf­una sem kunn­gjörð hefur verið í opin­berri aug­lýs­ingu.

Í þessum til­vikum hefur vöktun inn­heimtu­að­ila engin áhrif á láns­hæf­is­mat ein­stak­linga. Ef Motus hefur þ.a.l. bent okkur á umdeilda kröfu í inn­heimtu hjá þeim hefur áhrif vökt­unar verið tekin út sem áhrifa­þáttur í láns­hæf­is­mati við­kom­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina