Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Gísli fjarlægður af vef Sjálfstæðisflokksins í skjóli nætur – Fall gulldrengs flokksins

Öll ummerki um Gísla Hauksson, annar stofnenda GAMMA, hafa verið fjarlægð af vef Sjálfstæðis­flokksins. Þetta virðist hafa gerst í skjóli nætur því hann var fyrir einungis mánuði skráður samvisku­samlega sem nefndar­maður í miðstjórn flokksins, sem ber ábyrgð á öllu innra starfi flokksins. Gísli var auk þess formaður fjármála­ráðs og því ljóst að ítök hans í flokknum voru umtals­verð.

Líkt og greint var frá í morgun þá hefur Gísli verið kærður til lög­regl­u fyr­ir meinta lífs­hætt­u­leg­a árás á fyrr­verandi sambýlis­konu. Umrætt atvik á að hafa átt sér stað í vor á þá sameiginlegu heimili þeirra. Gísli er sakaður um að hafa tekið konuna kyrkingar­taki og þrengt hættulega fast að hálsi hennar.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Sjálfstæðis­flokkurinn reynir að hreinsa sig af tengslum við áhrifamenna sem síðar eru sakaðir um gróf brot. Fyrir um tveimur árum þá var nafn barna­níðingsins Þorsteins Halldórs­sonar fjarlægt af vef flokksins. Hann var dæmdur í sjö ára fangelsi en Lands­réttur stytti dóminn síðasta vor í fimm og hálfs árs fangelsi.

Saman­borið við Gísla þá var Þorsteinn þó harla áhrifa­maður. Gísli er raunar svo nátengdur flokknum að það hafði áhrif á rekstur GAMMA. Stundin fjallaði um það í fyrra hvernig GAMMA hafi raunar verið líkari áróðurs­hugveitu en fyrirtæki undir stjórn Gísla. Allir helstu starfs­menn störfuðu fyrir flokkinn og til að mynda veitti fyrir­tækið Gísla Frey Valdórs­syni, sem var dæmdur fyrir Lekamálið, skjól þegar litla vinnu var að finna.

Gísli sat í stjórn SUS á árunum 2001 til 2003. Um áratugi síðar tók hann svo við verð­launum, svokölluð frelsis­verðlaun, frá ungliðum flokksins. Það var fyrir hönd hugveitu Hannesar Hólmsteins Gissuarsonar, sem kallast Rannsóknar­setur um nýsköpun og hagvöxt. Gísli var stoð Hannesar og stytta hvað það varðar.

Í stjórn þessarar hugveitu sáttu í fyrra, ásamt Gísla, þegar Stundin fjallaði um hana: Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis­flokksins í borgar­stjórn Reykja­víkur, Jónmundur Guðmarsson, fyrr­verandi framkvæmda­stjóri Sjálfstæðis­flokksins, fyrr­verandi starfs­maður GAMMA og núverandi starfs­maður Kviku, Jónas Sigur­geirsson, bóka­útgefandi og fyrr­verandi upplýsinga­fulltrúi Kaupþings fyrir efnahags­hrunið 2008, og Þórður Þórarinsson, framkvæmda­stjóri Sjálfstæðis­flokksins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur