Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Skoðanakönnun: Berð þú traust til Sólveigar Önnu sem formanns Eflingar?

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir.

Eldar hafa logað í kringum Sólveigu Önnu Jóns­dóttur formann stéttar­félagsins Eflingar og stjórn hennar undan­farið, eftir að öllu starfs­fólki á skrif­stofunni var sagt upp.

Sólveig Anna hætti sem formaður í október síðastliðnum vegna átaka innan Eflingar. Hún hefur sagt frá því að henni hafi ekki verið veittur vinnu­friður og að ákveðið starfs­fólk á skrif­stofunni hafi gert henni og stjórn hennar erfitt fyrir og reynt að bregða fyrir þau fæti í hverju skrefi. Starfs­fólk skrif­stofunnar hefur ekki sömu sögu að segja og hafa sumir starfs­menn lýst eineltis­tilburðum og einræðis­háttum af hálfu Sólveigar Önnu og stjórnarinnar.

Sólveig Anna fór aftur fram í kjöri til formanns nú í febrúar og hlaut 54 prósent af heildar­atkvæða­fjölda. Kjörsókn var einungis 15,09 prósent en það þykir í sjálfu sér ekki óvenjulegt í kosningum til stjórnar stéttar­félaga.

Á morgun, miðvikudaginn 27. apríl, verður haldinn félags­fundur að beiðni félags­manna Eflingar, vegna stöðunnar sem er uppi eftir að stjórn félagsins sagði upp öllu starfs­fólki skrif­stofunnar á dögunum. Samkvæmt heimildum Mannlífs er skrif­stofan nú svo gott sem óstarfhæf, sem bitnar með alvarlegum hætti á þjónustu við félags­menn. Fundurinn verður haldinn í Vals­heimilinu klukkan 18.

Mannlíf ræddi í gær við Gabríel Benjamin, kjaramála­fulltrúa hjá Eflingu og trúnaðar­mann VR á skrif­stofunni. Hann sagði félags­fundinn geta breytt stöðunni en ómögulegt væri að segja til um hver niður­staðan yrði.

„Þær ákvarðanir sem eru teknar á félags­fundi verður stjórnin að virða. Ef félags­fundur kemst að þeirri niður­stöðu að það eigi að draga hópuppsagnir til baka, þá ber stjórninni samkvæmt lögum að fylgja þeim fyrir­mælum. Ef það er lagt fram vantraust, þá situr stjórnin undir vantrausti. Öll fundar­sköp gera ráð fyrir því að stjórn ætti nú bara að segja af sér ef það gerist,“ sagði Gabríel Benjamin í samtali við Mannlíf.

Efling er annað stærsta stéttar­félag landsins og áhrif þess innan stéttar- og verkalýðs­félaga á landinu því mikil. Mannlíf vill gjarnan vita hvað lesendum finnst – hvort þeir beri traust til Sólveigar Önnu Jóns­dóttur sem formanns Eflingar.

Hér fyrir neðan má kjósa í skoðana­könnun um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá