Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Steingrímur missti móður sína og bróður: „Honum leið ekki vel“

Steingrímur Helgu Jóhannesson
Stein­grímur Helgu Jóhann­es­son

„Ég stoppaði í fjörum hér og þar og gjör­samlega gargaði á hafið og kallaði nafn hans,“ segir Stein­grímur Helgu Jóhannesson í viðtali við Reyni Traustason. Stein­grímur var á sjónum um árabil og í hittifyrra var hann í túr á skut­togaranum Tómasi Þorvalds­syni. Þetta átti að vera 40 daga túr á grálúðu. „Á 37. degi kom atvik upp,“ segir Stein­grímur, en í kaffi­tímanum snemma morguns sá hann sms frá föður sínum sem bað hann um að hringja í sig sem allra fyrst; þetta tengdist bróður Steingríms.

„Hann hafði átt erfitt og honum leið ekki vel,“ segir Stein­grímur um bróður sinn, „þannig að mig grunaði hvað væri á bak við þessi skilaboð. Við Hörður bróðir vorum bara tveir og við misstum móður okkar ungir. Þetta hefur allt verið erfitt fyrir okkur öll þessi ár; við vorum bara tveir og vorum nánir. Það tók mig 10 mínútur að taka upp tólið og hringja í pabba. Ég vissi nákvæmlega  hvað þetta var þegar hann svaraði. Hann sagði „Hörður, bróðir þinn, er dáinn.“ Þegar svona gerist og að vera úti á sjó; það bara hrundi allt einhvern veginn. Ég hrundi sjálfur. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Ég settist niður og fór að gráta.

Ég fór til stýri­mannsins og sagði hvað hefði gerst og spurði hvort ég gæti fengið eitthvað róandi. Svo fór ég niður í klefa og ég mætti ekkert niður á vakt eftir kaffi. Svo kom Bessi skip­stjóri og talaði við mig og sagði að hann ætlaði að skutla mér í land. Þarna vorum við úti á Hala. Hann skutlaði mér upp á grunn og þar var fullt af snurvoðar­bátum og það átti að henda mér í bát sem var fyrstur til að fylla og svo átti ég að fara með honum í land sem var gert. Ég kom í land í Bolungarvík,“ segir Stein­grímur sem leigði bíla­leigubíl og segist hafa ekið áleiðis suður með augun stútfull af tárum og reiði. „Ég vissi ekki almennilega hvað hafði gerst hjá honum,“ segir hann og á við látinn bróður sinn. Í þessari ferð suður stoppaði hann svo í fjörum hér og þar og gjör­samlega gargaði á hafið og kallaði nafn látins bróður síns.

Viðtalið við Steingrím í heild sinni má nálgast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá