Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Brynjar: „Þó ég sé íhaldsmaður er ég búinn að átta mig á að það var ekki allt betra í gamla daga“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson aðstoðar­maður Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra, segist hafa mætt í dular­gervi þegar hann sá leik Vals og ÍBV í úrslita­einvíginu um Íslands­meistara­titilinn í handbolta:

„Ég hef ekki beinlínis verið lukku­tröll fyrir félagið mitt, Val, í gegnum tíðina. Félagið hefur verið sigursælt í öllum greinum síðustu ár og einu leikirnir sem ekki hafa unnist er þegar ég mæti á völlinn. Sumir leikir hafa snúist upp í sigur eftir að ég hef verið sendur heim í hálfleik,“ ritar Brynjar í færslu á Facebook:

„Það kom því ekki til greina að ég mætti í þessa mikilvægu körfu­boltaleiki á móti Tinda­stóli. Margir félags­menn voru tilbúnir til að leggja í púkkið og greiða mér pening svo ég héldi mig fjarri Hlíðar­enda. Ég ákvað hins vegar að mæta á hand­bolta­leikinn í gær. Það var talið í lagi því að þetta var ekki odda­leikur og félagið hefði nokkra leiki upp á að hlaupa þótt hann tapaðist.“

Og Valur spilaði frábærlega þrátt fyrir nærveru grallarans Brynjars:

„Ástæðan kann að vera sú að ég mætti í dular­gervi og var óþekkjanlegur.“

Bætir við, svona í lokin:

„Það gleður mig óendanlega mikið að koma niður á Hlíðar­enda og sjá alla þessa glæsilegu iðkendur og stuðnings­menn og ekki síst fylgjast með þessum sjálfboða­liðum sem leggja mikið á sig fyrir félagið. Gleður mig líka að fylgjast með þessum frábæru stuðnings­mönnum mótherjanna. Þótt ég sé íhalds­maður er ég búinn að átta mig á að það var ekki allt betra í gamla daga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur