Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Svaraði árás Jóns með rappi hjá Gísla Marteini

Félags­mála­ráð­herr­ann úr Breið­holt­inu leynir á sér.

Ragnar ráðherra
Ragnar ráð­herra „Fyr­ir­bærið“ og „götu­strák­ur­inn“ Ragnar Þór Ing­ólfs­son svar­aði fyrir sig í Breið­holts­stíl. Mynd: Skjáskot / RÚV

Ragnar Þór Ing­ólfs­son fékk að svara fyrir að vera kall­aður götu­strákur á Alþingi þegar hann var gestur hjá Gísla Marteini Bald­urs­syni í þætti hans á RÚV í gær­kvöldi.

Fáir vita að Ragnar Þór, sem er upp­al­inn í Breið­holt­inu, var ekki sak­laus af því að hafa rappað sem ungur piltur. Sjálfur sagð­ist hann hafa litið út fyrir að vera 12 ára þegar hann var sextán og rapp­aði.

Fyrr­ver­andi ráð­herra og núver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Jón Gunn­ars­son, hafði sagt Ragnar vera eins og „ótíndur götu­strákur“ vegna frum­varps hans um að tengja líf­eyr­is­greiðslur sjálf­krafa við þróun launa­vísi­tölu. „Hvaða kom þetta fyr­ir­bæri hingað inn á þing?“ spurði hann, degi áður en hann baðst afsök­unar.

Sjálfur seg­ist Ragnar hafa verið týndur sem ungur maður, en nú sé hann ótíndur.

Gísli Marteinn, fæddur 1972, og Ragnar, fæddur 1974, gengu í sama skóla og full­yrðir Gísli að Ragnar hafi verið í fyrstu rapp­hljóm­sveit Breið­holts­ins.

Í rappat­rið­inu í Breið­holti 1989 fjall­aði Ragnar Þór um frægð­ina, sem hann hefur nú loks inn­siglað.

„Ég heiti Raggi er fínn og smár,“ rapp­aði Ragnar. „Ef ekki verðum frægir á þessu ári, þá detti allar dauðar lýs úr mínu hári.“

Í nýju rappi hjá Gísla Marteini ávarp­aði Ragnar ráð­herra „tvö­faldan lás“, sem vísar í gagn­rýni stjórn­ar­and­stöð­unnar um að líf­eyr­is­þegar muni hækka í tekjum bæði ef verð­lag hækkar og ef almenn laun hækka, sem þeir telja of dýrt fyrir rík­is­sjóð.

Þessu svar­aði Ragnar, ráð­herr­ann rapp­andi.

„Lífeyrir hann teng­ist, vísi­tölu í. Hvernig getur nokkur maður brjálast yfir því? Bætur hafa hækkað, varla bala­baun. Ég vil bara að allir fái mann­sæm­andi laun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Fólk

Fólk

Glæsi­hýsi til sölu þar sem sláttu­vélin þarf að kom­ast upp á þak

Húsið var reist árið 2002
Fólk

Hjátrúin um föstu­dag­inn þrett­ánda hefur raun­veru­leg áhrif

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði