Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Dagur svarar Hildi ekki: „Spurning hverjir eru kurteisir og taka símann og hverjir ekki“

Dagur B. Eggertsson og Hildur Björnsdóttir,
Dagur B. Egg­erts­son og Hildur Björns­dóttir,

Dagur B. Eggertsson, borgar­stjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, svaraði ekki símtali frá Hildi Björns­dóttir, oddvita Sjálfstæðis­flokksins, þegar hún hringdi í hann eftir að úrslit sveitar­stjórnar­kosninganna voru ljós. Hildur segir frá þessu í samtali við Vísi.

Sjálfstæðis­flokkurinn er stærsti flokkurinn í Reykjavík, þrátt fyrir að hafa tapað töluverðu fylgi frá síðustu kosningum. Flokkurinn fer úr átta borgar­fulltrúum niður í sex. Samfylking er næst stærst en tapaði sömuleiðis fylgi milli kosninga og fer úr sjö borgar­fulltrúum niður í fimm. Framsóknar­flokkurinn þykir í lykil­stöðu í borginni, enda vann flokkurinn kosninga­sigur með því að fara úr engum fulltrúum upp í fjóra, með 18,7 prósenta fylgi. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar­flokksins, er því í stórsókn og mun eflaust hafa mikið um það að segja hvernig næsta borgar­stjórn kemur til með að líta út.

Segir samhljóm með Sjálfstæðisflokki og Framsókn

Hildur upplýsir við Vísi að hún sé þegar búin að ræða við Einar og segir mikinn samhljóm með flokkunum tveimur. Oddvitarnir tveir hittust í gær og Hildur segir þau hafa átt flott samtal.

„Þetta eru stóru flokkarnir tveir sem boðuðu breytingar í kosningunum þannig að mér fannst skýrt ákall frá kjósendum á breytingar,“ segir Hildur.

Samkvæmt Vísi fundaði Einar bæði með Hildi og Degi í gær. Oddvitar Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar hafa gefið það út að flokkarnir hyggist halda saman í viðræðunum, að minnsta kosti fyrst um sinn.

Dagur svaraði ekki símanum

Hildur segist hafa rætt við oddvita allra flokka sem náðu kjöri í Reykjavík, utan tveggja. Hún segir þau Dag ekki enn hafa rætt saman en að henni þyki eðlilegt að þau geri það.

„Það er auðvitað ekkert endilega mikill málefna­legur samhljómur okkar á milli en mér finnst það eðlilegt í kjölfar kosninga að oddvitar tveggja stærstu flokkanna setjist alla vega niður saman og ræði hvernig þeir sjá hlutina fyrir sér,“ segir hún í samtali við Vísi.

Hún segist sjálf hafa tekið upp símann og hringt í oddvitana, sem sé vinnu­regla hennar sem oddviti stærsta flokksins.

„En svo er það bara spurning hverjir eru kurteisir og taka símann og hverjir ekki,“ segir Hildur og bætir við að Dagur hafi ekki svarað henni. „Ég hringi í alla.“

Hún vill ekki greina frá því hver hinn oddvitinn sé sem hafi ekki svarað í símann þegar hún tók upp tólið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur