Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ungur sonur Mundu sá þegar hún skar mann á háls – „Öll ötuð blóði og með áverka á höfði“

Þann 25.október árið 1974 fór hinn 28 ára Jóhannes í heimsókn til vinkonu sinnar, Mundu. Hún var búsett á Suður­landsbraut í Reykjavík ásamt unglings­syni sínum.

Jóhannes og Munda sátu ásamt 15 ára syni hennar og vini hans við drykkju. Unglingarnir ætluðu á ball og yfirgáfu húsið upp úr miðnætti. Þeir komust þó ekki inn á ballið og sneru aftur heim um klukkan tvö.

Þegar þeir bönkuðu á útidyrnar kom Munda til dyra. Hún hleypti drengjunum inn en hljóp svo inn í svefn­herbergi eftir að hafa gripið brauðhníf úr eldhúsinu. Sonur Mundu fór á eftir henni og kom þar að í þann mund sem hún skar Jóhannes á háls með hnífnum. Sonur hennar réðst á hana og náði að afvopna hana, kallaði hann svo á vin sinn og bað hann um að hlaupa í næsta hús og hringja á lögreglu. Það gekk hægt að finna síma og varð sonurinn órólegur á biðinni. Hann stökk þá út, braust inn í verslun og hringdi þar á lögreglu og sjúkrabíl. Þegar drengurinn sneri til baka var Jóhannes kominn inn í eldhús, mjög mátt­farinn. Verður sonur Mundu þá vitni að því þegar hún tekur upp skæri og vasahníf og stingur Jóhannes með hvoru tveggja. Sonur hennar réðst þá á hana, náði af henni vopnunum og barði hana nokkrum sinnum.

Þegar lögregla kom á vettvang tilkynntu dren­girnir að Munda væri inni í svefn­herbergi.

„Sat konan þar á dýnu, á nærbuxum einum fata. Var hún öll ötuð blóði og með áverka á höfði og sár á læri. Var annað augað alveg sokkið og hitt mjög blóðugt. Var þegar kölluð til sjúkrabifreið og konan flutt á slysa­deild Borgarspftalans,“ sagði í frétt Morgun­blaðsins eftir morðið.

Dren­girnir tveir voru fluttir í fanga­geymslu lögreglu en sleppt að loknum yfirheyrslum. Sonur Mundu viðurkenndi að hafa veitt móður sinni áverka í tilraun til að stöðva hana. Munda viðurkenndi að hafa orðið Jóhannesi að bana. Áverkar á líki hans voru þrír, langur skurður var á hálsi, þvert yfir barkann og aftur fyrir eyrun. Þá voru tvö stungusár á líkinu, annað fyrir neðan viðbein og hitt á vinstri öxl. Munda viðurkenndi einnig að hafa áður ráðist á Jóhannes og stungið hann í handlegg, hún hafði áður gerst tvisvar sek um að ráðast á fólk með eggvopni og var þá talin geðveik eftir rannsókn.

Munda var talin ósakhæf og dæmd í ótíma­bundna gæslu á stofnun. Hún gerðist þó sek um annað morð, þá á sambýlis­manni sínum, árið 1992.

Jóhannes var sjómaður og bjó hjá foreldrum sínum, hann var ókvæntur og barnlaus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur