Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

KR stelpur fá ekki greitt frá Sjálfstæðisflokknum: „Erum að reyna að fjárafla þessa ferð“

Hildur Björnsdóttir oddviti
Hildur Björns­dóttir odd­viti

„Þetta virðist vera bara sú hryggðar­mynd stjórn­mála­manna að skreyta sig með skraut­fjöðrum í kosninga­bar­áttu sem eru síðan allar foknar út í veður og vind að kosningum loknum.“ Þetta segir Stein­grímur Óli Einars­son, meðlimur í foreldra­félagi körfubolta­stelpnanna. Körfubolta­stelpur í KR hafa hvorki fengið bætur, né heyrt aftur frá Sjálfstæðis­flokknum þrátt fyrir loforð flokksins um að greiða þeim fyrir tap í veitinga­sölu á körfubolta­móti yngri flokka fyrr í mánuðinum.

Um fjáröflun fyrir stelpurnar var að ræða vegna æfinga­ferðar til Banda­ríkjanna í sumar. Það spillti hins vegar fyrir veitinga­sölunni að Sjálfstæðis­flokkurinn mætti á svæðið og grillaði frelsis­borgara fyrir áhorf­endur. Flokkurinn lofaði í kjölfarið að tjón stelpnanna vegna þessa yrði bætt.

„Við erum núna að hlaupa sveitt út um allan bæ að reyna að fjárafla þessa ferð,“ segir Stein­grímur og segist ekki hafa náð sambandi við fulltrúa Sjálfstæðis­flokksins eftir að loforð um bætur var gefið. Loforðið hafi gerst á bílaplaninun við KR heimilið eftir að frelsis­borgara­bíllinn hafi mætt á staðinn. „Það var bara eftir þetta sam­tal á bíla­planinu,“ segir hann í samtali við Frétta­blaðið.

Á­kveðið hafi verið að Sandra Hlíf O­cares, sem skipaði 8. sæti hjá Sjálf­stæðis­flokknum í borginni, yrði tengi­liður flokksins við for­eldra­fé­lagið. For­eldra­fé­lagið hefur, að sögn Stein­gríms, ekki heyrt í henni síðan flokkurinn grillaði ham­borgarana.

Í samtali við Frétta­blaðið sagði Sandra: „Ég hef ekki fengið neina fyrir­spurn. Við vorum að klára kosningar og þetta er eitt af málunum sem við þurfum að ganga frá,“ Þá sagði hún flokkinn hafa langan lista af málum sem þau hafa þurft að klára eftir kosningarnar og þetta sé eitt af þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur