Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Fellabakstur er gjaldþrota: „Kannski var maður eins og Don Kíkóti að berjast við vindmyllurnar“

Fellabakarí í hinum fagra Fellabæ.
Fella­bak­arí í hinum fagra Fellabæ. Mynd: Anna Kudryavtseva

Fella­bakstur var úrskurðaður gjald­þrota í viku­byrjun. Reksturinn er nú auglýstur til sölu.

Austur­frétt segir frá því að bakaríið í Fellabæ, Fella­bakstur sé farið á hausinn. Segir fyrrum eigandi þess að reksturinn hafi verið þungur um langt skeið og margt hafi verið reynt til að bæta úr síðustu vikur en því miður hafi þær tilraunir mistekist.

„Við skiluðum inn beiðni um gjaldþrot í lok síðustu viku. Héraðs­dómari tók sér ekki langað umhugsunar­frest heldur úrskurðaði félagið gjald­þrota á mánudag og skipaði skipta­stjóra. Við náðum að borga út laun um síðustu mánaðamót. Það var léttir því það leit ekki vel út á tímabili skömmu fyrir áramót,“ segir Þráinn Lárusson, eigandi Fella­baksturs við Austur­frétt.

Fella­bakstur var upphaf­lega stofnað árið 1968 en Þráinn keypti fyrir­tækið snemma árs 2021 en fyrir átti hann meðal annars veitinga­húsið Salt á Egils­stöðum og Hótel Vala­skjálf og Hall­ormsstað.

Ýmsir þættir þyngdu róðurinn

„Reksturinn á bakaríinu var þarna orðinn mjög þungur. Það var ekki fyrir að þáverandi eigendur legðu sig ekki fram en einhverra hluta vegna gekk þetta ekki. Á sama tíma var ég með eigin hugmynd um að opna litla bakarís­verslun, frekar en framleiða mest fyrir verslanir eins og bakaríið hafði gert. Mér fannst vera kallað eftir því úr samfélaginu. Þarna barst mér til eyrna að bakaríið stæði ekki vel og að það gæti orðið til góðs fyrir alla ef ég kæmi inn í það frekar en opna nýtt í beinni samkeppni. Við Björgvin (Kristjánsson, bakari og þáverandi eigandi Fella­baksturs) töluðum saman. Hann hafði áhuga á að selja það og varð úr þannig við tókum á okkur skuld­bindingar bakarísins,“ sagði Þráinn í samtali við Austur­frétt.

Þráinn tók fjótlega eftir kaupin til við að endurbæta kaffihús og bakarís­búðina í Fellabæ opnaði hann svo nýja búð á Egils­stöðum ásamt því að selja brauð til verslana. Segir hann að síðarnefndi þátturinn hafi ávalt verið erfiður bakaríinu:

„Þegar við komum inn er 90% fram­leiðslu bakarísins selt til endursölu, mest verslana. Við sáum ekki að það gengi upp fjárhags­lega en gáfum því tækifæri því við töldum brauðið okkar betra en það sem flutt er að og er mögulega orðið tveggja til þriggja daga gamalt. Við lögðum í tals­verðan kostnað við hönnun nýrra umbúða til að efla okkur í samkeppninni en það jók því miður ekki söluna eins og þurft hefði.“

Erfitt að keppa við verksmiðjubakaríin

Bendir Þráinn á að í raun séu aðeins tvö bakarí, Gæða­bakstur og Myllan sem framleiði næstum allt brauð sem pakkað sé í plasts­poka og selt í verslunum hér á landi. Segir hann þau bakarí afar tæknivædd og hagkvæm. Þá hafi ýmislegt fleira þróast á verri veg fyrir bakarí eins og Fella­bakstur.

„Ég held að við höfum verið orðið eina bakaríið á lands­byggðinni sem fram­leiddi brauð í plast­pokum í verslanir. Í byrjun árs fengum við gagnrýni þegar við hættum að keyra brauði niður á firði þannig að verslanirnar gátu ekki fyllt á með okkar brauði eftir áramótin. Því miður gengur það ekki upp að reka bakaríið hér þannig að það selji brauð þegar hin eru ekki til, eftir löng frí eða stórar helgar.

Við getum ekki keppt við stóru verksmiðju­bakaríin þar sem manns­höndin kemur nánast hvergi nærri heldur tölvur stjórna færi­böndunum og brauðin eru send inn á frysti. Á sama tíma eru launa­hækkanir og síðan hefur allt korn hækkað vegna stríðsins í Úkraínu.

Síðan getum við nefnt „bake-off“, óbakað brauð sem flutt er inn frosið en bakað hérlendis. Við vitum að það eru bakarí sem kaupa frosið deig erlendis frá og hita upp en það hefur aldrei verið gert í Fella­bakaríi. Við höfum nýtt okkur þetta á hótelunum, til dæmis með crossaint, enda er þetta að mörgu leyti hið fínasta brauð. Í crossaint þarf smjör og staðan er sú að á innfluttu smjöri eru háir tollar til að vernda innlenda mjólkur­framleiðslu á meðan hægt er að flytja inn crossaint án tolla. Þarna er vitlaust gefið.

Við reyndum líka í tvö ár að leita víða um heim eftir handverks­bakara, eða konditormeistara. Það gekk ekki og við erum ekki eina íslenska bakaríið í þeirri stöðu,“ segir Þráinn.

„Reyndum okkar besta“

Segir hann að undan­farin tvö ár hafi rekstur Fella­baksturs verið þungur. „Við fjár­festum mikið í breytingum en móður­félagið virtist alltaf þurfa að leggja til meira fjármagn. Þetta var í miðju Covid-þar sem ferða­þjónustu­fyrirtæki fóru illa. Um mitt síðasta ár ákváðum við að stöðva allt fjár­streymi frá móður­félaginu inn í bakaríið, það yrði að standa undir sér. Síðsumars ákváðum við að fara í ákveðnar breytingar á bakaríinu og á tímabili í haust fannst okkur vonar­glæta. Undir áramótin kom í ljós að þetta væri búið og við yrðum að játa okkur sigruð. Mér finnst mjög sárt að svona hafi farið og við höfum tapað miklum peningum á þessu. Við reyndum okkar besta og ég var ánægður með á hvaða leið við vorum. Ég segi ekki að bakkelsið okkar hafi verið fullkomið en við vildum gera vel og Björgvin er flinkur bakari. Ég hef prófað ýmislegt í mínum rekstri og stundum þegar gengur vel telur maður sig ósnertanlegan. Við töldum að með öðrum rekstri, sem notar mikið brauð, væri hægt að reka bakaríið. Við vorum með matvæla­framleiðslu sem við færðum inn í bakaríið til að samnýta ferðir og tæki. Þar vonuðum við að heimafólk keypti okkar vöru ef hún væri aðeins vandaðri frekar en það sem flutt væri að. Við hættum þessari fram­leiðslu nú í febrúar þegar við sáum að hún gengi ekki upp. Kannski var maður eins og Don Kíkóti að berjast við vind­myllurnar – að taka við deyjandi stétt til að reyna að blása í hana lífi.“

Eins og áður segir hefur skipta­stjóri auglýst rekstur Fella­baksturs í heild til sölu en Þráinn vonast til að það takist að reka bakarí í þéttbýlingu á Fljótsdals­héraði, til frambúðar. „Það er rétt að bakaríum víða um heim fækkar en það er líka að koma upp ný tegund bakaría, kannski líkari þessum handverks­bakaríum sem ég horfði til í byrjun. Fyrst og síðast þarf heimafólk að versla við bakaríið til að það gangi upp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp