Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Foreldrar metnir jafn hæfir í forsjármáli – „Meðal gesta var besti vinur, dæmdur barnaníðingur“

„Ég fæ forsjána, en það var í rauninni dómarinn sem sá í gegnum málið, ég var bara heppin,“ segir móðir í viðtali við Mannlíf, en hún vill ekki láta nafns síns getið.

Móðirin er ein þeirra sem hafa gagnrýnt vinnu­brögð matsmanna í forsjár­málum, en hún og börn hennar gengu í gegnum erfiða tíma eftir að matsmaður taldi móður og föður jafn hæf. Kom á daginn að áhyggjur móður reyndust réttlætanlegar þegar Barnahús staðfesti að börnin hefðu orðið fyrir kynferðis­broti af hálfu föður. Matsmaður hafi gert lítið úr áhyggjum móður meðan á mats­gerðinni stóð.

„Þetta byrjar með skilnaði og ég losa mig úr alveg hrikalegu ofbeldis­sambandi og þetta fer í forsjármál, þannig kemur mats­maðurinn að mínu máli,“ segir móðirin, en mats­gerðin, sem er orðin tíu ára gömul, hefur enn áhrif á líf hennar og barnanna.

Hún segist hafa lýst áhyggjum af kynferðis­brotum af hálfu föður, en að mats­maðurinn hafi með engu móti skoðað það.
„Börnin lýsa ákveðnum atvikum og ég segi frá því og það er algjör­lega skautað fram hjá því. Hann í rauninni dustar því út af borðinu með engum rökum.“
Síðar hafi börnin farið í Barnahús þar sem ofbeldið var staðfest, en það var mikið áfall fyrir móður. „Það er staðfest í Barnahúsi af sálfræðingi, að hann hafi brotið kynferðis­lega á börnunum og börnin hafa í dag algjör­lega rofið tengsl við hann út af ofbeldinu,“ segir hún og bendir á að mikið ósamræmi sé milli mats­gerðarinnar og því sem mats­maðurinn segist standa fyrir. Móðirin segist hafa upplifað mörg áföll í kringum þennan tíma, en börnin voru send til föðurins í mánaðar­dvöl þrátt fyrir að hafa greint frá því að þeim liði ekki vel í hans umsjá. Meðan á dvölinni stóð gat móðirin ekki haft neitt samband við börnin, en faðirinn tók þær einnig úr leikskóla á þessum tíma. Þegar dvölinni hjá föðurnum var að ljúka hafði mats­maðurinn samband við móðurina.

„Daginn sem ég fæ börnin til baka eftir fjórar vikur þá segist hann (mats­maðurinn) vilja sjá mig með börnunum þann dag, og var rosalega ýtinn með það. Hann vildi koma inn á heimili mitt og sjá mig með börnunum þann dag sem ég fékk þau til baka eftir þennan tíma. Maður hafði nátt­úrlega ekki hugmynd um í hvaða standi börnin voru, þetta hefði getað verið alls konar.“ Bætir hún við að mats­maðurinn hafi setið klukku­tímum saman og hún hafi hugsað með sér hvort hann ætlaði aldrei að fara.
„Svo segir í mats­gerðinni að börnunum líði vel hjá móður. Hefðu börnin verið í ójafnvægi þennan dag, sem þau komu til baka eftir fjórar vikur þá hefði hann líklega sagt að börnunum liði ekki vel hjá móður, skilurðu hvað þetta er „twistað“?“

Í það skipti sem mats­maðurinn fylgdist með börnum í umsjá föður voru aðstæðurnar gjör­ólíkar og telur móðirin vanta mikið upp á að jafnræðis hafi verið gætt.

„Ég hélt að þetta ætti að vera jafn leikur en það var ekki. Þegar hann fylgdist með börnunum hjá föður þeirra, þá fór hann í smá tíma í eitthvert garðpartí hjá föðurnum, utandyra, þar sem var fjöldi fólks og líka börn,“ segir hún og bætir við að meðal gesta hafi verið besti vinur föðurins, en sá er dæmdur barna­níðingur. Hún hafi einnig greint mats­manninum frá honum. Móðirin hafði ekki getað gagnrýnt vinnu­brögðin fyrr en hún fékk mats­gerðina í hendurnar, en hafði samband við mats­manninn þar sem að henni þótti undarlegt að ekkert hefði verið rætt við foreldra hennar.

„Hann var í rauninni að klára mats­gerðina þegar ég hringdi í hann og bað hann um að þau fengju að segja sína hlið líka.“ Frásögn kærustu föður fékk mikið pláss í mats­gerðinni, en einnig var rætt við foreldra hans. Þá segir móðirin að hún hafi hreinlega verið heppin að dómarinn hafi séð í gegnum kröfur föðurins, mats­gerðin hafi verið sláandi.
„Hann mat okkur í rauninni nánast jafn hæf þrátt fyrir þessa ofboðs­legu ofbeldis­sögu.“
Aðspurð hvað matsmaður hafi sagt við lýsingu móður á kynferðis­broti svarar hún:

„Hann segir þá að í heima­landi hans(föðurs) sé þetta eðlilegt.“

Faðir barnanna hafi einnig sent börnin í gistingu til vinar síns sem var dæmdur barna­níðingur, án vitundar móður. Það hafi verið gríðarlegt áfall að komast að því, en hún bætir því við að frásögnin varpi aðeins ljósi á lítið brot af því sem fór fram. „Ég er bara að segja þér brot af því sem fram fór.“

Mannlíf hefur síðustu vikur fjallað um forsjármál og verklag matsmanna í slíkum málum, en sumar aðferðir sem þeir nota við matsgerð eru afar umdeildar. Þá sagði reynslu­mikill sálfræðingur í viðtali við Mannlíf í síðustu viku að málið væri svartur blettur á sálfræðingum. Rétt er að taka fram að matsmaður í málinu hér að ofan er sá sami og í máli Bryndísar Ásmunds­dóttur sem hefur mikið verið fjallað um í fjöl­miðlum að undan­förnu. Mannlíf mun halda áfram að kafa ofan í verklag og reglur sem snúa að mats­mönnum í forsjár­málum á komandi misserum. Slíkt hefur verið reynt áður, en samkvæmt heimildum Mannlífs hefur það fallið í grýttan jarðveg víða innan stéttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá