Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

„Kom til Íslands til að vinna og öðlast betra líf“- Lést af sárum sínum fimm dögum síðar

Tveir karlmenn voru stungnir af karlmanni á þrítugsaldri á Austur­velli um miðja nótt í kjölfar slagsmála. Annar maðurinn lést nokkrum dögum síðar á sjúkra­húsi og var gerandinn Íslend­ingur ákærður fyrir að bana hinum albanska Klevis Sula (1997–2017) á Austur­velli í byrjun desember 2017. Samkvæmt ákærunni stakk hann Sula fjórum sinnum.

Gerandinn var jafnframt ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa við sama tilefni stungið annan albanskan mann þrisvar þannig að sá hlaut meðal annars slagæða­blæðingu. Gerandinn var dæmdur í 17 ára fangelsi.

Var ógnandi í sinn garð

Íslend­ingurinn sem ákærður var fyrir að hafa orðið Albananum Klevis Sula að bana með hnífs­stungu á Austur­velli í desember í fyrra, var fundinn sekur um manndráp og manndrápstilraun og dæmdur í 17 ára fangelsi í Héraðs­dómi Reykja­víkur.

Gerandinn neitaði sök þegar málið var þingfest fyrir héraðs­dómi í mars 2017. Þá var hann einnig ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa stungið samlanda Sula og Elio Hasani, þrisvar sinnum sömu nótt, aðfarar­nótt sunnu­dagsins 3. desember. Gerandinn neitaði einnig sök í þeim ákærulið.

Þá bar hann fyrir sig minnis­leysi við aðal­meðferð málsins í júní sama ár. Þar sagði hann m.a. að mennirnir tveir hefðu átt frumkvæði að átökum þeirra á milli, verið ógnandi í sinn garð og veitt sér höfuðhögg. Eftir höfuð­höggið sagðist gerandinn ekki muna neitt um hvað hefði gerst á Austur­velli umrædda nótt. Saksóknari fór fram á minnst átján ára fangelsisdóm yfir gerandanum.

Banvænn áverki á hjartanu

Foreldrar Sula kröfðu gerandann um rúmlega 20 milljónir króna í miska­bætur vegna sonarmissins. Við dóms­uppkvaðningu í héraðs­dómi var gerandanum gert að greiða móður Sula rúmar fjórar milljónir króna í miska­bætur og föður hans rúmlega þrjár milljónir. Þá ber gerandanum að greiða Hasani, sem krafðist 3,2 milljóna í miska­bætur, 1,5 milljónir.

Maðurinn er einnig ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa stungið samlanda Sula þrisvar sinnum sömu nótt, það er aðfara­nótt sunnu­dagsins 3. desember. Neitaði hann einnig sök varðandi þann ákærulið.

Í ákæru málsins segir að maðurinn hafi stungið Sula fjórum sinnum þegar hann réðst á hann á Austur­velli umrædda nótt. Sula lést af sárum sínum fimm dögum síðar en í ákæru segir að áverkinn á hjartanu hafi verið „banvænn og höfðu önnur skurðsár áhrif á andlát hans.“

Samlandi Sula hlaut skurðsár á bakinu og utan­verðri öxl, sömuleiðis á vinstri upphandlegg og á kálfa. Sú stunga náði ofan í slagæð og olli slagæða­blæðingu.

Aðeins tvítugur þegar hann lést

Móðir Sula fer fram á tíu milljónir króna í miska­bætur auk tæplega 900 þúsund króna vegna útlagðs kostnaðar vegna útfarar sonar hennar. Faðir Sula gerir sömuleiðis kröfu um tíu milljónir króna í miska­bætur. Maðurinn sem var stunginn en lifði árásina af krafðist 3,2 milljóna króna í bætur. Ákærði í málinu hafnaði bóta­kröfunum.

Móðir Klevis Sula, Albanans sem lést af sárum sínum eftir hnífsstungu­árás í miðbænum segir að hann hafi ætlað að hjálpa meintum árásar­manni þegar hann réðst á hann að tilefnis­lausu. Gríðarleg sorg hefur heltekið fjöl­skylduna en þau lýsa Klevis sem ljúfum manni sem talaði um hvað Ísland væri öruggur og góður staður að búa á.

Klevis Sula var fæddur þann 31. mars árið 1997 og var því aðeins tvítugur þegar hann lést af sárum sínum hér á landi.

Gríðarleg sorg hefur heltekið fjöl­skyldu Klevis en móðir hans og bróðir, komu til landsins um leið og þau heyrðu af því sem gerðist og voru með Klevis síðustu daga lífs hans.

„Klevis var ljúfur og góður. Hann kom til Íslands til að vinna og öðlast betra líf,“ segir Enea Sula, bróðir Klevis.

„Hann var yndis­legur, Hann vildi hjálpa öllum. Vinum sínum og fjöl­skyldu. Hann talaði mjög vel um Íslendinga og kunni vel að meta fólkið hérna. Hann var mjög hamingju­samur að vera hérna,“ segir Natasha Sula, móðir Klevis.

Við héldum að Ísland væri öruggt land

Við rétt­ar­höldin

Vitnis­burður vinar Klevis, sem einnig var stunginn umrætt kvöld, er á þá leið að Klevis hafi tekið eftir manni sem var grátandi. Hann hafi boðið honum aðstoð en þá verið stunginn með hnífi. Lögregla hefur sagt að stutt samskipti hafi verið milli mannanna áður en árásin átti sér stað.

„Hann þekkti hann ekkert samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum. Hann vildi hjálpa honum því hann grét en maðurinn réðst bara á hann,“ segir Natasha.

Klevis hafði aðeins verið hér í nokkra mánuði áður en hann lést en hann hafði áður dvalið hér á landi í einhverja mánuði. Hans draumur var að búa á Íslandi og talaði hann afar vel um landið að sögn Natasha.

„Við héldum að Ísland væri mjög öruggt land og að svona myndi ekki gerast hérna. Klevis hafði líka alltaf sagt að það gæti ekkert slæmt gerst á Íslandi því hér væri fólk svo gott,“ segir Natasha.

Vinir Klevis hófu fjár­söfnun til styrktar fjöl­skyldunni á dögunum til að standa straum af útfarar­kostnaði og kostnaði við að láta flytja líkið til Albaníu. Söfnuninni er nú lokið og segja þau hana hafa gengið vel og eru afar þakklát.

Heimildir:

Freyr Gígja Gunnarsson. 21. júní. 2018. … dæmdur í 17 ára fangelsi. RÚV.

Hjálmar Friðriksson. 15. desember 2017. … er grunaður um að hafa stungið Klevis í hjartað: „Þakklát íslensku þjóðinni fyrir hjálpina.“  DV.

Kristín Ólafs­dóttir. 21. júní 2018. … dæmdur í 17 ára fangelsi. Vísir

Innlent 21.júní. 2018. Dagur í 17 ára fangelsi fyrir manndráp. MBL.

Nadine Guðrún Yaghi 10. desember 2017„Klevis vildi hjálpa honum því hann grét en maðurinn réðst bara á hann.“ Vísir.

Sunna Kristín Hilmars­dóttir. 16. mars 2018. Neitar sök í manndráps­máli. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur