Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ingeborg er vel menntaður grasalæknir: „Gleymum að við erum sjálf náttúran“

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium er engin önnur en grasa­læknirinn Ingeborg Andersen. Ingeborg lærði vest­rænar grasa­lækn­ing­ar við Uni­versity of West­minster í London.

Ingeborg í nátt­úr­unni


Vildi að hún yrði tekin alvarlega

Hún segist hafa valið skólann því hún hafi viljað að hún væri tekin alvarlega. Í því samhengi nefnir hún að hægt sé að læra grasa­lækningar á stuttum helgar­námskeiðum.

„Þetta var eiginlega eina alvöru námið sem ég gat fundið því mér langaði að vera tekin alvarlega. Þú getur kallað þig graasalækni ef þú hefur farið á nokkur helgar­námskeið.“

Gunnar spurði Ingeborg hver munurinn væri á vestrænum og austrænum grasa­lækningum. Ingiborg sagði að jurta­úrvalið sé og hafi alltaf verið misjafnt hvað það varðar en að viss samruni sé að eiga sér stað, sífelt meira og meira. Heimurinn sé að minnka og vestrænir grasa­læknar farnir að vinna meira með jurtir úr austrinu. 

Ingeborg kemur úr fjöl­skyldu af læknum, afi hennar og pabbi eru læknar og mamma hennar hjúkrunar­fræðingur. Það hafi alltaf legið fyrir að hún skuli einnig verða læknir en þegar nær dró fann hún að henni fannst námið ekki bara þurrt heldur líka erfitt yfir­ferðar sökum viss áhuga­leysis um námsefnið. 

Máttur grasalækninga

Eftir að Ingeborg hafði glímt við krón­íska sýk­ingu í um hálft ár fann hún mátt grasa­lækninganna en hún var orðin ónæm fyr­ir öll­um sýkla­lyfj­um sem hún prófaði og það var svo í raun pabbi hennar, læknirinn sem ráðlagði henni að fara til grasa­læknis til að finna bót meina sinna. 

Ingeborg sagði í viðtalinu að grasa­lækningar hafi hér áður fyrr talist sem almenn viska tengd heilsu og líðan, fólk hafi verið í nánari tengingum við náttúruna og máttinn sem í henni býr. Hún vill meina að þessi tenging og vitneskja sé smátt og smátt að tapast.

„Við erum að reyna að útrýma nátt­úrunni úr umhverfinu okkar og gleymum að við erum sjálf náttúran. Mér finnst það alveg vera gefið að ef þú ætlar að lifa án nátt­úrunnar þá getur þú ekki lifað heil­brigðu lífi. Við erum ekki að gefa líkamanum rými til að lækna sig sjálfan ef við erum í streitu­ástandi því það er ekki ástand þar sem líkaminn er að setja sig í forgang við að laga sig.“

Íslensk náttúra nóg

Hún segir að í íslenskri náttúru sé að finna allar þær plöntur og öll þau grös sem maðurinn þarf til almennra heilsu­bóta, það eina sem þarf er að fá sér göngutúr og ná í það. Segist hún alltaf meira og meira verða vör við vissa vitundar­vakningu hvað varðar grasa­lækningar. „Við höfum notað jurtir frá því að við vorum apar og fyrir það örugglega og ef þú fylgist með dýrunum þá vita þau nákvæmlega hvaða jurtir þau þurfa þegar þau eru veik og mikið sem við höfum lært frá þeim.”

Hægt er að horfa á allt viðtalið hér fyrir neðan og mæli Mannlíf eindregið með því enda mjög áhugavert og skemmtilegt viðtal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt