Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Logi: „Enginn var skilinn út undan – Eftir á að hyggja myndi ég ekki vilja þetta fyrir börnin mín“

Logi Einarsson. Myndin tengist ekki fréttinni. Mynd/skjáskot
Logi Ein­ars­son. Myndin teng­ist ekki frétt­inni. Mynd/skjá­skot

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar var gestur Reynis í Mann­lífinu þar sem hann ræddi um árin sín fyrir Norðan, skemmtilegan tíma í hljóm­sveitinni Skrið­jöklum og Samfylkinguna.

Logi fæddist og ólst upp á Akureyri á 6. áratugnum. Árin liðu fyrir norðan og út um allan heim og strákurinn stækkaði og þroskaðist. Og hann var meðlimur hljóm­sveitarinnar Skrið­jökla um tíma.

„Við vorum ærsla­fullur hópur af ungum piltum. Þetta voru reyndar tveir hópar. Þetta voru tveir áberandi hópar sem voru báðir að fást við músík og elduðu svolítið grátt silfur saman og var svona frekar í nöp við hverja aðra; þessir hópar sem runnu svo saman í Skrið­jökla.

Síðan held ég að það hafi verið einhvers staðar niðri í bæ í einhverju skemmtihúsi sem við hugsuðum að þetta væri óþarfi og við ættum að verða vinir og þá runnu saman tvær fimm til sex manna klíkur og við bjuggum til Skrið­jökla.

Fyrst og fremst held ég nú að það hafi verið gert til þess að komast ókeypis inn í Atlavík og svo varð ekkert aftur snúið. Þetta varð furðulega vinsælt miðað við hvað þetta var nú efnisrýrt. En við höfðum gaman og í nokkur ár var þetta til og við ferðuðumst um landið og okkur gafst tækifæri til þess að vera í samvistum. Þetta var meira eins og félags­heimili.

Við vorum orðnir 10 og það var ekki hægt að koma öllum á hljóðfæri og þá var farið í að velja þá sem voru skástir á hljóðfæri og við hinir fengum bara annað hlutverk.

Ég var látinn dansa og einn annar, einn var í miða­sölunni og einn keyrði rútuna. Það var enginn skilinn út undan. Eigum við ekki að segja að þetta hafi verið jafnaðar­mennskan í hnotskurn,“ segir formaðurinn sem segist vera slarkfær á gítar.

Logi flutti svo til Noregs tveimur eða þremur árum eftir stofnun Skrið­jökla þar sem hann lærði arkitektúr. „Það var samt þannig að þegar ég kom í jólafrí eða sumarfrí þá var alltaf kallað í mann „komdu með“.“

Fylgdi Skrið­jöklum mikið sukk?

„Jú, óþarflega mikið, sennilega. En eins og er hjá ungu fólki oft, en eftir á að hyggja þá óska ég þess ekki að börnin mín geri þetta. En flestir höfum við þroskast frá því. Við vorum margir í íþróttum líka samhliða þessu og það varð einhver hemill á þessu. Auðvitað ekki sá standard sem gerður er á íþrótta­menn í dag, enda urðum við ekkert sérstak­lega góðir, en það varð þó til þess að við urðum að passa okkur til að verða leikfærir. “

Hér er hægt að lesa viðtalið heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá