Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sigríður Björk harmar atvikin en segir misskilning í umfjöllun: „Erum að leita að hættulegum manni“

Sigríður Björk Guðjónsdóttir
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir

„Það sem er í þessu tilviki, er að lögregla er aldrei að velja þann sem eru höfð afskipti af,“ sagði ríkis­lögreglu­stjóri á opnum fundi allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis í morgun. Tilefni fundarins var umfjöllun um fræðslu og menntun lögreglu­manna um fjöl­menningu og fordóma. Fundurinn var haldinn í kjölfar atvika í apríl síðastliðnum, þegar lögregla hafði tvívegis afskipti af 16 ára svörtum dreng þegar leitað var að stroku­fanganum Gabríel Duane Boama.

Þurfa að fylgja ábendingum eftir

Þingmaður Pírata, Arndís Anna Kristínar­dóttir Gunnars­dóttir óskaði eftir fundinum vegna áhyggja sem höfðu verið viðraðar í samfélaginu um að hér á landi væri kynþátta­miðuð löggæsla (e. racial profiling).

„Við erum að fylgja eftir ábendingum frá almenningi,“ sagði Sigríður Björk Guðjóns­dóttir ríkis­lögreglu­stjóri, þegar hún sat fyrir svörum í upphafi fundarins. „Þannig að í þessu tilviki á ekki við að það sé kynþátta­miðuð löggæsla. Þetta er einfald­lega þannig að við erum að leita að hættu­legum manni, það koma ábendingar og við þurfum að fylgja þeim eftir. Við getum ekki valið úr að fylgja þeim ekki eftir vegna eðlis verk­efnisins.“

Segir misskilnings hafa gætt í umfjöllun

Sigríður Björk tók það fram að hún harmi það mjög að þessi ungi drengur skyldi verða fyrir ítrekuðu áreiti. Hún segir þó misskilnings hafa gætt í fjölmiðla­umfjöllun um málið. Það hafi vandlega verið farið yfir öll myndbönd af atvikunum.

„Þetta var ekki þannig að sérsveitar­menn hafi ruðst inn með vopn á lofti. Þeir áttu aldrei samskipti við drenginn, ræddu aldrei við hann,“ sagði Sigríður Björk og bætti því við að lögreglu­menn væru þjálfaðir í því að bera kennsl á fólk. Þeir hafi því séð það um leið að drengurinn var ekki sá sem leitað var að. „Þeir gengu í fyrra tilvikinu út í enda á strætis­vagni, sneru við og fóru út. Þetta er engu að síður mjög „trámatískt“ fyrir drenginn. Í seinna tilvikinu gerðist nákvæmlega það sama. Það kemur lögreglu­maður inn, byrjar að spjalla við móðurina – það er samtal sem er til á upptöku.“

Lögreglu beri að hlusta á samfélagið

Sigríður Björk sagði að þrátt fyrir að ekki væri um kynþátta­miðaða löggæslu að ræða væru mörg atriði í þessu umhugsunar­verð. Hún lagði áherslu á að lögreglan væri þjónustu­stofnun og að sem slík væri mikilvægt að hún hlustaði á samfélagið sem hún þjónar.

Sigríður Björk velti því upp hvort lögregla hefði hugsanlega átt að setja fram varnaðarorð þegar auglýst var eftir Gabríel Duane. Hún sagði embættið hafa rætt við foreldra drengsins sem ranglega var bent á. Hún segir lögreglu betur í stakk búna til að meta tilfelli af þessum toga eftir atburðina. „Það er raun­verulega óþolandi að það skuli vera saklaust ungmenni sem þarna á í hlut, sem verður fyrir þessari „trámatísku“ reynslu.“

Sigríður Björk fór yfir þá vinnu sem farið hefur fram innan lögreglunnar síðustu ár í tengslum við fordóma, til að mynda bann við ákveðnum merkja­burði lögreglu­manna, sem og þá vinnu sem er framundan. Hún fór yfir þá fræðslu sem lögreglu­menn hafa fengið undan­farið um fordóma og haturs­glæpi, meðal annarra atriða.

Sigríður Björk sagði mikilvægt að efla innra eftirlit með lögreglu um allt land. Hún mælti með samfélags­legu átaki til þess að taka á hversdags­legum fordómum og lagði til að þingið tæki af skarið í slíku átaki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur