Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Brynjar braut gegn stúlkum undir 15 ára: „Umfangsmesta kynferðisbrotamál sögunnar“

Dómur féll í dag í Héraðs­dómi Reykjaness í máli Brynjars Joensen Creed sem ákærður var fyrir marg­vísleg kynferðis­brot gegn fimm stúlkum undir 15 ára aldri.

Samkvæmt  upplýsingum frá héraðs­saksóknara var Brynjar sakfelldur fyrir suma ákæruliði en sýknaður í öðrum. Ákæru­liðir voru samtals 17.

Brynjar var dæmdur í sex ára fangelsi

Hann var jafnframt úrskurðaður í mánaðar­langt gæslu­varðhald en rannsókn stendur yfir á fjölmörgum meintum kynferðis­brotum hans. Ætluð brot Brynjars eru gífurlega umfangs­mikil og sagði héraðs­saksóknari að: „þetta væri eitt umfangs­mesta kynferðis­brotamál sögunnar.“

Héraðs­dómur Reykjaness dæmdi í dag Brynjars Joensen Creed fjölskyldu­föður á sextugsaldri í sex ára fangelsi fyrir kynferðis­brot gegn 5 stúlkum á grunn­skólaaldri. Maðurinn hefur setið í gæslu­varðhaldi síðan í nóvember og var hann ekki viðstaddur dóms­uppkvaðninguna. Fleiri kynferðis­brotamál tengd manninum eru til rann­sóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum.

Var handtekinn á vinnustað sínum

Elsta brot Brynjars er frá árinu 2018 en flest brotin voru framin á síðasta ári. Brynjar var hand­tekinn á vinnustað sínum, stóru heild­sölu­fyrirtæki, þann 8. nóvember, og hefur síðan þá setið í gæslu­varðhaldi í fangelsinu á Hólms­heiði. Hjá fyrir­tækinu starfaði Brynjar við viðhald tækja og þjónustu við fyrirtæki, stofnanir og skóla. Lögreglan lagði hald á vinnubíl hans og var meðal annars notast við upplýsingar úr ökurita við rannsókn málsins.

„Hann var hæglátur, pínu undarlegur. Utan við sig og erfitt að átta sig á honum. Lágmæltur,“ segir vinnu­félagi Brynjars hjá fyrir­tækinu, sem ræddi við DV á dögunum.

„Brynjar var augljós­lega undir einhvers konar álagi. Hann klessti vinnubíl illa og var stundum að bakka á eða keyra utan í. Eins og hann væri ekki með hugann við umhverfið. Núna veit maður hvað hann var að hugsa um. Ógeðslegt,“ segir vinnu­félaginn ennfremur.

Þess má geta að Brynjar var trúnaðar­maður fyrir sinn vinnustað hjá VR. Hann hefur tekið þátt í almennings­hlaupum og hlaupið til styrktar góðum málefnum.

Sem fyrr segir bíða Brynjars fleiri ákærur þar sem meint brot hans af sama tagi og hann var sakfelldur fyrir í dag eru í rannsókn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum.

Dómurinn hefur ekki verið birtur og óljóst hvenær það verður

Maðurinn var ákærður fyrir fjölda grófra kynferðis­brota gegn fimm ungum stúlkum. Þær voru allar á grunn­skólaaldri þegar maðurinn var sagður hafa brotið gegn þeim.

Elsta málið er nærri fjögurra ára gamalt en flest brotin voru síðan í fyrra. Stúlkurnar fimm kröfðu manninn um samtals 17,5 milljónir í miska­bætur.

Í ákærunni var maðurinn meðal annars ákærður fyrir kynferðis­lega áreitni gegn barni, kynferðis­brot gegn barni og nauðgun auk fleiri vægari brota. Í ákærunni voru sumar stúlkurnar sagðar hafa sent honum kynferðislegt myndefni. Maðurinn var einnig sagður hafa sent þeim slíkt myndefni á samskipta­forritinu Snapchat.

Grunur að hann hafi níðst á fleiri börnum

Ákæran var á sex blaðsíðum sem er sjaldgæft í kynferðis­brotamálum og ákæru­liðirnir 17.

Hann var sagður hafa sent einni stúlkunni kynlífs­hjálpartæki, undirföt, nikótín­púða, rafrettur, áfyllingar í rafrettur og áfengi gegn því að hún sendi honum myndefni gegnum samskipta­forritið Snapchat.

Fram kom í fréttum RÚV í síðustu viku að maðurinn væri til rann­sóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum vegna gruns um að hafa níðst á fleiri börnum.

Fram kom í fréttinni að málið væri raunar svo umfangs­mikið að fjölga þurfti stöðu­gildum í Barnahúsi. Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldu­stofu, stað­festir það. Mikið álag hafi verið í Barnahúsi í heims­faraldrinum og að heimild hafi fengist til að ráða í eitt og hálft stöðu­gildi, meðal annars vegna þessa máls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur