Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fulltrúarnir hafi færst frá hægri til vinstri – Nýr meirihluti þarf að endurspegla þessa sveiflu

Sósíalista­flokkurinn í Reykjavík segir tíma kominn á félags­hyggju­stjórn í borginni. Þetta kemur fram í yfir­lýsingu þar sem segir að hægri flokkar hafi tapað í kosningunum. Hægri flokkar hafi tapað fjórum fulltrúum á meðan Framsókn græddi fjóra og megi úr því lesa að fulltrúarnir hafi færst frá hægri til vinstri. Nýr meirihluti þurfi að endur­spegla þessa sveiflu – þ.e. vera frá miðjunni til vinstri, í meirihluta um félags­hyggju og mannúð.

Í yfir­lýsingu segir að meirihlutinn í borginni hafi fallið í kosningunum og sé því mikilvægt að nýr meirihluti verði byggður á nýjum grunni en ekki á rústum meirihlutans sem féll.

„Meirihlutinn féll í kosningunum á laugar­daginn. Eins og reyndar í síðustu og þar síðustu kosningum. Það er því mikilvægt að næsti meirihluti verði á nýjum grunni en ekki enn ein fram­lengingin á föllnum meirihluta. Nýr meirihluti ætti að leggja áherslu á félags­lega innviði borgarinnar, velferð og mannúð. Augljóst er að uppbygging félags­legs húsnæðis yrði fyrsta verkefni nýs meirihluta.  Kosninga­sigur Fram­sóknar opnar möguleika á meirihluta sem byggir á sama grunni og Reykja­víkur­listinn á sínum tíma, félags­hyggju­stjórn frá miðju til vinstri. Á fyrstu árum sínum vann R-listinn stórafrek í leik­skólamálum. Nú vantar sambærilegt átak í húsnæðis­málum. Það verður ekki gert nema af félags­hyggju­flokkunum.“

Sósíal­istar telja einnig ljóst að hægri flokkarnir hafi tapað í kosningunum. Þetta sjáist vel þegar horft er til þess hvaða flokkar töpuðu fulltrúum og hvaða flokkar græddu fulltrúa.

„Hægri flokkarnir töpuðu í kosningunum. Miðflokkurinn féll úr borgar­stjórn, Sjálfstæðis­flokkurinn tapaði tveimur mönnum og Viðreisn einum. Framsókn fékk alla þessa fjóra, svo segja má að þessir fulltrúar hafi færst frá hægri yfir á miðjuna. Vinstra megin unnu Sósíal­istar og Píratar sitthvorn manninn af Samfylkingunni. Þar færðist fylgið til vinstri og meiri róttækni. Eðlileg viðbrögð við þessu er að mynda meirihluta sem endur­speglar þessa sveiflu, frá miðju til vinstri. Þessi sveifla kallar á meirihluta um félags­hyggju og mannúð. Nýr meirihluti ætti að móta metnaðar­fulla áætlun um húsnæðis­uppbyggingu á félags­legum grunni, styrkingu félagslegra innviða og aukna mannúð, nýtt upphaf í borginni.“

Sósíal­istar rifja upp að með Reykja­víkur­listanum á sínum tíma hafi nýr andi komið til Reykja­víkur eftir áratuga „þrúgandi stjórn“ Sjálfstæðis­flokks.

„Borgar­búar kunnu að meta breytinguna og tryggðu R-listanum meirihluta í þrjú kjör­tímabil. Síðan hafa borgar­búar fellt alla meirihluta í borginni og borgar­málin einkennst af ósætti, minnkandi trausti og æ lélegri kosninga­þátttöku. Nýr meirihluti þarf að enda þetta tímabil og hefja nýjan kafla í sögu borgarinnar. Það var niður­staða kosninganna á laugar­daginn. Þær kalla á nýjan meirihluta sem byggir á félags­hyggju og mannúð, endur­reisir traust meðal borgarbúa með því að byggja upp manneskjulegri borg þar sem allir fá að njóta sín.  Horfum til framtíðar og byrjum að byggja upp borgina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur