Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Leynisamtöl á Facebook – er einhver í feluleik?

Í skilaboða­forriti Facebook, Messenger, er hægt að stofna til leynilegs samtals sem er forritað þannig að litlar líkur eru á að óæskilegir komist í þau. Hægt er að stilla samtalið þannig að skilaboð hverfi innan ákveðins tíma og er mögu­leikinn því nytsam­legur þeim sem ef til vill hafa eitthvað að fela.

Leyni­samtölin (e. secret conversation) virka þannig að einungis er hægt að opna þau í þeim tækjum sem stofnuðu til samtalanna. Það þýðir að ef notandi býr til leyni­samtal í snjall­síma, munu þau ekki birtast í tölvu sama notanda.

Dæmi: Einstaklingur stofnar til leyni­samtals við aðila í snjall­síma. Tölva viðkomandi situr heima á eldhús­borði, opin á Facebook. Þrátt fyrir það mun enginn sjá skila­boðin birtast á tölu­skjánum. Þau birtast eingöngu í síma viðkomandi. Það sama gildir um þann sem er á hinum enda samtalsins; skila­boðin birtast bara í því tæki sem viðkomandi opnaði þau fyrst í.

Þegar ýtt er á nafn við­tak­anda má sjá mögu­leik­ann „More actions“. Þar má síðan velja „Go to secret conversation“.

Skilaboð hverfa

Leyni­samtöl má líka stilla með þeim hætti að skilaboð og myndir hverfi eftir ákveðið langan tíma. Tímann má stilla allt frá fimm sekúndum, upp í einn dag. Það þýðir að um leið og notandi opnar skilaboð eða mynd í leyni­samtali byrjar klukkan að telja niður þar til það sem sent var hverfur, bæði fyrir viðtak­anda og sendanda. Þetta er hentugur möguleiki fyrir þá sem senda myndir á milli en vilja ekki að þær séu til áfram.

Ef einhver tekur skjáskot af myndum eða skila­boðum í leyni­samtali fær aðilinn á hinum endanum meldingu um það.

Hægt er að láta skila­boð hverfa innan ákveð­ins tíma.

Ef til vill lítt þekktur möguleiki

Þegar blaða­maður spurðist fyrir í sínu nærumhverfi kom í ljós að fæstir höfðu hugmynd um þennan möguleika Facebook-forritsins. Enginn sem blaða­maður spurði höfðu nýtt sér mögu­leikann. Þrátt fyrir þetta er hann alls ekki nýr, heldur hefur boðist notendum allt frá árinu 2016.

Leyni­samtöl eru líklega mest nýtt af þeim sem eru í einhvers konar leyni­makki og hafa eitthvað að fela fyrir sínum nánustu. Þó geta samtöl af þessu tagi einnig komið að góðum notum þegar um er að ræða samtöl eða vinnu með viðkvæmar persónu­greinanlegar upplýsingar eða gögn sem annar aðilinn vill ekki að hægt sé að vista eða geyma án þeirra vitneskju.

Gruni þig einhvern nákominn þér um óheiðarleika og laumuspil gæti því verið ágætt að hafa það í huga að þessi möguleiki er sannarlega fyrir hendi og líklega þeim kunnugur sem á annað borð bera sig eftir því að fela eitthvað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt