Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Landsmenn sólgnir í Parkódínið: „Þetta er búið að vera ansi bratt“

Lyfja­stofnun veitti á dögunum tíma­bundna heimild fyrir Covid-sjúklinga til að nálgast verkja­lyfið Parkódín án lyfseðils. Þórbergur Egilsson, sviðs­stjóri verslana­sviðs hjá Lyfju, gagnrýnir vinnu­brögð Lyfja­stofnunar í kringum málið harðlega í samtali við Vísi.

„Þetta er alveg vinsælt. En þetta er búið að vera ansi bratt fyrir okkar fólk,“ segir Þórbergur. Hann segir söluna á lyfinu hafa verið mikla eftir þessa tíma­bundnu heimild Lyfja­stofnunar.

Þórbergur segir það afar sérstakt hvernig staðið hafi verið að málinu. Hann segir apótekin vera að reyna að leysa þetta eftir bestu getu. „Það þarf að gefa út neyðar­lyfjaávísun fyrir hverja pakkningu og fólk þarf að vera með vottorð. Það eru ekki allir sem skilja það, eða vilja skilja það.“

Þessi tíma­bundna heimild er einungis fyrir Covid-sjúklinga; fólk sem getur með vottorði sýnt fram á Covid-sýkingu sem er ekki eldri en mánaðar­gömul.

Þórbergur bendir einnig á það í viðtalinu við Vísi að með þessu fyrir­komulagi hópist Covid-smitaðir einstaklingar inn í apótekin.

„Þegar allar heilbrigðis­stofnanir eru að biðja Covid-smitaða um að koma ekki, þá tók Lyfja­stofnun upp á því, upp á sitt einsdæmi, að vísa öllum til okkar,“ segir Þórbergur. Hann segir að Lyfja­stofnun hafi tekið þessa ákvörðun án nokkurs samráðs við apótekin.

Þórbergur segir að nú séu allar tíu tölfu pakkningar af Parkódíni löngu uppseldar í apótekum Lyfju.

Hægt verður að nálgast Parkódín í lausasölu, með ofan­greindum skilyrðum, til 18. apríl næst­komandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá