Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Blóðugir mótmælendur tóku sér stöðu við sendiráð Rússa: „Þeir hegða sér eins og algjör skrímsli“

Táknræn mótmælastaða
Táknræn mót­mæla­staða Mynd: Mannlíf

Táknræn mótmæli voru við sendiráð Rússlands í Reykjavík í hádeginu í dag. Um þrjátíu manns mætti og mótmæltu stríðinu í Úkraínu. Hópur kvenna og eins karlmanns stillti sér upp fáklædd í blóðugum fötum og með skyltum með slagorðum eins og „Rússneskir hermenn nauðga börnum“ og „Stöðvið ofbeldið, stöðvið stríð!“ Þá fengu þeir sem voru þar að heyra það sem margir Úkraínu­menn heyra dag hvern, loftvarnar­flautur og barnagrát.

Sterk mót­mæli við sendi­ráðið.

„Við munum pottþétt sigra þetta stríð“

Eftir að hópurinn hafði lokið mótmæla­stöðunni, tjáðu nokkrir sig við fjölmiðla. Olena var ein þeirra en hún er fædd í Bucha en hún kom til Íslands fyrir tveimur mánuðum.

Frétta­maður annars miðils en Mannlífs spurði hverju hún væri að mótmæla í dag. „Ég fæddist í Busha, ég stundaði nám í Busha og ég hef séð þann óskapnað sem rússneskir hermenn hafa gert fólki í Úkraínu. Ég er handviss að nauðganir, dráp, rányrkja og ofbeldi gagnvart venju­legum borgurum er aðalvopn rússneska hersins, rússneskra hryðju­verkamanna. Við erum hér til að sýna fólki að við erum hér og við erum á móti innrás Rússa.“

Frétta­maður: „Ertu með einhver skilaboð til rússneskra yfirvalda?“
„Við munum pottþétt sigra þetta stríð. Við erum frábært þjóð. Við erum friðsæl þjóð. Við viljum vera partur af Evrópu og vera lýðræðis­ríki. Ég veit að Rússar vilja ekki leyfa okkur að verða hluti af Evrópu­sambandinu en við viljum tilheyra siðuðum heimi og þeir ættu að hætta þessu stríði og glæpum gegn Úkraínsku þjóðinni.“

Táknræn mót­mæla­staða

Frétta­maður: „Hvernig geta íslensk stjórn­völd stutt betur við bakið á Úkraínsku þjóðinni?“ „Við erum mjög þakklát íslenskum stjórn­völdum og þjóðinni því hún er mjög gestrisin og hér fáum við mikinn stuðning. En ríkis­stjórnin mætti gera eitthvað gagnvart sendi­ráðinu hér og segja hreint út að rússneski herinn er að fremja glæpi og eru í raun hryðju­verkamenn. Þeir drepa saklausa borgara og íslenska þingið þarf að segja það við þjóðina.“

Frétta­maður: „Hvernir er það fyrir þig að sjá Rússa fagna deginum í dag, Sigur­deginum, nú þegar stríðið í Úkraínu er enn í gangi?“ „Þetta er enginn sigur­dagur fyrir Rússa, þetta er smánar­dagur fyrir Rússa, ég get bara sagt það, þetta er dagur smánunar fyrir Rússa. Úkraína mun vonandi bráðum eiga sinni sigurdag.“

Frétta­maður: „Er fjöl­skylda þín enn í Úkraínu?“ „Já, partur af fjöl­skyldunni er enn í Bucha en ég flúði hingað ásamt börnum mínum.“

Frétta­maður: „Ertu með skilaboð til fjöl­skyldu þinnar í Úkraínu?“ „Já, farið varlega og haldið ykkur í byrgjunum því það er enn stríð í gangi.“

„Efnahagslegi þátturinn er það sem mun fella stríðið“

Næst var talað við Jón og kærustu hans, Olenu sem er frá Úkraínu en hún hefur búið hér í níu ár. Olena minntist meðal annars á glæpi rússneskra hermanna. „Þetta er ekkert leyndarmál, farið bara á YouTube, þar sjáið þið að það er verið að nauðga börnum og nýfæddum börnum. Hvernig í ósköpunum er hægt að útskýra þetta? Ég er mjög stolt Úkraínu­kona, þú getur flutt frá landinu þínu en landið þitt flytur ekki frá þér.“

Blóðug barna­dúkka

Jón var spurður hvort hann teldi að Ísland gæti gert meira. „Já, stríð er eitthvað svo fjarlægt okkur Íslendingum, maður upplifir þetta á svo öðru stigi með því að upplifa þetta í gegnum einstakling sem hefur beina tengingu þangað. Þegar maður vaknar að morgni innrásar­dags og þarf að segja viðkomandi að það er komið stríð og maður sér viðbrögðin. Þegar fólk sprettur upp úr rúminu og byrjar að hringja í alla aðstand­endur og þetta hefur verið alveg stans­laust síðan, það er alltaf verið að athuga, er í lagi með þig? Hvað er að gerast hjá þér? Þetta er svo fjarlægt okkur Íslendingum. En það sem við getum gert betur, almennt og yfirhöfuð er að taka sterka afstöðu og það verður ekki gert nema í gegnum algjört viðskipta­bann þannig að þrýstingurinn í Rússlandi komi frá þjóðinni sjálfri. Efnahags­legi þátturinn er það sem mun fella stríðið.“
Blaða­maður Mannlífs: „Finnst þér að íslenska ríkið sé að gera nóg?“ „Stundum er alltof mikið bara verið að tala og við erum náttúru­lega mjög smá þjóð og mikið viðhlægjendur oft, í stærri klúbbi.“

Frétta­maður: „Hvernig líður þér með það að Rússar séu nú að fagna stríðs­lokum seinna stríðs og þetta er enn í gangi í Úkraínu?“ „Það var auðvitað sami viðbjóðurinn í gangi í seinni heim­styrjöldinni þó að fréttir um það hafi borist með öðrum hætti, jafnvel ekki fyrr en misserum, mánuðum og árum síðar. Reynslu­sögur frá konum og ungum börnum af hryllilegum nauðgunum. Þetta fylgir öllum stríðum og auðvitað eru ekki allir hermenn skepnur en það er ofboðs­lega stór hluti hermanna sem breytast í skepnur í svona aðstæðum og þetta er bara spurning um einhverja útrás fyrir sjúklega ofbeldis­þörf. Og þetta er eitthvað sem þarf að draga menn til ábyrgðar fyrir. Og ekki bara hermenninga heldur einnig þá sem eru að tefla þeim fram.“
Blaða­maður Mannlífs: „Finnst þér að yfirvöld hér á landi eigi að reka sendi­herra rússa úr landi?“„Það þarf náttúru­lega að viðhalda einhverju talsambandi en það þarf að sýna með einhverjum mjög skýrum og sterkum hætti að þetta er ekki liðið. Og það eru alltaf viðskipta­legir þættir sem yfir­trompa hið mannlega.“

Flúði Rússland fyrir tveimur mánuðum

Að lokum vildi hin rússneska Maria fá orðið en hún flúði Rússland fyrir tveimur mánuðum en hún þurfti nokkrum sinnum að beygja af, svo tók á hana að tala um þetta.

Maria

„Ég flúði Rússland með syni mínum, 26 mars. Það er ómögulegt að mótmæla í Rússlandi eins og við erum að gera hér. Ég er hér fyrir hönd rússneskra kvenna sem eru á móti stríðinu og þær eru að mótmæla í Rússlandi. Vinkona mín Sasha Skolichenka er nú í fangelsi næstu 15 árin því hún talaði opinber­lega um fórnar­lömbin í Mariupol. Hún var að segja sann­leikann og nú er hún í fangelsi ásamt fleiri konum sem eru nógu hugrakkar til að mótmæla. Þetta sem við erum að gera hér er algjör­lega ómögulegt í Rússlandi. Ég yrði barin um leið og ég færi úr buxunum á opinberum stað. Hinn hræðilegi atburður í Busha snerti mig mjög,“ sagði María og beygði af og afsakaði sig. „Af því að þetta er harm­leikur kvenna og barna í Úkraínu og einnig harm­leikur fyrir rússnesku þjóðina því skömmin er slík og við getum ekki losað okkur við þennan harðstjóra, við erum algjör­lega hjálpar­laus, við erum að gera okkar allra besta. Stjórnar­andstæðingurinn Navalni er nú í fangelsi en áður var eitrað fyrir honum og enginn gerir neitt.“

Þarna stoppaði Maria aftur og afsakaði sig á meðan tárin streymdu niður andlit hennar. „Þetta er líka harm­leikur fyrir rússnesku þjóðina og ég veit að partur af þjóðinni styður stríðið og það er hræðileg skömm. Og þetta er harm­leikur fyrir okkar menningu, ég trúi ekki að þetta sé að gerast. Þeir eru ekki mennskir, þeir hegða sér eins og algjör skrímsli og ég stend hér til að styðja við mennskuna, fyrst og fremst og styðja konur og börn í Úkraínu og karlmenn þar líka, alla þjóðina. Og ég vil einnig tala fyrir rússneskar konur því þær eru að senda syni sína í stríðið, þær samþykkja það ekki. Þeir eru sendir í stríðið 18, 19 ára og þeir eru að deyja þar og engin fær að vita af því í Rússlandi, því það er verið að fela dauða rússneskra pilta sem deyja í stríðinu.“

Við lok mótmælanna steig fram kona sem tjáði viðstöddum að hún vildi að leyfa fólki að heyra það sem Úkraínu­búar heyra daglega og spilaði svo upptöku úr símanum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur