Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Tveir stjórnarmenn sögðu af sér eftir uppljóstranir um barnaklám

Tveir æðstu stjórnar­menn Mindgeek, þeir Feras Antoon og David Tassillo, hafa hætt störfum hjá fyrir­tækinu. Þeir höfðu báðir starfað þar í meira en áratug, Antoon sem forstjóri og Tassillo sem rekstrar­stjóri. Mindgeek rekur vinsælu klám­veituna PornHub. Financial Times greinir frá þessu.

Gustað hefur um PornHub undan­farið eftir að í ljós kom að mikið magn kynferðis­legs efnis á veitunni var þar án samþykkis þeirra sem sáust í mynd­böndunum, auk þess að þar var einnig töluvert um klámefni sem sýndi einstaklinga undir lögaldri. Þeir Antoon og Tassillo eru taldir hafa horfið frá í kjölfar þessa, en eftir að málið komst í hámæli lokuðu bæði Visa og Mastercard á greiðslu­leiðir á PornHub. Eftir það hafa tekjur fyrir­tækisins dregist mikið saman og heim­sóknir á síðuna hafa minnkað um þriðjung.

Í kjölfar uppsagna stjórn­endanna tveggja hefur PornHub nú sagt upp fleira starfs­fólki, samkvæmt Variety, en ekki er vitað hve margir hafa þurft að taka pokann sinn. Voru uppsagnirnar sagðar „tilraun til þess að lækka kostnað eftir að fyrir­tækið varð fyrir tekjutapi síðastliðna 18 mánuði, eftir að í ljós kom í kjölfar ótal uppljóstrana að MindGeek hefði heimilað birtingu efnis sem sýndi kynferðis­ofbeldi gegn börnum og annarra myndbanda án samþykkis á PornHub,“ í frétt The Globe and Mail síðastliðinn þriðjudag.

Talsmaður MindGeek sagði í samtali við Variety að orðrómur þess efnis að fyrir­tækið hefði sagt meira en helmingi starf­manna sinna upp væri „galinn og algjör­lega ósannur.“

Þeir Antoon og Tassillo eru sagðir enn verða hluthafar í MindGeek, þótt sögur séu á lofti um ósætti milli þeirra og aðal­eiganda félagsins, Bernd Bergmair. Sá síðastnefndi er sagður vera að safna fjármagni til þess að kaupa tvímenningana út úr félaginu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn