Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Tveir línubátar á Fáskrúðsfirði lang aflahæstir á síðasta ári: „Báðir mannaðir miklu úrvalsfólki“

Sandfell og Hafrafell
Sandfell og Hafra­fell Mynd: lvf.is

Línubátar Loðnu­vinnslunnar, Sandfell og Hafrafell komu samtals að landi á síðasta ári með ríflega fjögur þúsund og níu hundruð tonn af afla. Eru bátarnir því afla­hæstir slíkra báta á landinu.

Austur­frétt segir frá málinu. Þar kemur fram að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem þessir bátar toppi listann yfir aflamestu bátanna yfir árið. Frá því að Sand­fellið kom til Fáskrúðs­fjarðar í febrúar árið 2016, hefur það toppað afla­listann. Þá hefur Hafra­fellið verið í öðru til þriðja sæti listans síðustu ár.

„Fyrir það fyrsta er bátarnir báðir mannaðir miklu úrvals­fólki og lítið verið um manna­breytingar. Í öðru lagi gerum við og frystum okkar eigin beitu úr eins fersku hráefni og fæst. Þriðja ástæðan er að bátarnir eru afar góðir sjóbátar almennt og síðast en ekki síst sú staðreynd að við sinnum viðhaldi þeirra vel. Þeir fara einu sinni á ári báðir í slipp ár sem merkir að bilanir hvers kyns eru litlar sem engar sem aftur þýðir að þeir geta sótt linnulítið á miðin,“ sagði Friðrik Mar Guðmundsson framkvæmdar­stjóri við Austur­frétt, aðspurður um mögulegar ástæður þess að tveir bátar frá Fáskrúðs­firði séu að fiska meira en aðrir línubátar.

Bátarnir tveir voru feng­sælustu línu­bátarnir á liðnu ári en á árslista Afla­frétta má sjá að Sandfell veiddi tæplega 600 tonnum meira en sá bátur sem endaði í þrijða sæti listans og Hafrafell veiddir rúmlega 200 tonnum meira. Þá lönduðu þeir báðir mun oftar en allflestir bátar af þessari stærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp