Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Auglýsingar Sjálfstæðisflokksins valda pirringi: „Sjálfstæðisflokkurinn filmar yfir gegnsæi“

Síðustu tvær vikur hafa auglýsingar Sjálfstæðis­flokksins prýtt strætis­vagna­skýli í Kópavogi en bæði hafa aðilar innan Vina Kópavogs sem nú bíður sig fram til sveitar­stjórnar­kosninga, og Pírata sem einnig eru í framboði, bent á að ekki sé allt með felldu hvað varðar téðar auglýsingar.

Sigur­björg Erla Egils­dóttir bæjar­fulltrúi Pírata í Kópavogi, birti í gær færslu á Facebook þar sem hún segir auglýsingarnar ólöglegar.

„Sjálfstæðis­flokkurinn filmar yfir gegnsæið

Nýlega birtust auglýsingar frá Sjálfstæðis­flokknum í Kópavogi á strætóskýlum víðsvegar um bæinn. Ekki á hefð­bundna auglýsinga­plássinu í skýlunum, heldur hefur verið filmað yfir rúðurnar sem venjulega standa auðar.Í samkomu­lagi Kópa­vogsbæjar og rekstrar­aðila skýlanna segir skýrt að fjármagna megi rekstur biðskýlanna með sölu auglýsinga á annan gafl þeirra. Það má sumsé ekki hafa tekjur af sölu auglýsinga á aðra hluta skýlanna. Aðeins annan gaflinn. Þá kemur tvennt til greina: Annaðhvort rukkaði rekstrar­aðilinn ekki fyrir þetta, sem væri áhugavert í ljósi þess að endurnýjun útboðs á rekstrinum hefur ítrekað verið frestað síðan lok árs 2019. Ef aftur á móti rukkað var fyrir þetta er um brot á samkomu­lagi við Kópa­vogsbæ að ræða.Ekki nóg með það, heldur eru filmur Sjálfstæðis­flokksins einnig á strætóskýlum sem Kópa­vogsbær á og rekur (og selur aldrei auglýsinga­pláss á), sem er skýrt brot á lögreglu­samþykkt, rétt eins og ef þau hefðu tekið sig til og filmað yfir rúðurnar í bóka­safninu eða í grunn­skólum bæjarins.

Er ekki komið gott af ólögmætum auglýsingum stjórn­málaflokka í Kópavogi?“


Samkvæmt Sigurbjörgu Erlu er eftir­farandi klausa úr samningi Kópa­vogsbæjar við rekstar­aðilann:

„AFA JCD fjár­magnar rekstur götu­gagnanna með sölu auglýsinga báðum megin á annan gafl biðskýlanna.“

Það er nýr aðili tekinn við rekstrinum, Dengsi/Billboard en samningnum var ekki breytt, samkvæmt Sigurbjörgu Erlu.

Þá hafa Vinir Kópavogs einnig bent á þessar auglýsingar en einn þeirra hafði samband við Mannlíf og lét vita að nú væru Sjálfstæðis­menn í óðaönn við að taka niður auglýsingarnar. Að sögn aðila innan Vina Kópavogs hafa Akureyringar þann háttinn á að allir flokkar fá sinn tíma á biðskýlunum „en það er gert í samráði við alla. Það er bara þetta sem við hjá Vinum Kópavogs erum að benda á, og við bentum Pírötum á þetta og fleirum, að þetta væri ójafn leikur.“

Mannlíf reyndi að ná tali af Ástu Kristjáns­dóttur oddvita Sjálfstæðis­flokksins í Kópavogi, án árangurs. Þá hafði Mannlíf einnig samband við Dengsa/Billboard sem annast nú rekstur skýlanna en framkvæmdar­stjórinn er frá næstu daga. Tölvu­póstur var sendur og er beðið svars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur