Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fluttu inn mikið magn fíkniefna: „Ef einhver ætlaði að kaupa dóp var hægt að snúa sér til Bjössa“

Stóra fíkniefna­málið svokallaða vakti umtals­verða athygli í kringum aldar­mótin. Sakborgningar í málinu voru 19 talsins en fjórir þeirra voru sýknaðir.

„Ólafur fékk þyngsta fangelsis­dóminn, 9 ár, og einnig var fé í hans vörslu, 5,2 milljónir kr., gert upptækt. Um er að ræða þyngsta dóm sem kveðinn hefur verið upp í fíkniefna­máli hér á landi. Sverrir  fékk næst­þyngsta dóminn, sjö og hálfs árs fangelsi, og gert var upptækt fé, 21 milljón,“ sagði í Morgun­blaðinu eftir að dómur féll í málinu þann 28.júní árið 2000.

Gunnlaugur nokkur var sumar­starfsmaður hjá Samskipum og nýtti sér aðstöðu sína til að flytja fíkniefni til landsins í stórtæku magni. Hann faldi efnin meðal annars í raftækjum.

„Gunnlaugur, sem fæddur er 1972, var dæmdur í 4 ára og sex mánaða fangelsi. Hann var fundinn sekur um að flytja inn mikið magn fíkniefna til landsins og selja það að miklu leyti. Hann framdi brot sín að hluta í samvinnu við aðra og er það virt honum til refsiþyngingar. Þá notfærði hann sér aðstöðu sína sem starfs­maður Samskipa hf. og brást trausti sem starfs­maður skipa­félags. Brot hans þykja stórfelld og þaul­skipulögð. Hann var búsettur í Danmörku og starfaði þar hjá Samskip. Sannað þykir að hann hafi flutt inn 7 kg af kannabis í félagi við einn meðákærða í september 1999. Þá flutti hann inn 38 kg af kannabis í 15 ferðum á tíma­bilinu desember 1997 til september 1999, einn í fyrstu þremur ferðunum, en síðar í félagi við einn meðákærðu. Sannað þótti að hann hefði flutt inn 150 töflur af MDMA í apríl 1999, 100 töflur af MDMA og 100 g af amfetamíni í júlí 1999,“ sagði í frétt Morgun­blaðsins.

Aðrir sakborningar sáu ýmist um að dreifa, selja og aðstoða við innflutning efnanna. Einn þeirra var Herbjörn en hann sá um nokkurskonar dópþjónustu í Kaupmanna­höfn og veitti alhliða þjónustu í þeim efnum. „Ef einhver ætlaði að kaupa dóp erlendis og smygla til landsins var vitað að hægt var að snúa sér beint til Bjössa og fá afnot af dópleiðinni en þá þurfti líka að kaupa dópið hjá Bjössa. Það má segja að hann hafl bæði verið heildsali og flutninga­miðlari í þessum efnum,“ sagði heimildar­maður DV árið 1999

„Þeir sem hlutu tveggja ára fangelsisdóm eða lengri voru Júlíus, 5 ár og sex mánuðir, Gunnlaugur, 4 ár og sex mánuðir, Rúnar, 4 ár, Guðmundur 3 ár og sex mánuðir, Valgarð, 3 ára fangelsi, Ingvar, 2 ár og sex mánuðir, Herbjörn, 2 ár og sex mánuðir, og Haraldur, 2 ár. Einn sakborningur var dæmdur í 18 mánaða fangelsi, einn í 15 mánaða fangelsi, einn í 10 mánaða fangelsi og loks fékk einn tveggja mánaða skilorðs­bundinn fangelsisdóm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur