Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bergsveinn Birgisson rithöfundur varð trillukarl 17 ára: ,,Ef Guð er dauður er allt leyfilegt“.

Gestur Mann­lífsins að þessu sinni er Berg­sveinn Birgisson rithöfundur og prófessor sem er meöal annars þekktur fyrir að hafa skrifað bókina Svar við Bréfi Helgu. Kvikmynd var gerð eftir bókinni. Berg­sveinn á ættir sínar að rekja vestur á Strandir en er fæddur og uppalinn á Álfhóls­veginum í Kópavogi, ekki fjarri hinum fræga Álfhól. Þá voru þar ekkert nema móar og mýrar, bóndabær í slakkanum og hestar víða.

Í kringum 1980 hófst uppbygging Engi­hjallanna og þá þótti drengjunum sem þarna bjuggu tilvalið að taka timbur ófrjálsri hendi og byggja sér kofa. Í augum ungra drengja voru þessir salir sem nýbyggingarnar voru ævintýra­heimar.

Það var enginn mikið að skipta sér af drengjunum. Þeir stálu til að mynda eitt sinn bunka af timbri frá bóndanum og byggðu kofa. Hann kom þá röltandi í hægðum sínum og tók að hrósa þeim fyrir kofann. Hann væri fallegur og gólfið, maður lifandi, þarna væri hægt að halda dansiball. Hann tók svo í nefið, snýtti sér og sagði að endingu „jæja strákar, þið kannski skilið þessu við tækifæri.“

Hann fór svo í fótboltann eins og margir gerðu og þá var þarna íþrótta­félag sem seinna varð gjald­þrota; ÍK, Íþrótta­bandalag Kópavogs. Hann var þar í góðum hópi drengja, m.a. Helgi Kolviðar, sem seinna varð atvinnu­maður, Hörður Magnússon, Valdimar Hugi Sævarsson og Einar Hansen. Hann minnist þess helst hversu fljótur hann var að hlaupa. Menn sendu þá á hann banana­bolta á meðan hann hljóp af sér vörnina og setti inn.

Það var ekki svo margt annað en knatt­spyrna í boði á þessum tíma fyrir drengina og spurður að því hvort hann hafi ekki sett sér það markmið að gerast atvinnu maður, jánkar hann því en hann hafi vaxið upp úr þessu og farið að gera einhvern annan óskunda eins og lesa bækur.

Berg­sveinn fékk svo að fara í veit til ömmu sinnar og afa sem voru með bæinn Bakka­gerði norðan við Drangsnes. Hann var svo sextán ára þegar hann leigði fyrst trillu af frænda sínum á Hólmavík og fór að róa á skaki en hann bjó að því að hafa farið á grásleppu með pabba sínum. Fyrir vikið var hann á Drangsnesi flest sumur þangað til að hann fékk stúdents­próf.

Að stúdents­prófi loknu ákvað hann að bregða sér í átta mánaða heims­reisu. Hann heimsótti 15 lönd í Afríku, Indland og Nepal. Þetta var lærdóms­ríkur tími og hann vann meðal annars sem sjálfboða­liði um tveggja mánaða skeið í Bahá‘í musteri í Nýju Delí sem lítur út eins og risastórt lótusblóm. Þangað kom fólk af öllum trúar­brögðum og frá öllum heims­hornum.

Þeir kaþ­ólikkar sem heim­sóttu must­erið spurðu nán­ast allir sömu spurn­ing­ar­innar: hvar fenguð þið pen­inga til að byggja þetta must­eri?

Berg­sveinn lítur gjarnan á lífið sem litla mannfræði­tilraun og oft með svolítið óvæntum niður­stöðum en á þessu ferðalagi telur hann að hann hafi áttað sig á hvaða braut hann vildi feta í lífinu. Hann hafði jú lokið stúdents­prófi frá Fjölbrauta­skólanum í Garðabæ og hafi gaman að bókmenntum en hann var ekki viss hvert leiðin myndi liggja við upphaf ferða­lagsins en þarna eftir ferðina hafði hann séð framandi menningar­heima og fyrir vikið langaði hann að fræðast um sína eigin menningu; sína eigin, gömlu norrænu menningu og því lá leiðin í íslenskunám og svo þaðan til Noregs til að nema norræn fræði og trúarbragða­sögu.

Í hans huga er aðal sorgin eftir að hann hætti í akademíunni sem fræðingur á sviði norrænna fræða sú að söguleg vitund fólks sé að fjara út. Hann tekur dæmi um að áður en plast­bátar komu var gríðar­legu púðri eytt í trébáta og hugur samtíma­fólks okkar rekur sífellt meira frá trébátnum.

Hann harmar að hann verði gjarnan var við það að þegar hann fylgir eftir sinni bóka­útgáfu víða og hittir þá fyrir fólk úr akademíu fái hann veður af því að sífellt sé verið að leggja niður gömul fög á borð við norræn fræði, grísku o.þ.h. en með því tapast bæði gildi og viðmið auk þess sögulega viðmiðs sem sagan veitir okkur.

Hann vitnar í Dostoevsky:

„Ef guð er dauður er allt leyfi­legt“ og bætir svo við að ef sögu­leg vit­und hverfur get­urðu gert hvað sem er við mann­eskj­una.

Berg­sveinn lauk doktors­prófi í norrænum fræðum í Bergen í Noregi árið 2008. Í doktors­ritgerð sinni fjallaði hann um elstu drótt­kvæði sem til eru. Hann telur að þetta séu gríðar­lega merkar heimildir því það bendi allt til þess að þær séu raun­verulega frá heiðnum tíma. Í kvæðunum kemur fram lífssýn forfeðra okkar og við erum eins og geimverur gagnvart henni.

Hann lítur svo á að þessi 500 síðna doktors­ritgerð sín sé það besta sem hann hefur skrifað en hún hafi alls verið lesin af þremur manneskjum, þ.e. þeim þremur sem sátu í nefndinni sem veitti honum gráðuna. Fyrir vikið komst hann að því að akademían ætti ekki við sig. Hann komst að því að grúskið ætti við hann en stofnunin ekki og því fór hann að skrifa bækur fyrir almenning. Hann vildi heldur skrifa í einskonar undrandi stíl þar sem hann gat verið í senn fræði­maður og rithöfundur en ekki bara stífur fræði­maður.

Berg­sveinn ræðir svo um það hvernig vera hans í sveitinni á ströndum og sjómennskan vestra hefur haft áhrif á persónu­sköpun hans fyrir sögur sínar. Hann hefur oft verið spurður hvort persónur hans eigi sér hliðstæðu í raun­veru­leikanum og svar hans við því að sennilega séu margar persónur hans samsettar úr 4-5 persónum. Hann segir að fólkið sem hann hafi hitt í sveitinni sé oft bráð­greint en ekkert endilega búið að lesa of margar bækur. Það sé fólk sem þú getur ekki búið til, ekki frekar en blóm.

„Það er svo mikið af góðu fólki á Íslandi, það er auð­ur­inn í þessu landi. Það er stærsti auð­ur­inn þegar allt kemur til alls“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt