Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kristinn Hrafns sendir pillu á Sjálfstæðisflokkinn: „Hinn nýji einkennisfugl Sjálfstæðisflokksins“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn Hrafns­son

Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks er þekktur fyrir að hafa munninn fyrir neðan nefið en hann hefur í gegnum tíðina verið duglegur að gagnrýna samfélagið og sér í lagi stjórn­málin hér á landi. Í nýjustu færslu sinni á Facebook líkir hann Sjálfstæðis­flokknum við Gauk.

Í færslunni birtir Kristinn ljósmynd af Gauki og segir að hann sé nýji einkennis­fugl Sjálfstæðis­flokksins.

Hinn nýji ein­kenn­is­fugl Sjálf­stæð­is­flokks­ins?

„Þetta er gaukur, hinn nýji einkennis­fugl Sjálfstæðis­flokksins. Gaukurinn hefur ekki fyrir því að gera sér hreiður heldur verpir í hreiður annara fugla og þegar ungarnir koma úr eggjum sparka þeir öðrum ungum fóstur­foreldra sinna úr sníkju­hreiðrinu. Sumir fuglar hafa vit á því að velta aðskota­egginu úr hreiðri sínu en aðrir gá ekki að sér enda gaukurinn nokkuð leikinn í því að dulbúa egg sín.“

En hvað kemur þetta Sjálfstæðis­flokknum við? Jú, Kristinn tengir þetta við nýafstaðnar sveitar­stjórnar­kosningar þar sem Einar Þorsteinsson, sem á sínum yngri árum var formaður Týs, félags Sjálfstæðis­manna í Kópavogi, bauð sig fram sem oddviti Framsóknar­flokksins í Reykjavík með góðum árangri.

„Í nýafstöðnum sveitar­stjórnar­kosningum var útlitið svo dökkt fyrir Sjálfstæðis­flokkinn að hann verpti í hreiður Framsóknar­flokksins í stærsta sveitar­félaginu. Það skilaði góðum árangri og unguðust fjögur egg.Gaukurinn er flækingur á Íslandi en heldur sig yfirleitt á hlýrri slóðum. Á meðan fálkinn er ránfugl má skilgreina gaukinn sem sníkju­fugl,“ ritaði Kristinn en færslan vakti mikla lukku meðal Facebook-vina hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur