Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kvartanir vegna matsmanna hjá Landlækni – „Hló að móður þegar hún lýsti mjög alvarlegu ofbeldi“

Baráttu­hópurinn Líf án ofbeldis sendi frá sér frétta­tilkynningu skömmu eftir hádegið. Þar er fjallað um matsmenn í forsjás­málum og kvartanir sem eru nú komnar á borð land­læknis. Kvartanirnar sem um ræðir má lesa neðar í féttatilkynningunni en eru þær feit­letraðar.

„Frétta­tilkynning

Tíu kvartanir til embættis land­læknis vegna matsmanna í forsjár­málum

Tíu mæður hafa nú sent kvörtun til embættis land­læknis vegna ófaglegra vinnu­bragða og hlut­drægni sálfræðinga sem taka að sér hlutverk dómkvaddra matsmanna og sérfróðra meðdómsmanna í forsjár­málum. Um er að ræða þrjá sálfræðinga, þau Guðrúnu Odds­dóttur, Rögnu Ólafs­dóttur og Gunnar Hrafn Birgisson sem í mati sínu saka mæður um að vera lyga­sjúkar, jafnvel með falskar minningar og skamma þær fyrir að kalla sig þolendur ofbeldis. Allar þessar kvartanir eru hér meðfylgjandi. 

Fjórar kvennanna hafa þegar sagt sögu sína og fimm konur stíga nú fram undir nafni, þær Angelika Dedukh en DV fjallaði um málið hennar nýverið, Bryndís Ásmunds­dóttir sem sagði sögu sína í Eigin Konum, Helga Agatha Einars­dóttir sem sagði sögu sína í Eigin Konum, Helga Sif Andrésdóttir sem sagði sögu sína í Eigin Konum, Andrea Splidt Eyvinds­dóttir og Melkorka Þórhalls­dóttir. 

Kvartanirnar snúa að afglöpum sálfræðinganna í störfum sínum þar sem þau líta fram hjá mikil­vægum gögnum sem sýna vanrækslu og ofbeldi, að framkomu matsmanna við mæður og/eða börn þeirra sem og vinnu­brögðum matsmanna við forsjár­hæfnimat. Í öllum málunum má finna þann samnefnara að umræddir sálfræðingar taka ekki tillit til ofbeldis sem mæður og börn greina frá, og gögn sýna fram á, og gerast hlut­drægir með föður sem hafnar því eða neitar að hafa beitt ofbeldi. 

Aðkoma matsmanna hafði í öllum tilvikum ráðandi áhrif á ákvörðun dómara um forsjá en í þremur málanna var niður­staðan sú að móðir var svipt forsjá yfir barni sínu, eftir að hafa greint frá ofbeldi föður, og barn fært alfarið í forsjá hans. Í öðrum málum var lögheimili fært til föður, dæmd sameiginleg forsjá og börn skikkuð í mikla umgengni við hættulegar aðstæður. 

Fyrsta kvörtunin var send til embættis land­læknis þann 26. ágúst 2021. Enn hefur ekki fengist nein niður­staða varðandi þá kvörtun og því nokkuð ljóst að þolendur ofbeldis geta hvorki treyst á að yfirvöld hafi faglegt eftirlit með störfum matsmanna né reitt sig á inngrip yfirvalda í ófagleg vinnu­brögð sem leiða til íþyngjandi dóms­niðurstöðu. 

Hluti kvennanna hefur einnig sent inn kvörtun sama efnis til siða­nefndar Sálfræðinga­félags Íslands. En nefndin tekur ekki afstöðu til kvartana meðan dómsmál eru í gangi, og því er ekki von á inngripi þaðan inn í atburðarás sem hefur óafturkræf áhrif á líf barna. Þá hefur einni af kvörtunum mæðranna vegna vinnu­bragða og framkomu Rögnu Ólafs­dóttur nú þegar verið vísað frá siða­nefndinni. Vert er að taka fram að einn þeirra matsmanna sem kvartað er yfir, Guðrún Odds­dóttir, situr í siðanefnd Sálfræðinga­félags Íslands.

Að mati umræddra kvenna er ljóst að fullrar fagmennsku hefur ekki verið gætt í störfum ofan­greindra matsmanna og ekki tekið tillit til allra gagna málsins, sérstak­lega er varðar ítarlegar frásagnir og gögn um ofbeldi. Þá er ómetið það óbætanlega tjón sem það veldur börnum að vera færð í hendur ofbeldis­manna og að vera ekki trúað þegar þau greina frá ofbeldi. 

Fjárhags­tjónið er í sumum tilvikum verulegt, en dæmi er um að móðir sé knúin til að fara af stað í forsjármál vegna vanrækslu og ofbeldis föður en sitji uppi með kostnað hátt í 20 milljónir króna. Útlagður kostnaður vegna matsgerða hleypur á 2-5 milljónum króna og í mörgum málum er óskað eftir yfir­matsgerð. Þó að hægt sé að sækja um gjafsókn mega hámarks­laun vera mjög lág til þess að fá það samþykkt. 

Líf án ofbeldis lýsir yfir þungum áhyggjum af grafal­varlegri stöðu barna og mæðra í forsjár­málum á Íslandi þar sem ofbeldi kemur við sögu. Konurnar eru allar félags­meðlimir í samtökunum Líf án ofbeldis og þær og/eða börn þeirra eru þolendur ofbeldis af hálfu föður. Í stað þess að taka tillit til ofbeldis sem greint er frá, og skylda er að taka tillit til samkvæmt barna­lögum, eru mæður og börn látin gjalda fyrir það í málunum að leggja fram gögn og vitnis­burði sem staðfesta ofbeldi með beinum og óbeinum hætti. Samtökin benda á að umboðs­maður barna á Íslandi beindi því til Barnaréttar­nefndar Sameinuðu þjóðanna, sem hefur eftirlit með framkvæmd Barna­sáttmálans, árið 2011 að brýnt sé að auka vernd barna gegn ofbeldi þegar teknar eru ákvarðanir um forsjá og umgengni. Ekkert hefur hins vegar breyst á þessum 11 árum. Vegna alvarleika kvörtunar­efna mæðranna og fjölda kvartana um sömu mats­mennina, sjá þær ekki aðra kosti í stöðunni en að senda yfir­lýsingu þessa á fjölmiðla, með stuðningi félaga­samtakanna Líf án ofbeldis.

Við minnum á að stjórn­völdum ber skylda til að grípa til allra nauðsynlegra aðgerða til að vernda börn gegn ofbeldi. Samkvæmt lögum um heilbrigðis­þjónustu nr. 40/2007 og lögum um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007 er eftirlit með heilbrigðis­starfsfólki í höndum land­læknis. Við treystum því að brugðist verði við kvörtunum í samræmi við tilgang laga og að ráðherrar mála­flokkanna, heilbrigðis­ráðherra og dómsmála­ráðherra grípi til nauðsynlegra ráðstafana til að efla eftirlit með fagmennsku sálfræðinga í forsjár­málum og tryggja að fagleg þekking sé til staðar. Heilbrigðis­vísindin eru komin miklu lengra í að viðurkenna þekkingu á afleiðingum ofbeldis á börn en mat sálfræðinganna gefur til kynna, réttast væri að mat á ofbeldis­hættu og ofbeldi væri sett í forgang í sérfræði­mati og að áhrif þess á barn væri ávallt kannað með faglegum hætti. 

Meðfylgjandi í viðhengi er innihald þeirra kvartana sem lagðar hafa verið fram í heild sinni.

Stutt samantekt um efni hverrar kvörtunar fylgir hér:

  1. Kvörtun Angeliku Dedukh, dags 24. mars 2022 vegna Rögnu Ólafs­dóttur og Guðrúnu Odds­dóttur sem komu að forsjár­máli sem yfir­matsmenn:

Faðir hlýtur refsidóm fyrir ofbeldi gegn bæði móður og barni í héraði. Dómur fyrir ofbeldi gegn barninu var stað­festur í Lands­rétti en yfir­matsmenn leggja sig fram um að afsanna allar ásakanir móður um ofbeldi gegn börnum á heimilinu. Matsmenn gera lítið úr frásögn barnsins sem varð fyrir ofbeldi föður, láta í ljós að drengurinn sé með flöktandi augnaráð, sem eigi að vísa til þess að barnið sé ekki að segja satt. Meðfylgjandi kvörtun er vottorð um augn­sjúkdóm barnsins sem veldur flöktandi augnaráði. Yfir­matsmenn komast að þeirri niður­stöðu að móðirin sé fégráðug og búi til frásagnir um ofbeldi til að græða pening.

  1. Kvörtun (nafnlaus) vegna x til embættis land­læknis dags. 25. mars 2022:

Faðir er metinn hæfari til forsjár þrátt fyrir vanrækslu og hafa ítrekað komið í veg fyrir heilbrigðis­þjónustu fyrir börnin. Alvarlegasta vanræksla matsmanns er að hún lítur alfarið framhjá alvarlegum veikindum annars barnsins og sterkum vilja þess um að hafna samskiptum við föður. Faðir kom í veg fyrir heilbrigðis­þjónustu við barnið með skrif­legum hótunum og ógnandi framkomu, auk þess að nema yngra barnið á brott og halda því frá móður og systkini í marga mánuði án nokkurra skýringa. Þrátt fyrir stað­festar frásagnir barnanna af líkamlegu ofbeldi föður og ótal tilkynningar t.d. heilbrigðis­starfsmanna og löggæslu­aðila um ofbeldið, er litið framhjá því með öllu.

  1. Kvörtun (nafnlaus) til embættis land­læknis dags. 24. apríl 2022 vegna x:

Faðir gengur hart fram svo árum skiptir að þvinga barnið sitt í umgengni við sig gegn vilja þess. Þegar barnið er aðeins fjögurra ára gamalt segir hann frá því að faðir hans hafi kýlt hann í höfuðið og hann sé hræddur við hann. Alvarlegasta vanræksla matsmanns er barnið fær ekki að njóta vafans en x neitaði að trúa frásögn barnsins af ofbeldi, þegar fyrir liggur greinar­gerð frá öðrum sálfræðingi sem taldi frásögn barnsins trúverðuga og barnið hitti reglulega í marga mánuði. Móðir hefur neyðst til þess að flýja land vegna áralangra ofsókna föður með hjálp kerfisins, en hann hefur nú stefnt henni fyrir að taka barnið með sér erlendis. 

  1. Kvörtun Andreu Splidt Eyvinds­dóttur vegna Guðrúnar Odds­dóttur til embættis land­læknis dags. 30. apríl 2022:

Matsmaður kennir móður um kvíða barnsins sem augljóst er að tengist ofsóknum og stjórnun föður en andstaða barnsins við umgengni hófst þegar faðir faðir frelsis­svipti barnið í marga sólar­hringa sem refsingu við því að vilja vera meira hjá móður. Móðir greinir matsmanni frá andlegu, kynferðis­legu og fjárhags­legu ofbeldi sem faðir beitti hana, auk líkamlegs ofbeldis í eitt skipti, sem hún telur ekki að hafi nein áhrif á forsjár­hæfni föður. Barnið tjáir marka­leysi föður gagnvart henni en matsmaður segir ekkert óeðlilegt við að faðir kyssi barnið á munninn því hún sjálf eigi frænkur á Vestfjörðum sem gera það. Matsmaður trúir ekki barninu og segir hana hafa búið sér til minningu um ofbeldi en rökstyður ekki þá skoðun. Samt segir hún að barnið hafi aldrei sagt frá ofbeldi en líka að atvik hafi átt sér stað þegar barnið var mjög ungt og því geti hún ekki munað eftir þeim sjálf. 

  1. Kvörtun Melkorku Þórhalls­dóttur til embættis land­læknis vegna aðkomu Guðrúnar Odds­dóttur að forsjár­máli sem sérfróður meðdómari, dags. 19. apríl 2022:

Í máli þar sem Guðrún Odds­dóttir var sérfróður meðdómsmaður spyr hún móður hvort hún gangi út frá því að eiga barnið ein, þar sem lítið var gert úr barna­verndar­laga brotum föður. Forsjár­hæfni móður þótti mun betri en föður og fram kom löng saga hans um ofbeldi en fyrir dóminum var samt gengið út frá því að sambandið hefði verið “storma­samt” og ekki hægt að skera úr um hver bæri ábyrgð á því. Árið 2019 hafði þó annar dómari séð ástæðu til að dæma um umgengni við föðurinn, undir eftirliti en eitthvað breyttist þegar Guðrún kom að málinu sem faglegur meðdómari.

  1. Kvörtun Helgu Agöthu Einars­dóttur vegna Guðrúnar Odds­dóttur til embættis land­læknis dags. 14. apríl 2022:

Matsmaður lítur framhjá og gerir lítið úr áratuga langri sögu föður um ofbeldi og afbrot sem hann hefur hlotið dóma fyrir en lætur í ljós að andfélagsleg hegðun og neysla móður sé eitthvað í líkingu við sögu föður. Samt hefur móðir aldrei gerst brotleg við lög með ofbeldis­hegðun en faðir ítrekað fengið dóma og setið inni, auk þess að hafa veitt móður slíka áverka að hún lá inni á spítala vegna þeirra. Barnið hefði getað endað móður­laust ef árásirnar hefðu gengið örlítið lengra, en matsmaður gerir nánast engar athuga­semdir við alvarlegt ofbeldi mannsins og virðist hissa á því að samstarfið hafi ekki gengið vel á milli foreldranna. Matsmaður hló að móður þegar hún lýsti frásögn sinni af mjög alvarlegu ofbeldi.

  1. Kvörtun (nafnlaus) vegna x til embættis land­læknis dags. 28. apríl 2022 og siða­nefndar Sálfræðinga­félags Íslands dags. 5. maí 2022:

Matsmaður notast við persónu­leika­próf sem hafa mjög mikið vægi í -niðurstöðu­kafla. Í niður­stöðum þessara prófa er látið í ljós að móðir sé vænissjúk, en matsmaður tekur ekkert tillit til þess að ég segist vera þolandi ofbeldis og með áfalla­streitu­röskun, sem í eðli sínu lýsir sér í því að vera stöðugt hrædd og á varðbergi. Einnig kemst hún að þeirri niður­stöðu að faðir hafi aldrei reynt að koma í veg fyrir samskipti barns við móður og að móðir ein beri ábyrgð á tengslarofi við barnið, en vísar ekki í neitt máli sínu til stuðnings. 

  1. Kvörtun (nafnlaus) til embættis land­læknis dags. 31. mars 2022  og Siða­nefndar Sálfræðinga­félags Íslands dags. 04. júní 2020 vegna starfa x sem matsmanns í forsjár­máli: 

Matsmaður kemur fram við móður eins og um brot af hennar hálfu sé að ræða og sakar hana um að valda dóttur sinni og barns­föður skaða með að leyfa ekki eftirlits­lausa umgengni við hann þegar grunur er um kynferðis­brot hans gegn barninu. Matsmaður hafnar yfir­lýsingum frá tveimur systrum föður um kynferðis­brot hans gegn þeim og telur aðra frásögnina ótrú­verðuga þar sem barnið 13 ára hafi ekki sagt mömmu sinni frá.  Faðir mælist klíniskt hátt á “psychopathic deviate scale” en það hefur x til marks um sjálfs­hatur hans, þar sem hann eigi enga sögu um andfélagslega hegðun, maður sem hefur sjálfur viðurkennt kynferðis­brot gegn barni og er sakaður um að brjóta gegn tveimur öðrum börnum. Samhliða því segir hún móður dramatíska og athyglis­sjúka og að hún mistúlki orð dóttur sinnar um að hana klæjaði í píkunni því „pabbi skegg kitlar“ og „ekki nota marga putta“ þegar hún ætlaði að skipta á henni. Til að staðfesta að eðlilegt sé að faðir fái ítrekað holdris í návist barnsins notast matsmaður við þráð á Reddit sem heimild og þvagfæra­skurðlæknis. 

  1. Kvörtun Helgu Sifjar Andrésdóttur dags. 31. mars 2022 til embættis land­læknis vegna Rögnu Ólafs­dóttur sem matsmanns í forsjár­máli:

Móðir dregur í efa að það sé hlutverk matsmanns í forsjár­máli að þvinga fram umgengni barns við foreldri gegn vilja þess, sem Ragna gerir. Matsmaður hafði vitneskju um alvarlegan og sársauka­fullan sjúkdóm barnsins sem bregst illa við streitu og álagi, en tók ekkert tillit til þess. Börnin hafna eindregið umgengni við föður en Ragna segir við annað að faðir sé einn púslubiti fjöl­skyldunnar og að henni mun aldrei líða eins og hún sé heil ef hún hafnar umgengni við föður sinn, og tjáir henni að það hafi verið henni sjálfri erfið reynsla að rjúfa tengsl við sinn eigin föður í æsku. Matsmaður spyr barnið líka hvort henni finnist ekki undarlegt að móðir hennar hafi ekki stoppað ofbeldis­hegðun föður. Elsta barnið sem lýst hafði lang­varandi ofbeldi föður á heimilinu og hafði gert tilraun til að svipta sig lífi vegna þeirra aðstæðna sem hann bjó við var aldrei kallaður í viðtal. Ragna sagði hann einfald­lega ekki koma þessu máli við, þar sem þau eru ekki alsystkini. Geðlæknir hans frá BUGL var fenginn til þess að skrifa skýrslu vegna elsta barnsins og leggja inn í matið, en þegar kemur að því þá neitar matsmaður að taka við skýrslunni. Móður sendir þá lögmanni sínum fyrir­spurn með tölvu­pósti sem sendir erindið á Rögnu sem svarar. “Hvað er eiginlega að Helgu? Af hverju spyr hún mig ekki ef það er eitthvað í stað þess að hlaupa klagandi til þín?”. 

  1. Kvörtun Bryndísar Ásmunds­dóttur vegna Gunnars Hrafns Birgis­sonar til embættis land­læknis dags. 26. ágúst 2021:

Matsmaður sest í dómara­sætið varðandi ofbeldi föður gagnvart móður þar sem hann lýsir föður í raun saklausan, með vísan til fram­burðar hans og þrátt fyrir lögreglu­skýrslur, framburð vitna og vitnis­burð annarrar barns­móður föður um ofbeldi. Hann lætur þó ekki þar við sitja heldur gerir móður upp falskar minningar um ofbeldið sem er órökstutt með öllu og með öllu ófagleg greining þar sem falskar minningar eru í besta falli umdeilt hugtak. Matsmaður svarar ekki spurningum um hvort barn sé beitt eða gæti verið beitt ofbeldi hjá föður, þar sem hann ræðir ekki við önnur börn hans og spyr ekki drenginn sem um ræðir hvort faðir hafi beitt hann ofbeldi eða hvort óregla eða rifrildi sé á heimilinu, þrátt fyrir að í málinu liggi fyrir hljóð­upptaka þar sem tveir synir föður ræða saman um framkomu föður við þá. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur