Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Rannveig gagnrýnir kynjaslagsíðu á mbl.is: „Afrek Andreu er afgreitt í einni málsgrein“

Andrea Kolbeins nýkomin í mark
Andrea Kolbeins nýkomin í mark Mynd: Facebooksíða The Puffin Run

Rannveig Odds­dóttir hlaupari er síður en svo ánægð með þá kynja­slagsíðu sem finna má í íþrótta­fréttum mbl.is.

Rannveig hefur stundað hlaup í mörg ár og keppt í götu- og utan­vegahlaupum. The Puffin Run fór fram í Vestmanna­eyjum um helgina en þar tapaði Rannveig brautar­meti sínu í hendur Andreu Kolbeins­dóttur. Og það var ekkert smá bæting á metinu en hún bætti það um heilar átta mínútur. Þrátt fyrir þetta fjallaði mbl.is nánast einungis um sigurvegara karla­flokks.

„Mikið svakalega er ég orðin þreytt á þessari kynja­slagsíðu í íþrótta­fréttum er virkilega ekki hægt að breyta þessu?

The Puffin Run fór fram í Vestmanna­eyjum um helgina og þar tapaði ég einu brautar­metinu enn í hendur Andreu Kolbeins­dóttur. Þessi frábæra íþrótta­kona gerði sér lítið fyrir og bætti metið mitt frá því í fyrra um heilar átta mínútur! Umfjöllun

mbl.is

um hlaupið er hins vegar skólabókar­dæmi um frétt sem er skrifuð eftir gamalli uppskrift þar sem afrek konunnar er aðeins neðan­málsgrein í umfjöllun um afrek sigurvegara karla­flokksins. Í fréttinni er tími Arnars tilgreindur og fram kemur hve mikið hann bætti brautar­metið (um tæpar fimm mínútur) og hver átti það fyrir. Þá er vitnað í viðtal við Arnar sem segir frá þátttöku sinni í hlaupinu. Fréttinni fylgja þrjár myndir, ein af Arnari, ein af honum og fleiri hlaupurum (þar sem Andrea er jú líka) og skjáskot af instagram­færslu Arnars. Afrek Andreu er afgreitt í einni málsgrein: „Andrea Kol­beins­dótt­ir varð hlut­skörp­ust kvenna í 20 km hlaup­inu með tím­ann 01:26:24“. Til hamingju Andrea Kolbeins­dóttir með frábæran árangur -og að sjálfsögðu til hamingju líka Arnar Pétursson. Það er ekki þér að kenna hvernig fjölmiðla­menn kjósa að matreiða úrsitin ofan í lesendur.“

Hátt í þrjúhundrað manns hefur líkað við færslu og hátt í þrjátíu skrifað athuga­semdir við hana þar sem fólk sýnir stuðning sinn.

Ef umfjöllun Stöðvar 2 um mótið er skoðuð má sjá að sama kynja­slagsíða er til staðar þar á bæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur