Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Misnotkunin hófst átta ára: „Ég var útskúfuð frá bænum og fólk öskraði á mig”

Lilja Bjarklind Kristins­dóttir, 29 ólst upp í Garði í Suður­nesjabæ og var nýorðin átta ára þegar karlmaður á sextugsaldri byrjaði að brjóta á henni kynferðis­lega. Hann hélt áfram að brjóta á henni næstu tvö árin og var seinna dæmdur fyrir brot sín gegn henni. Lilja var gestur Eddu Falak í hlaðvarps­þættinum Eigin Konur.

Hann byrjaði í sambandi með móður hennar og ákvað Lilja að segja frá þegar móðir hennar spurði hvað henni þætti um að kærasti hennar myndi flytja inn. Hún er þakklát móður sinni fyrir að hafa trúað sér og þær kærðu manninn. En þá tók við annað áfall, viðbrögðin frá nærsamfélaginu í Garðinum og útskúfunin. Lilja, sem þá var ellefu ára gömul, var kölluð athyglis­sjúk og lygari, af fólkinu í bænum.

Lilja segir að samfélagið í Garðinum hefði snúist gegn henni og móður hennar, og enn í dag finnur hún fyrir útskúfun frá bæjarbúum og segir að hún hefur aldrei fengið afsökunar­beiðni, þó svo að maðurinn hefði verið dæmdur til átján mánaða fangelsis­vistar. Hann sat aðeins inni í sex mánuði.

Við vörum við lýsingum á kynferðis­ofbeldi hér að neðan.

„Hér er ör, hér er sprunga, og fleiri ör“

Þegar Lilja var nýorðin átta ára var hún gangandi á leiðinni í samkomuhús bæjarins þegar maðurinn bauð henni far, þetta var í fyrsta skipti sem maðurinn braut á henni en ekki það síðasta. „Þá byrjaði þetta að vera reglulegt, hann keyrði um bæinn og leitaði að mér,“ segir hún og bætir við að oft hefði hann einnig farið með hana heim til sín.

Hann bjó þá með móður sinni, sem fannst ekkert athugunar­vert að sonur hennar væri að koma heim með átta ára stelpu.

„[Mamma hans] gaf mér kakó, ekkert áhugavert fyrir henni. Stundum fórum við inn á neðri hæðina þar sem hann var, og stundum fórum við inn í gegnum aðal­innganginn uppi, en ég vildi oft fá að heilsa upp á mömmu hans til að kaupa aðeins meiri tíma,“ segir hún.

Líkamsskoðun í Barnahúsi

Lilja rifjar upp líkams­skoðunina sem hún þurfti að gangast undir í Barnahúsi eftir að hún sagði frá. Hún lá á skoðunar­bekk með teppi yfir sér og hjúkrunar­fræðingurinn rétti henni barnabók til að lesa. Móðir hennar var með henni.

„[Mamma] stóð við hliðina á mér og heyrði hjúkrunar­fræðinginn segja: „Hér er ör, hér er sprunga, og fleiri ör.“ Mamma var svo stressuð og ég var að reyna að hughreysta hana, ég var að reyna að vera dugleg fyrir hana. Pældu í því að vera móðir og heyra hjúkrunar­fræðing telja þetta upp, og barnið þitt liggur þarna og er að reyna að sannfæra þig um að allt sé í lagi,“ segir hún.

Útskúfuð frá bænum

Lilja ákvað að stíga fram með sína sögu vegna umræðunnar um kynferðis­brot eftir seinni bylgju #MeToo. Hún segir að hún hefði tekið eftir sömu gerenda­meðvirkni og hún upplifði frá samfélaginu í Garðinum.

„Ég var svo reið því svona var samfélagið við mig, ég fékk að heyra þessi sömu orð,“ segir hún.

„Ég var útskúfuð frá bænum og fólk öskraði á mig þegar ég fór út í búð, ég var bara ellefu/tólf ára” segir hún í þættinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur