Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Telur matsmenn hafa frjálsar hendur: „Ég veit ekki til þess að það sé neinn rammi“

„Þetta er góð spurning,“ sagði Anna María Frímanns­dóttir, aðspurð út í verklag matsmanna í forræðis­málum í viðtali við Mannlíf í morgun. Anna María er framkvæmda­stjóri Sálfræðinga­félags Íslands en hefur Mannlíf nýverið fjallað um forræðismál þar sem Fjölni Þorgeirs­syni athafna­manni var dæmt forræði yfir einu barna sinna.

Bryndís Ásmunds­dóttir, ein barns­móðir Fjölnis sagði nýverið frá meintu grófu ofbeldi sem hún varð fyrir í þættinum Eigin Konur en frásögn hennar var átakanleg og vakti mikla athygli. Í kjölfarið stigu fram tvær aðrar barns­mæður hans, þær Mailinn Soler og Sjöfn Sæmunds­dóttir og lýstu yfir fullum stuðningi við Bryndísi. Þá sögðust þær hafa sömu sögu að segja um meint ofbeldi.

Málið hefur verið mikið til umræðu á samfélags­miðlum og hafa samtökin Líf án ofbeldis gagnrýnt niður­stöðuna í forræðis­málinu harðlega.

Mats­gerðir eru taldar vega þungt í málum sem þessum en virðast sálfræðingar í stöðu matsmanns ekki þurfa að fylgja neinum sérstökum reglum við vinnslu matgerðarinnar.

Sagðist Anna María ekki vita af neinum reglum eða römmum sem þyrfti að fara eftir.
„Þetta er góð spurning, nei veistu það, ég veit ekki til þess að það sé neinn rammi um það hver geti tekið að sér vona mál, hvort það séu einhverjar kröfur eða hvernig hann(sálfræðingurinn) gerir eða hvað hann notar. Kannski er það að einhverju leyti skiljanlegt allavega varðandi matið sjálft af því það getur náttúru­lega farið eftir ýmsu, hvaða tæki og tól þú ert að nota og hvernig þú gerir það, en nei ekki svo eg viti.“
Á Anna María meðal annars við persónu­leika­próf er hún nefnir hvaða tæki og tól sálfræðingar nota en eru til ótal útgáfur af slíkum prófum. Þá hafa persónu­leika­próf verið umdeild og skiptar skoðanir verið um áreiðanleika slíkra prófa.

Taldi Anna María matsmenn hafa frjálsar hendur við vinnslu mats­gerðar.
„Eftir því sem ég best veit já, ég hef ekki heyrt neinar reglur um það að það eigi að gera svona eða hinsegin né heldur að það séu einhverjar kröfur um hverjir taka þetta að sér eftir því sem ég best veit.“
Bætti hún við að hún teldi ekki vera himinn og haf á milli aðferða hvers og eins sálfræðings en þekkti það þó ekki nægilega vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá