Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Apabóla á stjá í Evrópu: „Þetta er eitthvað sem við höfum ekki séð“

Tilfelli apabólu hafa undan­farið tekið að greinast í Evrópu, en um er að ræða veiru skylda bólusótt. Enn er ekki mikið vitað um veiruna en hún er algengust á afskekktum svæðum í Mið- og Vestur Afríku. Smit annarsstaðar tengjast yfirleitt ferða­lögum þangað. DV greindi frá málinu í gærmorgun.

Þórólfur Guðnason, sóttvarna­læknir, telur Íslendinga ekki þurfa að hafa stórar áhyggjur af apabólu enn sem komið er.

„Ekki stórar áhyggjur en þetta er mjög óvenjulegt og eitthvað sem við þurfum að fylgjast með og vara fólk við og sérstak­lega lækna, varðandi greininguna á þessu. Þetta er eitthvað sem við höfum ekki séð og hefur ekki sést í Evrópu og Ameríku, þannig að þetta er eiginlega svolítið nýtt,“ segir Þórólfur í samtali við frétta­stofu RÚV.

Undan­farið hafa níu tilfelli apabólu greinst í Bretlandi. Veiran hefur einnig greinst á Spáni og í Portúgal. Verið er að rannsaka hugsanleg tilfelli á Ítalíu, í Frakk­landi, Svíþjóð og Ástralíu.

Þórólfur segir veiruna fyrst og fremst smitast með snertismiti. „Þetta eru líka öndunarfæra­smit þannig að ef að smitaðir einstaklingar eru að koma erlendis frá, þá gætu þeir hugsanlega smitað aðra,“ segir hann. Þórólfur segir veiruna ekki virðast mjög smitandi en að enn eigi frekari upplýsingar eftir að berast um hegðun hennar.

Enn sem komið er virðist ekki um alvarlegar sýkingar að ræða. Sjúkdóms­einkenni eru oftast sögð mild og að fólk nái sér innan fárra vikna frá smiti.

„Það er ánægjulegt því það er ekki til nein fyrir­byggjandi meðferð, engin bóluefni eða slíkt. En ég á nú ekki von á því að þetta verði að útbreiddum faraldri,“ segir sóttvarna­læknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur