Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Áslaug Arna: „Ég vonast til þess að geta opnað dyrnar og hleypt inn súrefni til nýsköpunar“

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra greindi í dag frá þeirri ákvörðun sinni að styrkja sérstak­lega innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðis­þjónustu. Fyrsta skrefið væri að úthluta 60 m.kr. sem einungis væru ætlaðar til innleiðingar á nýjum lausnum sem auka gæði og hagkvæmni heilbrigðis­þjónustu.

Áslaug Arna upplýsti um þetta við kynningu á nýju ráðuneyti við upphaf Nýsköpunar­viku í hádeginu í dag. Fram kom að árlega færu um 30 milljarðar í nýsköpun en erfiðlega hefði gengið fyrir mörg nýsköpunar­fyrirtæki að innleiða lausnir sína í heilbrigðis­þjónustu.

Styrk­veitingin verður háð því skilyrði að nýsköpunar­fyrirtækin eigi í nánu samstarfi við stofnanir eða fyrirtæki í heilbrigðis­þjónustu sem skuld­binda sig við að innleiða þá nýsköpun sem styrkur er sóttur um í. Lögð verður sérstök áhersla á að styðja við samstarf milli hins opinbera og einka­aðila um land allt.

Ekki nóg að fjárfesta í nýsköpun ef þær eru ekki nýttar

Ráðherra sagði að ekki væri nóg að fjárfesta í nýsköpun ef þær eru ekki nýttar í íslensku samfélagi.

„Við eigum að nota hugvit og nýsköpun til að efla heilbrigðis­kerfið með hagkvæmum hætti.  Eftir að hafa fundað með fjölda frumkvöðla blasir við að veggir hins opinbera eru of háir og lokaðir fyrir hugmyndum nýsköpunar­fyrirtækja. Þetta skýtur skökku við þegar við sem samfélag fjár­festum í nýsköpun fyrir um 30 milljarða en nýtum ekki þær lausnir sem verða til fyrir okkar eigin kerfi.“

Hún bætti því við að málið væri brýnt því spár um vöxt Land­spítalans fram til ársins 2040 sýndu að vegna öldunar þjóðarinnar stefndi í að starfs­fólki spítalans ætti eftir að fjölga um 45% ef reksturinn væri óbreyttur. Jafnframt sýndi greining McKinsey fyrir­tækisins að við óbreyttar aðstæður ætti rekstrar­kostnaður spítalans eftir að aukast um 90%. Greining McKinsey sýndi hins vegar að ef reksturinn yrði lagaður með nýjum ferlum og umfram allt stafrænum lausnum og nýsköpun þá myndi þessi gríðar­lega aukning þjónustu ekki leiða til nema 3% fjölgunar starfs­fólks og um 30% hækkunar heildar­kostnaðar árið 2040.

Opna dyrnar og hleypa inn súrefni til nýsköpunar

„Lykillinn að því að fjölga starfs­fólki einungis um 3% í stað 45% er hugvitið. Þessari þróun verður ekki breytt án nýsköpunar, tækni og stafrænna lausna,“ sagði Áslaug Arna í ræðu sinni.

„Þrátt fyrir að erfiðlega hafi gengið fyrir nýsköpunar­fyrirtæki að koma á samstarfi við heilbrigðis­kerfið er ég sannfærð um að áhugi fólks innan heilbrigðis­kerfisins sé samt sem áður til staðar, en með þessu vonast ég til þess að geta opnað dyrnar og hleypt inn súrefni til nýsköpunar. Þetta er bara fyrsta skrefið því ef vel gengur munum við fara í mun fleiri sambærileg verkefni.“

Fram kom í máli ráðherra að styrkirnir yrðu auglýstir á næstu vikum með það að markmiði að fyrsta úthlutun gæti átt sér stað í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur