Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hin guðdómlega Gdansk

Gdansk byggir á gömlum merg en er samt nýtísku­leg borg og með öll nútíma­þæg­indi.

Hin guðdómlega Gdansk
|||

Það eru ef til vill öfug­mæli að segja ,,þessi litla borg“ Gdansk við Eystra­saltið, þegar íbúa­fjöldi hennar er meiri en íbúar Íslands til sam­ans, en alls eru íbúar Gdansk 480.000 og það er margt sem kemur á óvart í heim­sókn til borg­ar­innar. Hún er með stærstu borgum Póllands.

Maturinn í Gdansk er á alþjóð­legum mæli­kvarða, njótið alls hins besta í lúx­us­mat­ar­gerð.

Gdansk, sem er kölluð Danzig á þýsku, er hafn­ar­borg við Eystra­saltið, við mynni árinnar Motlawa, og ein af elstu borgum Póllands, en upp­haf hennar má rekja til 7.-10. aldar e. Kr., það er ekki nákvæmt. Saga hennar er þyrnum stráð og hefur hún lotið mörgum herrum og má þar nefna Prússa, Svía og Dani að ógleymdu Þjóð­verjum en endrum og eins voru yfir­ráðin yfir eigin landi í höndum borg­ar­búa.

Eftir fyrri heims­styrj­öld­ina varð til frí­ríkið Danzig, ríki sem var undir vernd­ar­væng Þjóða­banda­lags­ins. Íbúar Gdansk urðu þeir fyrstu til að verða fyrir árásum Þjóð­verja í heims­styrj­öld­inni síð­ari þegar Þjóð­verjar réð­ust á Wsterplatte-skag­ann í Gdansk. Til að gera langa sögu stutta þá rúst­uðu stríðs­herrar í heims­styrj­öld­inni síð­ari, bæði Þjóð­verjar og Rússar, Gdansk og fleiri stöðum í Póllandi.

… flestir mat­sölu­staðir bjóða upp á frá­bæran alþjóð­legan mat­seðil, þar sem metn­að­ur­inn er ekki bara lagður í gott hrá­efni, heldur fram­úr­skar­andi fram­reiðslu og smekk­vísi.

En Pól­verjar voru ákveðnir í að byggja landið sitt stríðs­hrjáða upp að nýju og það tók allt að 30 ár að stærstum hluta og þeir eru enn að. Þess má sjá merki í fal­legum arki­tektúr í flæmskum og hol­lenskum stíl og í stíl sem er jafn­vel undir ítölskum og frönskum áhrifum. Húsin í mið­bænum eru ekki ólík þeim sem sjá má í Amster­dam en einnig í nýtísku­legri mynd utan mið­bæj­ar­ins. Enn í dag er borgin fyrst og fremst hafnar- og iðn­að­ar­borg, þar sem verslun er einnig áber­andi. Öllum þýskum götu­nöfnum hefur þó verið breytt í pólsk en þrátt fyrir að í gegnum tíð­ina hafi ýmis þjóð­ar­brot búið í Póllandi er þessi um 40 millj­óna þjóð í dag að stærstum hluta Pól­verjar en rétt­indi minni­hluta­hópa eru tryggð í stjórn­ar­skrá lands­ins.

Sólarstrendur og ógleymanlegur matur

En Gdansk á sér margar hliðar, hliðar sem fáir Íslend­ingar gera sér grein fyrir. Hún byggir á gömlum merg en er samt nýtísku­leg og með öll nútíma­þæg­indi. Það er ekki annað að sjá en að íbúar Gdansk séu ágæt­lega á veg komnir og vel til fara, borgin er hrein og fín og fólkið er afar almenni­legt þótt það tali tak­mark­aða ensku en allt af vilja gert til að hjálpa og aðstoða. Og Gdansk-búar eru sann­ar­lega lista­menn, til dæmis þegar um er að ræða skart­gripi úr amber-stein­inum, gul-og græn­lit­uðum steinum sem ber­ast á strendur Gdansk og hafa verið not­aðir til lækn­inga í aldir. Þessir steinar eiga að vera orku­jafn­andi fyrir lík­amann.

Það er ynd­is­legt að sóla sig á sumrin í Gdansk.

Borgin býr einnig yfir sjald­gæfum eig­in­leika, þar er nefni­lega að finna þessa fínu sand­strönd, þar sem hægt er að rekast á amber-steina. Hún er eins og besta sól­ar­strönd enda vin­sæl hjá bæði íbúum og ferða­mönnum yfir sum­ar­tím­ann. Sumrin eru heit, allt að 25-35° C en svali berst frá haf­inu.

Veturnir eru kald­ari en þó mildir og í októ­ber­mán­uði er jafn­vel hægt að borða úti en mjög margir veit­inga­staðir bjóða upp á það og eru þá með arin­eld sem hægt er að hlýja sér við. Það er helst í jan­úar og febr­úar að hita­stigið fari niður fyrir frost­mark en þá er líka til­valið að stunda ýmsar vetr­ar­í­þróttir.

Þá erum við komin að enn einni snilld­inni hjá Gdnask-búum en það er að elda mat. Bæði er hægt að smakka pólskan mat og það er mjög skemmti­legt þótt hann sé ekki allra og flestir mat­sölu­staðir bjóða upp á frá­bæran alþjóð­legan mat­seðil, þar sem metn­að­ur­inn er ekki bara lagður í gott hrá­efni, heldur fram­úr­skar­andi fram­reiðslu og smekk­vísi – svo mat­ur­inn bragð­ast enn betur fyrir vikið og ekki skemmir fyrir að sæl­kera­mál­tíðin kostar Íslend­ing­inn næstum ekki neitt. Sem dæmi má nefna að for­réttur á fínum veit­inga­stað og nauta­steik eða önd í aðal­rétt með glasi af rauð­víni húss­ins og sóda­vatni er frá 4.000-5.000 kr.

Göngutúr með fram ánni, þar sem margir af bestu veit­inga­stöð­unum setja svo vit­an­lega punkt­ur­inn yfir i-ið, hvort sem um er að ræða róm­an­tíska ferð, árs­há­tíð­ar­ferð eða bara ferða­lag með vinum eða vin­konum.

Að njóta lífsins í spa

Ertu þreytt/ur? Þarftu að end­ur­nýja lífs­ork­una eða bara jafna orkuflæðið? Þá er spa-ið í Gdansk eitt­hvað fyrir þig! Klass­ískt nudd, fóta­nudd, hand­snyrt­ing, sána, allt fæst þetta á fjöl­mörgum hót­elum í Gdansk og líka ann­ars staðar fyrir allt að helm­ingi lægra verð en hér heima (spa á hót­el­unum er yfir­leitt aðeins dýr­ara en ann­ars staðar staðar í borg­inni en það er þægi­legt að geta brugðið sér í ein­hverja af þeim fjöl­mörgum spa-með­ferðum sem í boði eru á hót­el­inu sem eru oft á fjög­urra stjarna hót­elum en gist­ing á slíkum hót­elum eru einnig á góðu verði í borg­inni).

Gdansk er borgin til þess að hvíla sig í, slaka á og gera vel við sig í mat og drykk. Það er líka vel þess virði að heim­sækja spa-bæinn Sopot sem er ekki langt frá Gdansk. Gdansk-búar, eru yfir­veg­aðir og rólegir og það er ekki mik­ill asi á þeim. Áreitið í borg­inni er lítið en afar gaman er að ganga um í gamla bænum með fal­legu hús­unum og óreglu­legu hellu­lögn­unum. Þar eru

Gdansk-búar eiga sitt ,,London Eye“ þótt það sé aðeins minna í sniðum en í London þá er hægt að fá góða sýn yfir borg­ina.

margir með sölu­tjöld og selja flestir amber-steina í margs konar skart­gripum. Sölumenn eru ekki ágengir og alltaf kurt­eisir, svo það er hægt að skoða án þess að fá sam­visku­bit yfir að kaupa ekki. Þar eru líka fal­legar gler- og leir­list­ar­versl­anir.

Þá er kaffið sem fæst á kaffi­hús­unum allt um kring mjög sterkt og gott en þar er líka hægt að fá ýmsa drykki og jafn­vel kok­teila sem kosta frá 300-600 kr. Fyrir þá sem eru að leita að aðeins meira fjöri þá er hægt að þefa uppi gott næt­ur­líf í Gdansk.

Alls konar söfn og skemmtilegheit

Það er svo margt sem hægt er að gera í Gdansk – en allt í róleg­heitum. Á sumrin er vin­sælt að fara á strönd­ina og allan árs­ins hring er hægt að hjóla og hlaupa í fal­legu umhverfi borg­ar­innar. Í haust- eða vetr­ar­ferð er hægt að kíkja á lista­verkin í The National Museum en þar má m.a. líta pólska og hol­lenska mál­ara. Það sama á við um Gdansk History Museum, skemmti­legt safn um sögu Gdansk og Old Town Hall. Á kvöldin er hægt að skella sér á tón­leika í Shakespe­are-leik­hús­inu, því ekki er hægt að saka þá Gdansk-búa um að vera snauðir af menn­ingu. Leik­húsið er stolt borg­ar­innar og ekki síður talið skemmtun fyrir gesti þess. Þá eru ónefndar afskap­lega fal­legar kirkjur í borg­inni, fyrir þá sem hafa gaman af að skoða þær og nota tæki­færið til að kveikja á kerti fyrir látna ást­vini.

Gdansk er borgin til þess að hvíla sig í, slaka á og gera vel við sig í mat og drykk. Það er líka vel þess virði að heim­sækja spa-bæinn Sopot sem er ekki langt frá Gdansk.

Ef þú ert á fjöl­skyldu­ferða­lagi eru það vita­skuld strend­urnar sem heilla á sumrin en svo margt annað líka. Börnum þykir ferð á Sjó­minja­safnið eft­ir­minni­leg (National Maritime Museum) sem er einmitt í skipi og hjálpar börnum að skilja leynd­ar­dóma sæfar­ana, sjáv­ar­vinda og fleira. Þá er hægt að fara í sigl­ingu með ,,sjó­ræn­ingja­báti um ána, að ógleymdu ,,aug­anu“ þeirra Gdansk-búa, sem er líkt og London Eye en aðeins minna. Í því er gott útsýni yfir borg­ina alla og það sem er að ger­ast þar.

Börnum finnst ef til vill ekk­ert sér­stak­lega gaman að fara í versl­un­ar­mið­stöðvar – og þó – þar eru margar spenn­andi barna- og ung­linga­búðir og kringl­urnar í Gdansk eru stærri en okkar með öllum helstu alþjóð­legu versl­unum. Sem dæmi um þá helstu er Baltycka Shopping Center.

Höfundur / Unnur H. Jóhanns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi