Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tíu ár án Heath Ledger

Tíu ár án Heath Ledger
||

Leik­ar­inn Heath Ledger fannst lát­inn í íbúð sinni á Man­hattan í New York þann 22. jan­úar árið 2008, aðeins 28 ára að aldri. Allir fjöl­miðlar fyllt­ust af fréttum af and­láti hans, en hann lést úr of stórum skammti af lyf­seð­ils­skyldum lyfjum.

Heim­ur­inn stóð á önd­inni, sér­stak­lega í ljósi þess að aðeins nokkrir mán­uðir voru í frum­sýn­ingu myndar sem myndi gjör­breyta hans ferli; The Dark Kinght. Heath fór með hlut­verk Jókerins, per­sónu sem flestir höfðu tengt við Jack Nicholson síðan hann túlk­aði þennan skraut­lega karakter í Batman árið 1989. Heath hins vegar gerði per­són­una algjör­lega að sinni, og svo fór að hann hlaut Ósk­arsverð­laun fyrir frammi­stöðu sína á Ósk­arsverð­laun­unum árið 2009. Með því varð hann önnur mann­eskjan til að vinna Óskarinn eftir and­lát, en sá fyrsti var leik­ar­inn Peter Finch sem vann fyrir frammi­stöðu sína í Network árið 1976.

Ómögu­legt er að segja hvaða stefnu fer­ill geð­þekka, ástr­alska leik­ar­ans hefði tekið ef hann væri á lífi í dag en ljóst er að hann skipar sér í raðir goð­sagna á borð við Marilyn Monroe, Bruce Lee og James Dean, lista­manna sem yfir­gáfu þetta jarð­neska líf alltof snemma.

Heath sem hjartaknús­ar­inn Patrick í 10 Things I Hate About You.

Óttalaus í hlutverkavali

Heath virt­ist vera ótta­laus í vali sínu á verk­efnum. Hann sló í gegn í Hollywood í kvik­mynd­inni 10 Things I Hate About You árið 1999, aðeins tví­tugur að aldri. Þá strax var ljóst að stjarna var fædd þar sem hann bjó ekki aðeins yfir gíf­ur­legum sjarma á hvítu tjald­inu heldur sýndi einnig að hann bjó yfir hæfi­leika til að túlka trú­verð­ugar mann­eskjur sem náðu til áhorf­enda.

Meðal ann­arra mynda sem hann stal sen­unni í voru The Patriot, Monsters Ball og Knight’s Tale. Árið 2005 urðu síðan þátta­skil á hans ferli þegar hann tók að sér hlut­verk Ennis Del Mar í kvik­mynd Ang Lee, Brokeback Mountain. Er það mat manna að þetta hafi verið ansi djarft val hjá Heath eftir aðeins sex ár í Hollywood-brans­anum. Þó að myndin hafi fengið ein­róma lof gagn­rýnenda þá vakti hún hins vegar upp mikla for­dóma í mörgum áhorf­endum og var af ein­hverjum kölluð myndin um sam­kyn­hneigðu kúrek­ana. Heath og með­leik­arar hans, Jake Gyl­len­haal og Michelle Williams voru rómuð fyrir leik sinn og fékk Heath til að mynda til­nefn­ingu til Ósk­arsverð­laun­anna sem besti leik­ari í aðal­hlut­verki.

Þetta hlut­verk Heath varð hins vegar til þess að ekki voru allir á eitt sáttir þegar til­kynnt var að hann myndi túlka Jókerinn í The Dark Knight. Warner Bros-kvik­mynda­verið fékk á sig mikla árás og dundu hat­ur­s­póst­arnir og hat­urs­full orð­ræða um sam­kyn­hneigða yfir kvik­mynda­verið þegar ljóst var um ráðn­ingu Heath.

Heath sló í gegn í Brokeback Mountain.

Matilda og Michelle

Það má líka segja að hlut­verkið í Brokeback Mountain hafi verið mikil blessun fyrir leik­ar­ann sál­uga því það var á setti þeirrar myndar sem hann kynnt­ist leikkon­unni Michelle Williams. Þau byrj­uðu í fram­hald­inu saman og í októ­ber árið 2005 eign­uð­ust þau dótt­ur­ina Matilda Rose. Árið 2007 hættu þau saman en í nýlegu við­tali við tíma­ritið Porter sagð­ist Michelle enn eiga erfitt með að sætta sig við and­lát Heaths.

„Í hrein­skilni sagt, í nán­ast hvaða kring­um­stæðum sem er, trúi ég að maður þurfi að sætta sig við hver maður er og hvar maður hefur verið. Í nán­ast öllum kring­um­stæðum nema einum; ég get ekki hugsað svona þegar ég hugsa um að Matilda eigi ekki föður. Það er bara eitt­hvað sem verður aldrei rétt­látt.“

Heath Ledger átti alltaf erfitt með að vera í sviðs­ljós­inu, sem útskýrir af hverju hann hafn­aði stórum hlut­verkum eins og í Spider-Man árið 2002, en þá er ein­ungis hægt að ímynda sér hvaða hlut­verk hann hefði tekið að sér til dags­ins í dag. Ljóst er að leik­ar­inn setti sitt var­an­lega mark á kvik­mynda­heim­inn og lifir enn í hjörtum aðdá­enda sinna um heim allan.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco