Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Töfraseyði og ætileg blóm á nýjum bar

Hjónin Íris Ann Sig­urð­ar­dóttir og Lucas Keller létu drauma sína ræt­ast þegar þau ákváðu að opna veit­inga- og sæl­ker­a­stað­inn Coocoo´s Nest út á Granda og bráðum munu þau einnig opna spenn­andi og sér­stæðan bar. Hjónin kynnt­ust á Ítalíu á sínum tíma. Lucas er frá Kali­forníu og var að læra mat­reiðslu og Íris Ann var að læra ljós­myndun og sjón­list. Saman eiga þau tvo dásam­lega stráka, Indigo, þriggja ára og Sky, fimm ára.

Töfraseyði og ætileg blóm á nýjum bar
Íris Ann Sig­urð­ars­dóttir og Lucas Keller, eig­endur Coocoo´s Nest, ásamt sonum sínum Indigo, þriggja ára og Sky, fimm ára.

Hver er sagan að bak við til­urð fyr­ir­tæk­is­ins ykkar og vali á stað­setn­ing­unni? „Við vorum með svip­aða drauma um að opna svona „konsept“ sem við sam­ein­uðum. Einn af draumum Lucasar var meðal ann­ars að taka þátt í upp­bygg­ingu á nýju hverfi og því gat þessi stað­setn­ing ekki verið betri.“

Þið hafið skapað ykkur ákveðna sér­stöðu með ykkar fram­reiðslu á Coocoo´s Nest og vakið athygli fyrir, hver eru ykkar áherslur og mark­mið? „Það skiptir okkur miklu máli að vera sam­kvæm sjálfum okkur og svo erum við mjög með­vituð um að vera eins vist­væn og hægt er. Lucas er mjög ástríðu­fullur kokkur og sleppur engum skrefum í sinni fram­leiðslu. Gæða­hrá­efni og að vinna hrá­efni frá grunni er okkar sér­staða á The Coocoo’s Nest.

Hvernig myndir þú lýsa staðnum og fram­tíð­ar­sýn ykkar? „Við myndum lýsa staðnum sem sama­stað þar sem allir eru vel­komnir og allir eru jafnir. Við elskum að láta okkur dreyma enda var það byrj­unin á þessu ævin­týri að lofa okkur að dreyma, meira segja þegar maður vissi ekki hvernig maður myndi fram­kvæma þá drauma, það er partur af galdr­inum.“

Á þessum bar verða seld blóm, plöntur og önnur fal­lega smávara eins og krist­allar og annað úr kuklheim­inum.

Við höfum heyrt að þið hafið hug á því að stækka? „Það er lang­þráður draumur að ræt­ast en við erum að fara opna bar í blóma sem heitir Luna Flórens – þar munu ýmis per­sónu­leg áhuga­mál mín fá að blómstra. Á þessum bar verða seld blóm, plöntur og önnur fal­lega smávara eins og krist­allar og annað úr kuklheim­inum. Við verðum með holla spírusafa og æti­leg blóm – við munum svo túlka í kok­teil­ana okkar þegar líða fer að kveldi. Vinkona okkar, mat­ar­stílisti með meiru, hún Áslaug Snorra mun koma til með að aðstoða okkur við að und­ir­búa töfra­seyðin sem verða í boði. Þessi staður verður tengdur núver­andi rekstri og mun því styðja við hann og bjóða upp á ýmsa mögu­leika. Svo erum við með nokkrar aðrar hug­myndir sem okkur langar að fram­kvæma en þá er alltaf spurn­ing um stað og stund.“

Coocoo´s Nest er hlý­legur veit­inga­staður úti á Granda.

Leggið þið sér­staka áherslu á umhverf­is­væna fram­reiðslu? „Takk fyrir þessa spurn­ingu. Við erum mjög með­vituð um okkar kolefn­is­spor og þá ábyrgð sem fylgir því að eiga fyr­ir­tæki. Við erum sífellt að læra eitt­hvað nýtt hvað það varðar og reyna taka fleiri skref í rétta átt. Við flokkum flestallt plast og pappír og erum með líf­ræna tunnu fyrir mat­ar­af­ganga og fyrir líf­rænu serví­ett­urnar okkar. Við flokkum einnig spritt­kerti, málm­tapp­ana sem fylgja gos­inu, allt gler og erum með maís rör í stað­inn fyrir plast. Öll þessi litlu skref telja. Einnig lærði Lucas ýmis­legt þegar hann vann um tíma á Michelin-stjörnu græn­met­is­stað á Ítalíu þar sem var lítil sem engin mat­ar­sóun og lögð áhersla á að nýta alla mat­ar­af­ganga á frum­legan og bragð­góðan hátt.“

Flest starfs­fólk þeirra Írisar Ann og Lucasar hefur verið með þeim meira og minna frá upp­hafi.

Stað­ur­inn ykkar heillar, er afar sjar­mer­andi og fangar augað. Getur þú sagt okkur aðeins frá hug­sjónum ykkar og lífs­stíl? „Okkar hug­sjón og lífs­stíll er bara að lifa í núinu og njóta augna­bliks­ins.“

Vin­sæl­asti rétt­ur­inn? „Það fer alveg eftir því hvern þú spyrð. Brunchinn okkar er sívin­sæll en svo eru súr­deigs-pizzurnar okkar, Deli hádeg­i­seð­ill­inn okkar eða Taco Tuesday ekki síðri. Einnig bjóðum við upp á skemmti­legt Happy Hour sem kall­ast Aperitivo og virkar þannig að þú færð smá­smakk með drykknum þínum. Þeir sem þekkja vel til Ítalíu finnst mjög gaman að finna þessa hefð líka hér á landi.“

Fram­tíð­ar­sýn ykkar? „Á meðan við látum draumana ræt­ast í vinnu­heim­inum þá er fram­tíð­ar­sýn okkar að skapa einnig þannig umhverfi að maður geti notið þess að lifa þessu lífi. Mikið er rætt um kulnun þessa dag­ana og við teljum það mik­il­vægt að jarð­tengja okkur og eyða meiri tíma saman og í nátt­úr­unni. Það er því í fram­tíð­ar­plan­inu að eign­ast smá­vegis land þar sem við getum kom­ist meira í kyrrð­ina og jafn­vel þróað sjálf­bæran lífs­stíl á þeim stað. Við Lucas erum bæði lista­menn og myndum vilja hafa svig­rúm til að sinna því meira.“

Það er gaman að nefna það að flest starfs­fólk þeirra Írisar Ann og Lucasar hefur verið með þeim meira og minna frá upp­hafi. „Við erum ótrú­lega þakk­lát það. Svo vil ég gjarnan senda kær­leiks­kveðju á fastakúnna okkar og bestu nágranna sem hægt er að hugsa sér. The Coocoo’s Nest er miklu meira en bara rekstur, við erum ein stór fjöl­skylda,“ segir Íris Ann með bros á vör.

Myndir/ Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur