Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Eins og hjá stórri ítalskri fjölskyldu

Heimili er þar sem allir sitja saman við mat­ar­borðið.

Eins og hjá stórri ítalskri fjölskyldu

Páll Þór­ólfs­son er lög­giltur fast­eigna­sali hjá fast­eigna­söl­unni Miklu­borg. Hann er giftur Katrínu Rós Gunn­ars­dóttur og eiga þau þrjú börn saman, Aron Dag tutt­ugu og eins árs, Gunnar Hrafn, sextán ára og Sóleyju Lind, sjö ára.

Hvað heillar þig mest við starfið?
„Það sem heillar mig mest er hversu fjöl­breytt það er, ég hef alltaf haft mjög gaman af fólki og í þess­ari vinnu er maður alltaf að hitta nýtt fólk með nýjar áskor­anir. Starfið bíður upp á tals­verðan sveigj­an­leika og frjáls­ræði en á móti kemur þá er þetta ekki hefð­bundin 9-5 vinna og yfir­leitt hægt að ná í mann á öllum tímum dags­ins. Fast­eigna­við­skipti eru yfir­leitt stærstu við­skipti sem „venju­legt“ fólk á um ævina og það er alltaf mjög gaman og gef­andi þegar maður getur hjálpað fólki að láta hlut­ina ganga upp.“

Geturðu lýst hefð­bundnum vinnu­degi hjá þér?
„Ég reyni að byrja dag­inn á að fara í rækt­ina um þrisvar sinnum viku, ann­ars er alltaf svo­lítið fjör á mínu heim­ili á morgn­ana, koma öllum af stað, viðra hund­inn, gera nesti og svo fram­vegis. En ég byrja alltaf á einum góðum kaffi­bolla þegar ég mæti í vinn­una. Dagarnir eru ansi fjöl­breyttir þegar í vinn­una er komið. Eðli máls­ins sam­kvæmt þá snýst starf fasteiga­sal­ans um sam­skipti við kaup­endur og selj­endur og lengd vinnu­dags­ins tekur mið af verk­efna­stöð­unni hverju sinni.“

Hvað er það sem þér finnst gera heim­ili að heim­ili?
„Heimili er í mínu huga allir þessir venju­legu hlutir eins og til dæmis þegar við Katrín, náum öllum börn­unum og jafn­vel nokkrum vinum í góðan kvöld­mat þar sem allir sitja saman við mat­ar­borðið eins og hjá stórri ítal­skri fjöl­skyldu. Mér finnst líka mjög kósí og heim­il­is­legt þegar við strák­arnir á heim­il­inu liggjum uppi í sófa og horfum á eitt­hvað spenn­andi íþrótta­tengt í sjón­varp­inu.“

„Mér finnst líka mjög kósí og heim­il­is­legt þegar við strák­arnir á heim­il­inu liggjum uppi í sófa og horfum á eitt­hvað spenn­andi íþrótta­tengt í sjón­varp­inu.“

Geturðu líst þínum stíl? „Eig­in­lega ekki. Ætli ég sé ekki bara ósköp „venju­legur“, hef gaman af því að hafa fal­lega hluti í kringum mig en get ekki sagt að ég hafi ein­hvern sér­stakan stíl.“

Áttu þinn upp­á­halds­arki­tekt?
„Hef satt að segja ekki hugsað mikið út í það en Páll Gunn­laugs­son hjá ASK arki­tektar er topp­maður í alla staði.“

Áttu þinn upp­á­halds­hönnuð?
„Verð að við­ur­kenna að ég þekki nú ekki nöfnin á þessum snill­ingum en mér finnst mjög gaman að koma inn í Epal-búð­ina hjá Eyjólfi og Kjartani frændum mínum og svo skilst mér á kon­unni minni að ég sé mjög hrif­inn af Iittala-vörum og Georg Jensen kerta­stjökum.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til?
„Börn sem eru betri en ég í íþróttum,“ segir Páll og hlær.

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn?
„Liverpool-rauður.“

Hvar líður þér best?
„Til dæmis á sund­laug­ar­bakka ein­hvers staðar í heit­ari löndum, með krakk­ana hopp­andi í laug­ina í kringum mig en ég sjálfur er með heyrna­tól í eyr­unum og hlusta á eitt­hvað gott podcast. Svo er fjári góð til­finn­ing að vera staddur úti á golf­velli í góðu veðri og í góðum félags­skap.“

Hvað heillar þig mest við haustið? Er eitt­hvað sem þú vilt bæta við inn á heim­ilið þegar haustið gengur í garð?
„Mér finnst alltaf góð til­finn­ing þegar rútína hausts­ins tekur við eftir að hafa verið búinn að njóta sum­ars­ins með öllu því sem að því fylgir. Svo verður maður eitt­hvað svo barna­lega þakk­látur ef sólin skín og hita­stigið fer í 10 gráður á þessum árs­tíma á meðan maður blótar jafn­vel slíku veðri yfir hásum­arið. Ekkert haust­tengt svo sem en það stendur til að að gera her­bergið hjá Sóleyju Lind dóttur minni stelpu­legra með til­heyr­andi lita­vali og inn­rétt­ingum.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag?
„Í augna­blik­inu hef ég mjög gaman af nýju Mat­höll­inni úti á Granda, gaman að geta gengið eða hjólað á góðan stað og fengið mér snarl.“

Er ein­hver bygg­ing­ar­stíll sem heillar þig meira enn annar?
„Vel heppnað Funkis-hús heillar alltaf.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … er að minna sig á dag­lega að LÍFIÐ er núna!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur