Harry Bretaprins og Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, eiga von á barni. Í tilkynningu frá Kensington-höll segir að barnið eigi að fæðast næsta vor.
Barnið verður sjöunda í röðinni að bresku krúnunni.
Tilkynning frá Kensington-höll var gefin út í dag en fregnir herma að Harry og Meghan hafi sagt fjölskyldu sinni fréttirnar á föstudaginn, sama dag og Eugenie prinsessa gifti sig.































Athugasemdir