Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tími til aðgerða er að renna út

Ef ekki verður gripið til rót­tækra aðgerða við draga úr hnatt­rænni hlýnun geta afleyð­ingar orðið alvar­legar sam­kvæmt skýrslu sem birt­ist á vegum Loft­lags­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Tími til aðgerða er að renna út

Osaka, Alex­andría, Sjanghæ, Rio de Janeiro og Miami munu að fullu eða stórum hluta hverfa undir sæ. Kór­al­rifin deyja end­an­lega út. Svæsnar hita­bylgjur og langvar­andi þurrkar verða algeng­ari sem og felli­bylir sem verða bæði öfl­ugri og bera með sér meiri úrkomu. Sjáv­ar­mál hækkar og Norð­ur­skautið verður íslaust yfir sum­ar­tím­ann. Millj­ónir manna verða á flótta og fátækt stór­eykst. Höfin halda áfram að súrna með til­heyr­andi afla­bresti. Þetta og meira til eru afleið­ing­arnar ef ekki verður gripið til rót­tækra aðgerða við draga úr hnatt­rænni hlýnun, sam­kvæmt skýrslu sem birt­ist á vegum Loft­lags­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Fram kemur í skýrsl­unni að þrátt fyrir kol­svart útlit sé enn tími til að bregð­ast við. Draga þarf úr kolefna­út­blæstri um 45 pró­sent fyrir árið 2030 í stað 20 pró­senta líkt og Par­ís­ar­sátt­mál­inn segir til um. Það sé hægt með sam­hentu átaki rík­is­stjórna, fyr­ir­tækja og ein­stak­linga. Kostn­að­ur­inn við aðgerð­irnar sé veru­legur en þó minni ef ekk­ert verður að gert.

Um hvað fjallar skýrslan?

Skýrslan er ein sú umfangs­mesta sem gerð hefur verið um mál­efnið og er henni ætlað að verða leið­ar­vísir um loft­lags­að­gerðir í náinni fram­tíð. Hún var tvö og hálft ár í smíðum og dregur saman nið­ur­stöður yfir sex þús­und vís­inda­legra rann­sókna. Í skýrsl­unni er dregin upp sviðs­mynd af því hver áhrifin verða af hnatt­rænni hlýnun upp á 1,5 gráður (miðað við hita­stig fyrir iðn­bylt­ingu) og þau borin saman við áhrifin af 2 gráðu hlýnun eins og mark­mið Par­ís­ar­sátt­mál­ans kveða á um. Vert er að taka fram að ríki heims eru langt frá því að upp­fylla ákvæði Par­ís­ar­sátt­mál­ans og að óbreyttu muni hita­stigið hækka um 3 gráður áður en öldin er úti. Það myndi gjör­breyta núver­andi heims­mynd.

Hver eru viðbrögðin?

Það er sam­hljóma nið­ur­staða vís­inda­manna að grípa þarf til mun rót­tæk­ari aðgerða en Par­ís­ar­sátt­mál­inn kveður á um ef ekki á illa að fara. Skýrslan er afdrátt­ar­laus hvað það varðar. Hins vegar hefur verið gagn­rýnt að orða­lag sam­an­tektar skýrsl­unnar sem send var þjóð­ar­leið­togum hafi verið mildað vegna þrýst­ings frá Banda­ríkj­unum, Sádi-Arabíu og fleiri olíu­fram­leiðslu­ríkjum. Skýrslan verður lögð til grund­vallar í kom­andi loft­lags­við­ræðum í Katowice í Póllandi í des­em­ber en erfitt er að sjá að það tak­ist að sann­færa stjórn­mála­menn um að grípa til rót­tæk­ari aðgerða en Par­ís­ar­sátt­mál­inn kveður á um. Þannig hafa stjórn­völd í Ástralíu úti­lokað að hætta kola­fram­leiðslu líkt og lagt er til í skýrsl­unni.

Hvað með Ísland?

Ísland er ekki und­an­skilið áhrifum hnatt­rænnar hlýn­unar. Hitastig hlýnar og jöklar halda áfram að hopa og gangi sviðs­myndir um loft­lags­breyt­ingar eftir gæti Lang­jök­ull tapað 85% af rúm­máli sínu. Samhliða því gæti tíðni eld­gosa auk­ist. Súrnun í hafi mælist meiri umhverfis Ísland en ann­ars staðar og haldi sú þróun áfram getur það haft veru­leg áhrif á fiski­stofna í efna­hags­lög­sög­unni. Vegna auk­inna hlý­inda er við­búið að nýjar dýra­teg­undir nemi land á sama tíma og aðrar hverfa.

Hvað getur þú gert?

Breytt neyslu­hegðun er lyk­il­þáttur í bar­átt­unni gegn hnatt­rænni hlýnun. Til að mynda með því að ganga eða hjóla þegar það er kostur, en að öðrum kosti not­ast við almenn­ings­sam­göngur. Ef nauð­syn­legt þykir að nota bíl að velja þá raf­magns­bíl. Minni neysla skilar sér í minni úrgangi sem síðan er best að end­ur­vinna eða end­ur­nýta. Loks er hægt að ganga í þrýsti­hópa sem beita sér fyrir umbótum og kjósa þá flokka sem eru lík­legir til að ráð­ast í þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco