Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Þá riðu skúrkar um héruð

Þá riðu skúrkar um héruð
||||

HM í knatt­spyrnu hefur getið af sér ógrynni hetja í gegnum tíð­ina. Skúrkar eru þó einnig mik­il­vægir til að halda jafn­vægi í þess­ari risa­vöxnu íþrótta­veislu og gildir þá einu hvort leik­menn skapi sér óvin­sældir með ofbeld­is­verkum, svindli, leik­ara­skap eða ein­fald­lega með því að bregð­ast liðs­fé­lögum sínum þegar mest ríður á. Mannlíf rifj­aði upp nokkra fræga skúrka í sögu HM.

1. Óvinsælli en Hitler

Þýski mark­mað­ur­inn Harald Schumacher, Vestur-Þýska­landi, framdi fólsku­leg­asta brot HM-sög­unnar þegar Þjóð­verjar og Frakkar léku í und­an­úr­slitum á HM á Spáni 1982. Þegar franski varn­ar­mað­ur­inn Batti­ston elti glæsi­lega send­ingu hetj­unnar Michels Platini inn fyrir þýsku vörn­ina tók Schumacher á rás út úr marki sínu í átt að þeim franska, sem varð fyrri til að ná til bolt­ans og skaut naum­lega fram hjá. Mark­verð­inum virt­ist hins vegar vera hjart­an­lega sama um bolt­ann og stökk beint á Batti­ston, sem fékk mjöð­mina og lærið á Schumacher í höf­uðið af ógn­ar­afli og féll með­vit­und­ar­laus til jarðar.

Platini sagð­ist síðar hafa haldið að Batti­ston væri dáinn því hann fann engan púls þegar liðs­fé­lagar og sjúkra­lið stumr­aði yfir honum hrím­hvítum í framan. Á meðan rölti Schumacher í hægðum sínum um víta­teig­inn, sýndi fórn­ar­lambi sínu engan áhuga og virt­ist óþreyju­fullur að taka útsparkið og hefja leik að nýju, því dóm­ari leiks­ins dæmdi ekki einu sinni auka­spyrnu fyrir brotið aug­ljósa og hvað þá verð­skuldað rautt spjald á Schumacher. Knatt­spyrnu­karma virð­ist ekki hafa virkað sér­lega vel þennan ákveðna dag því leiknum lauk með 3-3 jafn­tefli eftir fram­leng­ingu og í víta­keppn­inni, þeirri fyrstu í sögu HM, varði Schumacher tvær víta­spyrnur.

Að leik loknum, þegar Schumacher var tjáð af frétta­mönnum að Batti­ston hefði misst tvær tennur í árásinni, brákað þrjú rif­bein og skemmt hryggjar­lið, grín­að­ist mark­vörð­ur­inn með að hann skyldi með glöðu geði borga fyrir tann­að­gerð fyrir varn­ar­mann­inn úr því hann væri ekki meira slas­aður en svo. Allt hleypti þetta skilj­an­lega illu blóði í þorra knatt­spyrnu­á­huga­fólks og sér í lagi Frakka. Málið vakti svo mikla athygli að þjóð­ar­leið­togar land­anna tveggja, þeir Helmut Kohl og François Mitt­er­and, ræddu það á blaða­manna­fundi til að freista þess að lægja öld­urnar. Í skoð­ana­könnun fransks dag­blaðs skömmu síðar var Schumacher kos­inn óvin­sæl­asti maður Frakk­lands með tals­verðum yfir­burðum. Adolf Hitler, landi mark­varð­ar­ins, varð í öðru sæti í þess­ari sömu könnun.

Batti­ston náði sér að fullu um síðir en þetta ógeð­fellda atvik lit­aði þó feril beggja leik­manna upp frá því og það er kannski það sorg­leg­asta við það, því báðir voru þeir frá­bærir knatt­spyrnu­menn. Þá er einnig leið­in­legt að leiks­ins sjálfs sé fyrst og fremst minnst fyrir fólsku­legt brot en ekki þá stór­kost­legu knatt­spyrnu og gríð­ar­legu spennu sem fram fór á sjálfum vell­inum.

2. Mannætan snýr aftur

Luis Suárez, Uruguay, hefur tekið þátt í tveimur heims­meist­ara­keppnum til þessa. Á lokamín­útu fram­leng­ingar í 8-liða úrslitum HM 2010 í Suður-Afríku varði hann skot Ghana-manns­ins Asamoah Gyan vilj­andi með hendi á marklín­unni og kom þannig í veg fyrir þann sögu­lega atburð að afrískt lands­lið kæm­ist í fyrsta sinn í und­an­úr­slit HM. Þetta upp­tæki Uruguay-manns­ins vakti tak­mark­aða lukku og enn síður gríð­ar­legur fögn­uður hans á hlið­ar­lín­unni þegar Uruguay vann víta­spyrnu­keppn­ina sem fylgdi í kjöl­farið.

Ein­hverjir hafa reynt að halda uppi vörnum fyrir Suárez og bent á að vit­an­lega sé gáfu­legra að stöðva bolta með hendi en að horfa á eftir honum í netið á síð­ustu mín­út­unni en sú skoðun hefur ein­hverra hluta vegna orðið undir í umræð­unni enda Suárez langt frá því að vera ást­sæl­asti leik­maður heims­fót­bolt­ans. Í loka­leik rið­ils­ins á HM í Brasilíu 2014 tók Suárez svo upp á því að bíta Giorgio Chiellini, varn­ar­mann Ítala, í öxl­ina eftir barn­ing í teignum og greip svo klaufa­lega um tenn­urnar til að láta líta út fyrir að hann hefði óvart dottið á hann. Suárez tókst að blekkja dóm­ar­ann en ekki sjón­varps­mynda­vél­arnar og var í kjöl­farið dæmdur í langt bann, enda var þetta í þriðja sinn sem hann smjatt­aði á lík­ama and­stæð­ings í miðjum leik.

Hverju skyldi Luis Suárez taka upp á í Rúss­landi í sumar?

3. Gallaður snillingur

Það má færa rök fyrir því að goð­sögnin Diego Armando Maradona hafi leikið skúrk­inn á einn eða annan hátt í öllum fjórum heims­meist­ara­mót­unum sem hann tók þátt í, en sumum þó meira en öðrum. Í fyrstu keppn­inni á Spáni árið 1982 varð nýst­irnið pirrað á sífelldum spörkum and­stæð­inga sinna og lét að end­ingu reka sig út af fyrir hefnd­ar­brot í loka­leik Argent­ínu­manna, þar sem liðið féll úr leik gegn Brasilíu. Í Mexíkó árið 1986 spil­aði hann eins og eng­ill og tryggði þjóð sinni heims­meist­ara­tit­il­inn nán­ast einn síns liðs, en tókst þó að slá fölva á feg­urð­ina með því að skora mark með hendi gegn Eng­lend­ingum í 8-liða úrslitum. „Markið var skorað með örlitlu af höfði Maradona og örlitlu af hendi guðs,“ sagði Maradona og við­hélt þeirri sögu­skoðun langt fram á næstu öld.

Hann þótti langt frá sínu besta á Ítalíu árið 1990 og klúðr­aði meðal ann­ars víti í 8-liða úrslitum en Argent­ínu­menn komust þó alla leið í úrslita­leik­inn þar sem þeir biðu lægri hlut gegn Vestur-Þjóð­verjum. Í síð­asta mót­inu sínu í Banda­ríkj­unum árið 1994 féll Maradona svo á lyfja­prófi og var sendur heim með skít og skömm eftir aðeins tvo leiki og argent­ínska liðið beið þess ekki bætur.

4. Skelkur í bringu

Sjaldan eða aldrei hefur leik­manni tek­ist að skaða orð­spor sitt eins harka­lega og Zinedine Zidane (Frakk­landi) í úrslita­leik HM 2006 í Þýska­landi gegn Ítölum. Þetta var síð­asti leikur goðs­ins á ferl­inum og allt stefndi í sann­kall­aðan ævin­týra­endi fram á síð­ustu mín­útu fram­leng­ingar, þegar Zidane brást skyndi­lega ókvæða við móðg­un­ar­yrðum varn­ar­manns­ins Marcos Materazzi um systur hins fyrr­nefnda og keyrði stíf­bón­aðan skall­ann af miklu afli í bringu hans. Ítalinn datt niður sem dauður væri, Zidane fékk rautt spjald og Ítalir unnu víta­spyrnu­keppn­ina sem fylgdi í kjöl­farið. Þessi frá­bæri leik­maður hefði getað lokið ferl­inum með því að lyfta stærsta bik­arnum af þeim öllum en er þess í stað frekar minnst vegna ein­hvers sem hann gerði með höfð­inu en fót­unum.

5. Hætta ber leik þá hæst hann stendur

Rivaldo Vítor Borba Ferreira, frá Brasilíu, ​var tals­vert betri fót­bolta­maður en leik­ari. Það kom ber­sýni­lega í ljós undir lok leik Brasilíu og Tyrk­lands í riðla­keppn­inni á HM í Japan og Suður-Kóreu árið 2002, þegar hann bjó sig undir að taka horn­spyrnu og Tyrkinn Hakan Ünsal spark­aði til hans bolt­anum, nokkuð fast en ekki svo fast að nokkrum full­frískum manni í feikna­formi yrði meint af að fá hann í sig. Rivaldo fékk bolt­ann í lærið en greip umsvifa­laust um and­litið, henti sér niður og rúll­aði sér um völl­inn með kómískan ang­ist­ar­svip á and­lit­inu. Dómarinn lét blekkj­ast á ein­hvern ótrú­legan hátt og rak Ünsal af velli, en Rivaldo hefur æ síðan verið minnst sem svindl­ara.

Fleiri tilkallaðir:

Patrice Evra.

Patrice Evra, Frakk­landi
Fyr­ir­lið­inn leiddi upp­reisn leik­manna gegn þjálf­ara franska lands­liðs­ins á HM í Suður-Afríku árið 2010 sem gerði alla við­kom­andi að fíflum.

Antonio Rattín, Argent­ínu
Fyr­ir­liði Argent­ínu­manna lét reka sig út af fyrir kjaft­brúk í leik gegn gest­gjöfum Eng­lend­inga á HM 1966, neit­aði að yfir­gefa völl­inn þar til í lengstu lög, stóð á rauða tepp­inu sem var ein­ungis ætlað drottn­ing­unni og þurrk­aði sér loks um hend­urnar með breska fán­anum á leið­inni út af.

Frank Rijkaard, Hollandi
Hrækti í hárið á þýska fram­herj­anum Rudi Völler á HM á Ítalíu 1990 og aftur þegar hann var rek­inn út af fyrir vikið. Var upp­nefndur „Lama­dýrið“ af þýskum fjöl­miðlum.

Roy Keane.

Roy Keane, Írlandi
Var svo pirr­aður vegna slæmra æfinga­að­stæðna írska lands­liðs­ins á HM í Japan og Suður-Kóreu 2002 að hann gagn­rýndi þjálf­ar­ann stans­laust þar til hann var rek­inn úr hópnum og sendur heim áður en liðið hafði spilað sinn fyrsta leik.

Juan Camilo Zúñiga, Kólumbíu
Dúndraði með hnénu í bakið á hetju heima­manna, Neymar, í 8-liða úrslitum á HM í Brasilíu 2014 með þeim afleið­ingum að gull­dreng­ur­inn lék ekki meira á mót­inu. Í næsta leik biðu Neymar-lausir gest­gjaf­arnir afhroð, 7-1, gegn verð­andi heims­meist­urum Þjóð­verja.

Krist­jana.

Kristjana Arnarsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, nefnir Diego Simeone, Argentínu:

„Maðurinn sem gerði David Beckham að hatað­asta manni Englands á HM í Frakk­landi sum­arið 1998. Beckham, sem var algjört átrún­að­ar­goð hjá mér (já, ég fékk mér tölvu­póst­fangið [email protected]) fékk rautt spjald í leiknum gegn Argent­ínu í 16-liða úrslitum þegar hann spark­aði, lauf­létt, aftan í Simeone. Þeim argent­ínska tókst að ýkja við­brögðin svo mikið og láta þar með reka helstu von­ar­stjörnu Eng­lend­inga af velli. Leik­ur­inn fór í víta­spyrnu­keppni og þar tap­aði England fyrir Argent­ínu.“

Örn Úlfar.

Örn Úlfar Sævarsson, hugmyndasmiður á ENNEMM, nefnir Roberto Baggio, Ítalíu:

„Árið 1994 byrj­aði ég aftur að hafa áhuga fót­bolta og HM í Banda­ríkj­unum var eig­in­lega fyrsta mótið sem ég fylgd­ist með af athygli. Roberto Baggio var allt í öllu fyrir Ítalíu og kom þeim í úrslita­leik­inn en fyrir kald­hæðni örlag­anna er hans einkum minnst fyrir víta­spyrnu­klúðrið sem færði Bras­il­íu­mönnum tit­il­inn. Og fyrir glæp­sam­lega hár­greiðslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi