Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fullkomin hjólaborg

Hadda Hreið­ars­dóttir segir frá upp­á­halds­stöðum sínum í Barcelona.

Fullkomin hjólaborg
Hadda Hreið­ars­dóttir, verk­efna­stjóri hjá 1xINTER­NET, hefur búið í Barcelona í þrjú ára ásamt sam­býl­i­manni sínum, Adam, og börn­unum, Hreiðari Nóa, Unu Barböru og Benjamín.

Hadda Hreið­ars­dóttir, verk­efna­stjóri hjá 1xINTER­NET, hefur búið í Barcelona í nokkurn tíma ásamt sam­býl­i­manni sínum, Adam, og börn­unum, Hreiðari Nóa, Unu Barböru og Benjamín. Hún flutti þangað á sínum tíma til að fara í masters­nám og gat svo ekki hugsað sér að fara frá borg­inni. Við fengum hana til að segja okkur frá upp­á­halds­stöðum sínum í Barcelona.

„Barcelona er hin full­komna hjóla­borg, alltaf gott veður, aldrei vindur og hægt að sjá margt án þess að fara erf­iðar brekkur. Það er mjög auð­velt að leigja hjól og um alla borg eru hjóla­stígar sem auð­velda manni hjóla­lífið. Það er dásam­legt að hjóla með fram strönd­inni, um Barceloneta-hverfið eða El Born þar sem má stoppa í einn drykk og tapas, í gegnum Parc Cituadella þar sem má leggj­ast niður í sól­inni og hvíla sig. Þaðan inn í got­neska hverfið fram hjá dóm­kirkj­unni, yfir í Raval-hverfið og enda svo kannski dag­inn á litlum veit­inga­stað við strönd­ina. Það besta við Barcelona er að hún er svo lítil að þetta má gera allt fyrir hádegi.“

„Gotneska hverfið er hverfið mitt og sá hluti borg­ar­innar sem má ekki missa af. Litlar, þröngar götur, kaffi­hús, pöbbar, ávaxta­búðir, gall­erí og litlar krútt­legar hönn­un­ar­búðir.“

Njóta þess að vill­ast
„Gotneska hverfið er hverfið mitt og sá hluti borg­ar­innar sem má ekki missa af. Litlar, þröngar götur, kaffi­hús, pöbbar, ávaxta­búðir, gall­erí og litlar krútt­legar hönn­un­ar­búðir. Lítið er um umferð og því full­kom­inn staður til að labba um og njóta hvort sem það er að sum­ar­lagi eða fyrir jólin. Barcelona er nefni­lega ynd­is­leg jóla­borg, þrátt fyrir snjó­leysið. Þarna má hæg­lega njóta þessa að vill­ast.“

Mat­ar­upp­lifun í myrkri
„Dans le noir er veit­inga­staður þar sem maður borðar í algeru myrkri sem er ótrú­leg upp­lifun. Þjón­arnir á staðnum eru allir blindir. Þriggja rétta mál­tíð með víni bragðst tölu­vert öðru­vísi þegar maður sér ekki handa sinna skil.“

El Drac, eða drek­inn, hið fræga verk lista­manns­ins Gaudi.

Flottar sýn­ingar
„MACBA er nýlista­safn Barcelona í Raval-hverf­inu. Þar eru alltaf flottar sýn­ingar sem er gaman að sjá. Svæðið er líka ótrú­lega skemmti­legt með stórum torgum þar sem hægt er að sitja og fá sér drykk meðan krakk­arnir leika sér og ekki síst fylgj­ast með hjóla­brettagaur­unum í Barcelona sem eru fjöl­margir, þarna koma þeir bestu saman og „skeita“ frá morgni til kvölds.“

Hörðustu kjöt­ætur fá í hnén
„Get ekki sleppt því að minn­ast á upp­á­haldsveit­inga­stað­inn minn. Teresa Carles er frá­bær græn­met­is­staður sem lætur hörð­ustu kjöt­ætur fá í hnén. Það er allt gott á mat­seðl­inum. Glas af líf­rænu rauð­víni kostar þarna 300 krónur íslenskar og kata­lónska osta­tertan er skylda í hvert sinn sem þessi staður er heim­sóttur.“

MACBA er nýlista­safn Barcelona í Raval-hverf­inu. Þar eru alltaf flottar sýn­ingar sem er gaman að sjá að sögn Höddu.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina