Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hinn eftirsóknarverði ljómi

Það þarf að huga vel að húð­inni.

Hinn eftirsóknarverði ljómi

Í dag­legu tali er oft talað um að geisla af heil­brigði svo það er ekki skrítið að snyrti­vörur sem lofa auknum ljóma séu gríð­ar­lega vin­sælar. Þótt fal­legur farði og ljómapúður geti vissu­lega aukið ljó­mann á yfir­borð­inu þarf líka að huga vel að húð­inni til að tryggja að hann komi að innan.

Huga að mataræðinu

Mik­il­vægt er að drekka nóg af vatni til að halda raka í húð­inni og borða lit­ríkt græn­meti sem inni­heldur andox­un­ar­efni og lækkar ph-gildi lík­am­ans.

Það er því miður svo að kaffi og áfengir drykkir eru vatns­los­andi og mikil neysla þeirra getur valdið þurrki í húð.

Eins getur óhóf­leg neysla sykraðra mat­væla með tím­anum brotið niður kollagen og ela­stín í húð­inni sem veldur því að hún verður slapp­ari og líf­laus­ari. Það er þó ekki þar með sagt að maður verði að neita sér um allt heldur bara að gæta hófs.

Til mót­vægis við þetta óholla er mik­il­vægt að drekka nóg af vatni til að halda raka í húð­inni og borða lit­ríkt græn­meti sem inni­heldur andox­un­ar­efni og lækkar ph-gildi lík­am­ans, það getur aukið ljóma húð­ar­innar.

Hreinsa burt dauðar húðfrumur

Alpha hydroxy-sýrur eru líf­rænar sýrur sem skipt­ast í ávaxta- og mjólk­ur­sýrur. Þær eru vatns­leys­an­legar og vinna ein­göngu á efsta lagi húð­ar­innar við að hreinsa burtu dauðar húð­frumur. Með því að nota and­lits­vatn með ein­hvers konar sýru má þannig koma í veg fyrir upp­söfnun á dauðum húð­frumum og við­halda ljóma.

… Eins getur óhóf­leg neysla sykraðra mat­væla með tím­anum brotið niður kollagen og ela­stín í húð­inni sem veldur því að hún verður slapp­ari …

Ensím

Eitt af vin­sæl­ustu íðorðum í snyrti­vöru­brans­anum er án efa ensím. Þau hraða efna­skiptum í húð­inni og eru aðal­lega notuð til að djúp­hreinsa húð­ina eða draga úr bólgum. Þau ensím sem eru notuð til að brjóta niður dauðar húð­frumur á yfir­borð­inu og hraða end­ur­nýjun húðar koma úr ávöxtum, oft­ast papaya, ananas eða blá­berjum. Ensímin eru mild­ari en sýrur og henta því betur fyrir við­kvæmar húð­gerðir og þau er yfir­leitt að finna í and­lits­möskum.

Notið réttu innihaldsefnin

Retinól er mjög algengt í snyrti­vörum og á að sporna gegn öldrun húð­ar­innar en konur á öllum aldri geta notið góðs af því að bæta því við húð­um­hirð­una. Það hvetur nefni­lega húð­ina til þess að end­ur­nýja sig hraðar og jafn­framt fram­leiða meira af hyaluronic-sýru og kolla­geni. Þannig eykur það þéttni húð­ar­innar, dregur úr hrukkum og öðrum öldr­un­ar­merkjum og eykur ljóma hennar.

Þau ensím sem eru notuð til að brjóta niður dauðar húð­frumur á yfir­borð­inu og hraða end­ur­nýjun húðar koma úr ávöxtum, oft­ast papaya, ananas eða blá­berjum.

Einn helsti kostur C-vítamíns er hversu öfl­ugt það er í að jafna lit­ar­haft húðar og lýsa upp dökka húð­bletti, hvort sem þeir eru til­komnir vegna öldr­unar eða bólu­öra. Þetta magn­aða vítamín hefur jafn­framt róandi áhrif og getur dregið úr roða og bólgum í húð. Það hefur einnig end­ur­nýj­andi áhrif á húð­ina í heild þannig að hún sýn­ist hraust­ari og með meiri ljóma.

Í húð­inni myndar keramíð hálf­gerðan varn­ar­hjúp utan um frumur í efri lögum húð­ar­innar. Ýmis utan­að­kom­andi áhrif, svo sem veður og vindar eða sápur og hreinsi­efni, geta strípað húð­ina og raskað nátt­úru­legri fitu­fram­leiðslu hennar og þegar hún verður þurr safn­ast dauðar húð­frumur fyrir á yfir­borð­inu. Keramíði í snyrti­vörum er ætlað að fylla á forða húð­ar­innar, veita henni þar með raka og styrkja varn­ar­kerfi hennar.

Höfundur / Hildur Frið­riks­dóttir
Myndir / www.pexels.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina