Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Sjö spennandi gönguleiðir í heiminum

Víða um heim má finna staði með spenn­andi göngu­leiðum.

Sjö spennandi gönguleiðir í heiminum

Vin­sældir ýmis­konar göngu­ferða hafa auk­ist mjög á und­an­förnum árum og víða um heim má finna staði með spenn­andi göngu­leiðum sem skarta glæsi­legu útsýni og ýmsu sem gerir þær sér­stakar á einn eða annan hátt.

Zion Narrows er mögnuð göngu­leið sem skartar töfr­andi lands­lagi sem liggur í gegnum þröng gljúfur úr lit­ríkum, eins kíló­metra háum sand­veggjum.

Zion Narrows í Utah-ríki, Bandaríkjunum

Zion Narrows er mögnuð göngu­leið sem skartar töfr­andi lands­lagi sem liggur í gegnum þröng gljúfur úr lit­ríkum, eins kíló­metra háum sand­veggjum.

Á hinum fræga hluta leið­ar­innar sem nefn­ist Wall Street verða gljúfrin ekki nema sex metrar að breidd að ofan. Ríflega helm­ing leið­ar­innar þarf að ganga upp með á sem lið­ast fal­lega í gegnum gljúfrin.

Úr veggjum gljúfr­anna hanga runnar, vatn kemur úr sprungum, þarna eru breiður af mosa, fossar og há tré.

Rétt er að taka fram að það getur verið mjög hættu­legt að fara þessa leið því fljót geta komið snögg­lega og árlega deyja göngugarpar á leið­inni. Því þarf að vera með veð­ur­spána á hreinu áður en farið er, og vera viss um að alls engin rign­ing sé í kort­unum.

Með nauð­syn­legum var­úð­ar­ráð­stöf­unum er þessi göngu­leið ein sú allra flottasta í Banda­ríkj­unum og sann­ar­lega engu lík.

Tongariro-gönguleiðin á Nýja-Sjálandi

Lands­lagið á Nýja-Sjálandi er sér­stak­lega fal­legt og því ekki að undra að ein flottasta göngu­leið í heimi sé á norð­ur­eyju lands­ins. Hægt er að taka frá einum og upp í þrjá daga í göng­una.

Leiðin sem er um 35 kíló­metra löng liggur í gegnum eld­fjalla­svæði og eyði­merkur sem líkj­ast einna helst öðrum hnöttum og fal­legir fjallstindar gnæfa yfir.

Göngu­fólk mun sjá virka eld­fjallið Ngaurube eða Doom eins og það hét í Lord of the Rings. Einnig sjóð­andi leirkatla, gíga og hraun …

Göngu­fólk mun sjá virka eld­fjallið Ngaurube eða Doom eins og það hét í kvik­mynd­inni Lord of the Rings. Einnig sjóð­andi leirkatla, gíga, hraun og hin glæsi­legu Emerald-vötn.

Ferða­lagið er ekki síst skemmti­legt eftir að fer að dimma en þá er hægt að koma sér fyrir í þægi­legum fjalla­kofum sem eru með fínum rúmum, gas­hit­urum og -elda­vélum, renn­andi vatni og kló­settum. Ferða­langar geta svo auð­veld­lega lagt lykkju á leið sína og gengið á topp fjall­anna Tong­ariro og Ngauru­hoe.

Lands­lagið á Nýja-Sjálandi er sér­stak­lega fal­legt. Mynd / www.pexels.com

West Coast í Bresku Kólumbíu, Kanada

Þá sem langar í óvenju­lega göngu í gegnum óspillta kanadíska nátt­úru, upp­lifa tempraða skóga, harð­gerðar strand­lengjur og stór­kost­lega fjallstinda, þá er West Coast-göngu­leiðin málið. Göngu­fólk mun vakna í tindr­andi sól­ar­upp­rás, njóta ótrú­legs sól­ar­lags, klöngr­ast yfir stóra steina og trjá­boli, yfir læki og ár, fram hjá fossum, upp­lifa hve ótrú­lega lítil mann­skepnan er í kringum risa­stór tré í eld­gömlum skógi. Einnig gæti fólk séð hvali, sæljón, minka og kannski einnig birni og úlfa, svo ekki sé minnst á skips­flök og aðrar minjar. Erfitt getur verið að kom­ast að í þessa ein­stöku göngu og stundum er hægt að lenda í slæmu veðri, jafn­vel á sumrin. Engin ganga í Norður-Ameríku býður upp á jafn­fjöl­breytt lands­lag og er sann­ar­lega þessi virði að fara hana.

West Coast-göngu­leiðin er málið fyrir þá sem langar í óvenju­lega göngu í gegnum óspillta kanadíska nátt­úru.

Torres del Paine-gönguleiðin í Chile

Þeir sem eru að leita að stór­kost­legu Alpa­fjalla­lands­lagi, jöklum, jök­ul­vötnum, skörpum fjallstindum, ein­stöku dýra­lífi og mögu­leik­anum á því að sjá hina töfr­andi granítt­inda Towers of Paine, ættu að fara í þessa vin­sælu 100 kíló­mera löngu göngu­leið í Pata­gonia-fjöll­unum í Chile. Stað­ur­inn hefur verið útnefndur einn 50 staða sem fólk ætti að heim­sækja á lífs­leið­inni, af tíma­rit­inu National Geographic. Þessi dásam­lega göngu­leið liggur um Magellenic-skóg­inn, forug fen, klettótt gil og yfir óstöðugar brýr. Þótt svæðið sé heill­andi frá upp­hafi til enda þarf að hafa í huga að þar geta veður orðið válynd. Því getur bak­pok­inn orðið ansi þungur með öllu sem á þarf að halda til að halda á sér hita. Hægt er að lenda í byl og því gæti hluti leið­ar­innar lok­ast. En slæmt veð­ur­far veldur því að leiðin er ekki fjöl­farin og því mun ferða­löngum finn­ast þeir hafa unnið enn stór­kost­legra afrek ef þeir ganga þessa leið.

Þeir sem eru að leita að mögu­leik­anum á því að sjá hina töfr­andi granítt­inda Towers of Paine, ættu að fara í þessa vin­sælu 100 kíló­mera löngu göngu­leið í Pata­gonia-fjöll­unum í Chile.

Annapurna-gönguleiðin í Nepal

Marga göngugarpa dreymir um að fara til Nepal til að kom­ast í tæri við eina glæsi­leg­ustu fjalla­sýn í heimi. Þessi göngu­leið í Annap­urna býður ekki aðeins upp á snævi þakta fjallstinda, heldur einnig fjöl­breytta nátt­úru og menn­ingu. Gangan sem liggur frá suð­rænu lands­lagi að hæstu fjöllum í heimi tekur um þrjár vikur og á leið­inni er hægt að gista í þægi­legum skálum. Varast þarf háfjalla­veiki en mögu­leiki er á henni þegar komið er í meira en fimm kíló­metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Á leið­inni hitta ferða­langar Tíbeta sem búa í fjöll­unum, sjá búdda­hof, geta heim­sótt tehús, baðað sig í heitum lindum og njóta eins fal­leg­asta útsýnis í heim­inum.

Marga göngugarpa dreymir um að fara til Nepal til að kom­ast í tæri við eina glæsi­leg­ustu fjalla­sýn í heimi.

Kilimanjaro í Tanzaníu

Þá sem langar að príla upp á veru­lega hátt fjall en ekki fara í brjál­æð­is­lega tækni­lega, hættu­lega og bratta göngu þá er ferð á Kilimanjaro frá­bær kostur. Fjallið er 5,895 metra hátt og oft sagt að það sé hæsta fjall í heimi sem hægt er að ganga á án þess að þurfa tækni­lega kunn­áttu í klifri og útbún­aði. Það er ekki þar með sagt að gangan sé auð­veld því hún er lík­am­lega krefj­andi og árlega deyja nokkrir úr háfjalla­veiki á þess­ari leið. Nokkrar leiðir eru á topp þessa hæsta frístand­andi fjalls heims og hæsta tinds Afríku. Gangan hefst við mið­baug og farið er í gegnum allar loft­lags­teg­undir í þessa sex daga og fimm nætur sem gangan tekur. Byrjað er í heitu gras­lendi, síðan farið í gegnum tempraða skóga og jök­ul­fyllta dali að ísköldum tind­inum.

Kilimanjaro í Tanzaníu.

Kalalau á Hawaii

Kalalau á Hawaii er ein glæsi­leg­asta göngu­leið í heimi. Klettarnir liggja gróðri vaxnir niður í sæblátt Kyrra­hafið. Þar eru ævin­týra­lega full­komnir fossar sem falla niður í suð­ræna dali og öld­urnar skella með dramat­ískum hætti á klettana. Í haf­inu má sjá stökkvandi höfr­unga og hnúfu­baka og sjáv­ar­skjald­bökur við strönd­ina. Stíg­ur­inn er 17 kíló­metra langur og þar sem hann liggur er um 1.000 metra hátt fall niður í sjó. Farið er yfir fimm stóra dali og fleiri litla. Fyrir mjög þjálf­aða göngu­menn tekur ferðin einn dag en tvö fyrir marga aðra sem tjalda á leið­inni. Stíg­ur­inn var fyrst byggður seint á nítj­ándu öld og end­ur­byggður árið 1960. Hann er nán­ast aldrei alveg flatur og á sumum stöðum liggur hann frekar nálægt hengiflugi, nokkur hund­ruð metra háu, beint niður í sjó.

Kalalau á Hawaii er ein glæsi­leg­asta göngu­leið í heimi.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina