Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fundu réttu fötin í Ástralíu

Berglind Berndsen og Anna Margrét Krist­jáns­dóttir reka barna­fata­verslun á Netinu.

Fundu réttu fötin í Ástralíu

Þegar íslenskar vin­konur eru í fæð­ing­ar­or­lofi saman er ekki hægt að búast við að þær sinni ein­göngu börnum og heim­ili. Þær Berglind Berndsen og Anna Margrét Krist­jáns­dóttir ákváðu að stofna barna­fata­verslun á Netinu og bjóða upp á einmitt föt eins og þær lang­aði í á sína stráka.

Þær Berglind Berndsen og Anna Margrét Krist­jáns­dóttir ákváðu að stofna barna­fata­verslun á Netinu.

Hvernig kom það til að þið ákváðuð að fara að flytja fatnað um hálfan hnött­inn? „Instagram!“ segir Berglind ákveðin.

„Instagram leiðir mann í alls­konar áttir og þar á meðal alla leið til Ástralíu. Ástralir eru frama­lega í að hanna stíl­hreinan, líf­rænan og þægi­legan fatnað fyrir börn.

Við erum með þrjú vöru­merki sem öll eru upp­runnin í Eyjaálfu; HUXBABY, Anarkid og Mickey Rose. Við teljum það mik­il­vægt að fötin séu fram­leidd úr umhverf­is­vænum efnum og eru vör­urnar meðal ann­ars GOTS vott­aðar. Við töldum þetta mik­il­vægt atriði þegar við ákváðum að taka inn þessar vörur, fyrir utan hvað þær eru fal­legar.“

„Það sem þessi merki eiga öll sam­eig­in­legt er að þau bjóða upp á fatnað sem er úr líf­rænni bóm­ull og hann­aður í sátt við nátt­úru og fólk.“

Líkt og Berglind nefndi eru þessi vöru­merki leið­andi í sjálf­bærni og umhverf­is­vænni fram­leiðslu í sínu heima­landi og þótt víða væri leitað. Þarna er haft að leið­ar­ljósi að fötin séu þægi­leg, klæði­leg og stíl­hrein. Er eitt­hvað fyrir utan það sem gerir þessi merki sér­stök?

„Það sem þessi merki eiga öll sam­eig­in­legt er að þau bjóða upp á fatnað sem er úr líf­rænni bóm­ull og hann­aður í sátt við nátt­úru og fólk,“ segir Anna Margrét.

„Auk þess eru flík­urnar flestar unisex-hönnun sem okkur þykir mik­ill kostur. Við viljum bjóða upp á föt sem eru end­ing­ar­góð og fal­leg en hefta á sama tíma ekki leik og gleði barn­anna.“

Fóru að velta fyrir sér barnafötum

„Ég á einn son sem er orð­inn fjórtán mán­aða og hug­myndin að stofnun Litla ljóns­ins kvikn­aði þegar hann var þriggja mán­aða,“ bætir Berglind við. „Ég upp­lifði þá að á mark­að­inn vant­aði stíl­hreinan fatnað fyrir barnið mitt sem væri líka þægi­legur fyrir hann.“

„Ég á einnig einn son en minn er nítján mán­aða,“ bætir Anna Margrét við. „Við vorum í fæð­ing­ar­or­lofi á sama tíma og í því fór þetta af stað.“

Þær vin­kon­urnar hitt­ust nefni­lega og fóru að tala um hvers konar fatnað þær vildu klæða börn sín í og hvaða grunn­gildi þeim fynd­ist nauð­syn­legt að hafa í for­grunni við val á fötum. Þegar þær svo rák­ust á þessi áströlsku merki fór bolt­inn að rúlla enda var þar að finna allt sem þær ósk­uðu eftir. Berglind er menntuð í upp­eldis- og mennt­un­ar­fræðum og er á loka­ári í masters-námi í for­eldra­fræðslu og upp­eld­is­ráð­gjöf. Hún starfar sem ráð­gjafi á BUGL með

„Við viljum bjóða upp á föt sem eru end­ing­ar­góð og fal­leg en hefta á sama tíma ekki leik og gleði barn­anna.“

fram nám­inu. Anna Margrét er hins vegar með gráðu í list­fræði og starfar sem versl­un­ar­stjóri hjá LINDEX. Litla ljónið er í senn hugð­ar­efni og auka­starf hjá báðum. Þær vilja styðja þau gildi er standa að baki. En hver eru næstu skref hjá ykkur varð­andi fyr­ir­tækið?
„Eins og staðan er núna erum við og verðum með net­verslun en við erum reglu­lega með opið hús eða Popup,“ segir Berglind. „Við stefnum að því að bæta við okkur vöru­merkjum í kom­andi fram­tíð og von­umst til að stækka með tím­anum og lang­tíma­mark­mið eru að opna verslun.“

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér frekar vöru­merki Litla ljóns­ins geta skoðað síð­urnar, www.litlaljonid.com, Litla ljónið á Facebook og Instagram-síð­una, Litla_ljonid.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina