Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Detox í desember

Í des­em­ber gæti verið snið­ugt að „detoxa“ eða „pretoxa“ áður en jóla­há­tíðin skellur á.

Detox í desember
Það er mik­il­vægt að passa upp á að nóg sé til af ferskum mat, eins og ávöxtum og græn­meti.

Desember er anna­samasti mán­uður árs­ins hjá flestum. Við þurfum ekki aðeins að versla jóla­gjafir, þrífa heim­ilið, skrifa jóla­kort, skreyta og guð má vita hvað heldur er okkur einnig boðið í alls konar aðventu­boð á vinnu­stöðum, til ætt­ingja og vina. Síðan skellur jóla­há­tíðin á og það er sama upp á ten­ingnum þá. Þannig að mán­uð­ur­inn ein­kenn­ist af áti, drykkju, streitu og svefn­leysi. Við höfum oft heyrt talað um detox, eða hreinsun, eftir þetta sukk­tíma­bil en einnig er gáfu­legt að huga að nokk­urs konar „pretoxi“, það er and­legum og lík­am­legum und­ir­bún­ingi, og hér eru nokkur góð ráð.

Matur

Hangi­kjöt, skata, villi­bráð, graf­inn lax og svo mætti lengi telja. Þótt hátíð­ar­matur sé vissu­lega góm­sætur er hann einnig þungur í maga og oftar en ekki fremur saltur. Án þess að þú gerir þér fulla grein fyrir því þá getur hann farið að hafa áhrif á heilsu þína.

Þú getur lítið stjórnað hvað er á boðstólum í þeim veislum og partíum sem þú ferð í. Þess vegna er enn mik­il­væg­ara að passa upp á að ísskáp­ur­inn þinn sé að minnsta kosti vel birgur af alls kyns ferskum mat, eins og græn­meti. Þau fáu kvöld sem þú ert heima hjá þér í aðdrag­anda jól­anna ættir þú að reyna að fá þér salat eða annan léttan mat. Þú munt sofa betur og almennt líða betur þegar þú vaknar dag­inn eftir.
Tak­mark­aðu nammi­átið við nokkra daga því of mik­ill sykur getur valdið ójöfnu orku­stigi, þannig að þú ert annað hvort alltof þreytt eða of ör.

Drykkur

Áfengi er oftar en ekki haft um hönd í kringum hátíð­arnar og þá kannski í meira mæli en gengur og ger­ist aðra mán­uði árs­ins. Það er mik­il­vægt að reyna að gæta hófs og jafn­framt vanda valið. Reyndu að drekka sem minnst af sykruðum drykkjum og drekktu alltaf eitt vatns­glas á móti hverjum drykk svo þú verðir ekki fyrir vökva­tapi.

Gott er að venja sig á að fá sér vatns­los­andi drykk, eins og sítrónu­vatn, á morgn­ana.

Hátíð­ar­matur er eins og áður sagði fremur saltur og reyktur sem þýðir að okkur hættir til að binda meira vatn í lík­am­anum. Þannig að þegar þú hættir einn morgun að passa í bux­urnar þínar þá er það ekki endi­lega vegna þess að þú sért búin að fitna heldur getur það ein­fald­lega verið bjúgur. Því er gott að venja sig á að drekka nóg af vatni og fá sér vatns­los­andi drykk, eins og sítrónu­vatn, á morgn­ana.
Eins og áður sagði er mat­ur­inn í þessum mán­uði ekki mjög fjöl­breyttur. Til að auka vítamín- og stein­efna­neyslu þína er gott að fá sér „smoothie“ á morgn­ana með nóg af ferskum eða frosnum ávöxtum, kókos­vatni, chia-fræjum, avókadó og spínati eða grænkáli. Þannig færðu góðan kraft og nær­ingu fyrir dag­inn og þú getur tjút­tað fram eftir nóttu ef þannig liggur á þér.

Reyndu líka eftir bestu getu að skipta kaff­inu út fyrir te því það hefur alla jafna mun meira magn andox­un­ar­efna ásamt því að inni­halda jurtir sem geta hjálpað til við að jafna melt­ingu, styrkja ónæm­is­kerfið, gefa orku og ein­beitn­ingu og svo fram­vegis.

Hvíld

Það er alveg bókað mál að þú færð ekki nægan svefn í des­em­ber, hvort sem þú ert að djamma á jóla­hlað­borðum eða sveitt að versla jóla­gjafir á mið­næt­uropnun í versl­unum. Þess vegna verður að grípa gæs­ina þegar hún gefst og fara snemma að sofa og tryggja gæði svefns­ins. Skiptu reglu­lega um á rúm­inu, því fátt hjálpar manni að sofna eins og tand­ur­hrein og ilm­andi sæng­ur­föt. Það þekkja flestir að lavender er mjög róandi og því er snið­ugt að blanda nokkrum dropum af lavander-ilmolíu við vatn og spreyja létt yfir kodd­ann.

Einnig er gott að drekka róandi te á kvöldin til að tryggja að maður sofni snemma. Það er hægt að fá ýmsar gerðir af tei í versl­unum og mik­il­væg­ast er að það sé koff­ín­laust en síðan eru ýmsar jurtir sem eru svefnauk­andi, eins og kamilla, eða garða­brúða.

Hættu líka í sím­anum og spjald­tölv­unni alla­vega klukku­tíma áður en þú ætlar upp í rúm því bláa ljósið sem slík tæki gefa frá sér hamla melatónín­fram­leiðslu svo það tekur þig lengri tíma að sofna.

Áríðandi er að grípa gæs­ina þegar hún gefst og fara snemma að sofa og tryggja gæði svefns­ins.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir
Myndir / www.pixabay.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina