Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ást við fyrsta bita

Prýði­legir partýréttir eða „dag­inn-eftir-partý-réttir“ úr smiðju Önnu Bjarkar Eðvarðs­dóttur.

Ást við fyrsta bita
Anna Björk Eðvarðs­dóttir töfrar fram hvert lost­ætið á fætur öðru.

Anna Björk Eðvarðs­dóttir lærði fyrst að elda egg í brauði og segir það hafa verið ást við fyrsta bita. Hún segir árs­tíð­irnar ráða því hvaða mat­reiðslu­hefð sé í upp­á­haldi en rétt­irnar sem hún býður les­endum upp á að þessu sinni eru hver öðrum girni­legri.

Hvað starfarðu og hvaða verk­efni fæstu við um þessar mundir? Ég er blogg­ari, sjálf­boða­liði, eig­in­kona, mamma og amma. Það sem ég hef verið að dunda mér við und­an­farið er að gera upp 34 feta seglskútu sem við Guðjón eigum. Hún stóð á landi í nokkur ár og þurfti á ást og umhyggju að halda þegar við sjó­settum hana aftur. Við erum að klára það og vonum að við náum að sigla eitt­hvað áður en haust­lægð­irnar hell­ast yfir okkur.

Hvað var það fyrsta sem þú lærðir að elda? Egg í brauði, það er sem sagt brauð­sneið sem miðjan er skoinn úr. Ytra lagið af sneið­inni er steikt á pönnu og egg brotið ofan í hol­una og þegar eggið hefur tekið sig í smá­stund á pönn­unni er miðjan sett ofan á eggið án þess að sprengja rauð­una og svo er sneið­inni snúið við og hún steikt áfram á hinni hlið­inni. Þessi dásemd er svo borin fram með tómatsósu og sinn­epi, til hliðar. Þetta varð ást við fyrsta bita, ást sem varir enn.

Ertu jafn­víg á bakstur og matseld? Mér finnst miklu skemmti­legra að elda en baka. Ég baka ekki mikið af hnall­þórum en ég hef gaman af því að baka brauð og alls­konar bökur. Ég hef ekki lagt mikla rækt við bak­ast­ur­inn. Ég hef alltaf haldið því fram að það sé mömmu að kenna, hún er svo frá­bær bak­ari að ég hef ekki nennt að reyna eins mikið fyrir mér í þeim efnum.

Höfðar ein­hver mat­reiðslu­hefð sér­stak­lega til þín? Nei, alls ekki. Mér finnst það fara eftir árs­tíð­unum hvað höfðar til mín á hverjum tíma. Hvaða hrá­efni er ferskast, veðrið og hita­stigið skiptir máli og svo auð­vitað hvað er til í ísskápnum. Ég er mjög nýtin og þoli ekki að henda mat.

Mér finnst það fara eftir árs­tíð­unum hvað höfðar til mín á hverjum tíma. Hvaða hrá­efni er ferskast, veðrið og hita­stigið skiptir máli og svo auð­vitað hvað er til í ísskápnum. Ég er mjög nýtin og þoli ekki að henda mat.

Verstu mis­tök sem þú hefur gert í eld­hús­inu? Örugg­lega nokkur en ég er með nokkuð gott val­minni á svo­leiðis og sigta það frá og nenni ekki mikið að pæla í því. En ef þú pressar mig þá rámar mig óljóst í fyll­ingu í sítrónu-mar­ens­böku sem vildi ekki láta að stjórn, ójá, oftar en einu sinni.

Hefur þú upp­götvað ein­hverja snilld í matseld nýlega? „Low and slow“, eða hægeld­aður matur. Það er ekk­ert nýtt við það en mikil snilld sem minnir á sig aftur og aftur. Aðferðin gefur hrá­efn­inu tíma svo það njóti sín sem best og maður þarf ekki að standa yfir pott­unum lengi. Þá er t.d. hægt að kaupa ódýr­ari bita af kjöti sem eru oft van­nýttir og útbúa stór­kost­lega veislu. Ég á mér upp­á­halds­með­læti sem eru hægeld­aðir smátómatar í góðri ólífu­olíu með sneiddum hvít­lauk og tímí­ani, dásam­legir.

Hver er stærsta áskorun sem þú hefur mætt í elda­mennsku? Það var eflaust að sjá um veit­ing­arnar í vígslu reið­hall­ar­innar í Mos­fellsbæ hjá Hesta­manna­fé­lag­inu Herði en þá var Guðjón for­maður Harðar. Annars er það þetta venju­lega, eins og hjá flestum, að elda hátíð­ar­mat­inn um jól og ára­mót, að allt lukk­ist sem best. Maturinn er svo stór hluti af upp­lifun­inni á jól­unum, ilm­ur­inn sem læð­ist í gegnum húsið eftir því sem líður á dag­inn kemur með hátíð­ar­stemn­ing­una. Í sumar var skírn­ar­veisla yngri dótt­ur­son­ar­ins heima hjá okkur Guðjóni. Það var hádeg­is­verður fyrir stór­fjöl­skyld­una og vini sem ég naut að elda eins og alltaf þegar maður eldar fyrir þá sem hafa gaman af því að borða góðan mat.

Upp­á­halds­mat­reiðslu­þættir? Þættir sem fara nánar í efnð, eins og hvaðan hrá­efnið kemur, hvernig það er alið eða ræktað. Þættir sem eru um hvernig matur var eld­aður hér áður fyrr. Mér finnst það allt svo for­vitni­legt hvernig farið var að áður en öll nútíma­þæg­indin komu til sög­unnar. Hið blóm­lega bú er t.d. þáttur sem ég naut að horfa á og breskir þættir sem heita Food Unwrapped eru upp­á­halds­þættir. Annars finnst mér alltaf gaman að horfa á mat­reiðslu­þætti.

Blogg­síða: anna­bjork.is.

____________________________________________________________

Cheddar- og parmesanbitar með reyktri papriku og rósmaríni

45 stykki

125 g mjúkt smjör

1 msk. flór­sykur

1 tsk. kummin

1 tsk. reykt papriku­duft

80 g sterkur cheddar-ostur

50 g rif­inn parmesa­nostur

2 tsk. kúm­en­fræ

2 tsk. saxað ferskt rós­mar­ín­lauf

110 g hveiti

50 g maís­mjöl (gróft eins og polenta)

salt á hnífsoddi

 Ofan á kök­urnar

1 egg, þeytt

rós­mar­ín­greinar

gróft sjáv­ar­salt

Ofninn er hit­aður í 160°C á blæstri. Smjör, flór­sykur, kummin og paprika er þeytt létt og ljós. Hrærið svo báða ostana var­lega út í ásamt kúm­eni og rós­mar­íni.

Að lokum er hveiti og maís­mjöli ásamt salti bætt út í og hrært í sam­fellt deig. Deigið er sett á bök­un­ar­pappír og annað lag af pappír lagt ofan á deigið og það er svo flatt út þar á milli með köku­kefli þar til það er eins og 100 kr. pen­ingur. Sett í kæli og kælt. Þegar deigið er til­búið til að baka eru stungnar út kökur sem eru um 5 cm í þver­mál, pensl­aðar með þeyttu eggi og söx­uðu rós­mar­íni og grófu sjáv­ar­salti dreift yfir.

Kökunum er raðar á papp­írs­klædda bök­un­arpötu og þær bak­aðar í 16-17 mín­útur. Hægt er að frysta óbakað deigið.

____________________________________________________________

Fyllt frönsk samloka með saltkaramellu-bananasósu

fyrir 6

12 sneiðar af hvítu sam­loku­brauði

250 g rjómostur, við stofu­hita, í bláu box­unum

125 g mascarpone-ostur, við stofu­hita

½ bolli ristaðar pek­an­hnetur, saxaðar

2 msk. púð­ur­sykur, þjapp­aðar

1 tsk. kanill

½ tsk. salt

6 egg, létt­þeytt

3 bollar mjólk

¼ tsk. salt

Ofninn er hit­aður í 180°C.  Sex brauð­sneiðum er raðað á stóran djúpan disk.  Hrærið saman í skál rjóma­ost, mascarpone, pek­an­hnetur, púð­ur­sykur, kanil og salt. Maukinu er smurt á sneið­arnar og hinar sex sneið­arnar eru lagðar ofan á. Þeytið saman í annarri skál egg, mjólk og salt. Hrærunni er hellt jafnt yfir sneið­arnar svo hún þeki allt yfir­borðið og látin bíða í smá­stund svo þær drekki í sig vökvann. Bök­un­ar­pappír er settur í ofn­skúffu og sam­lok­unum raðað ofan í.  Bakaðar í 1 klukku­stund en snúið á 15 mín­útna fresti svo þær bak­ist jafnt.

Saltkaramellu-bananasósa

¾ bollar dökkur púð­ur­sykur, þétt­pakk­aður

½ bolli rjómi

½ bolli smjör

2 msk. síróp

1 tsk. vanillu­dropar

½ tsk. gróft sjáv­ar­salt

1 ban­ani

Púð­ur­sykur, rjómi, smjör og síróp er hitað í potti á rúm­legum með­al­hita. Suðan er látin koma upp og hit­inn lækk­aður og þetta látið malla í 3-4 mín­útur. Tekið af hit­anum, vanillu og salti bætt út í. Hellt í skál og látið kólna niður í stofu­hita í um klukku­stund. Bananinn er skor­inn í sneiðar og hann hrærður var­lega út í. 

Sósan er borin fram með brauð­inu.

____________________________________________________________

Harissa-lamborgarar með feta og klettasalati

fyrir 2

250 lamba­hakk

½ tsk. kummin

cayanne-pipar eftir smekk (sterkur)

2 msk. harissa-mauk

sjáv­ar­salt og nýmal­aður svartur pipar

60 g feta­ostur

ólífu­olía til að pensla með

2 pítu­brauð

kletta­salat

grísk jógúrt

Hakkinu og krydd­inu ásamt harissa-mauk­inu og salti er hnoðað vel saman. Deiginu er skipt í tvo jafna hluta. Feta­ost­ur­inn er mul­inn í miðj­una á hvorum borg­ara og deig­inu vafið utan um ost­inn og lokað vel. Grillpanna er hituð á með­al­hita, borg­ar­arnir pensl­aðir með olíu og steiktir í 5-6  mín­útur. Pítu­brauðin eru hituð í brauðrist­inni. Þau eru svo fyllt með grískri jógúrt, kletta­sal­ati og lamborg­ara. Þessi borg­ari er frá­bær á úti­grillið.

____________________________________________________________

Pylsur með bjórsoðnum sætum lauk og chili-salsa

fyrir 4

pylsur að eigin vali

brioch-pylsu­brauð

mjúkt smjör

sterkt sinnep

Pyls­urnar eru grill­aðar eða steiktar. Brauðin eru opnuð og þunnu lagi af smjöri er smurt inn í þau og þau grilluð eða ristuð, bara að innan, á þurri pönnu á háum hita. Brauðið smurt að innan með sterku sinn­epi, síðan er pylsa lögð í brauðið ásamt lauk og salsa.

Bjórsoðinn sætur laukur

2 tsk. ólífu­olía

2 tsk. smjör

3 stórir laukar í þunnum sneiðum

1 tsk. kúm­en­fræ

2 msk. dökkur muscavado-sykur eða dökkur púð­ur­sykur

2 hvít­lauks­rif, marin

1 flaska ljós bjór

sjáv­ar­salt og nýmal­aður svartur pipar

Olía og smjör er hitað á pönnu og lauk, kúm­eni og salti er bætt út í og steikt á með­al­hita í u.þ.b. 10 mín­útur og hrært í við og við. Sykrinum er dreift yfir ásamt hvít­lauk og látið mallað áfram þar til lauk­ur­inn fer að kara­melliser­ast. Þá er bjórnum hellt yfir og látið mallað áfram í um 15 mín­útur, eða þar til bjór­inn er gufaður upp og lauk­ur­inn er dökkur á lit­inn. Smakkað til með salti og pipar.

Chili-salsa

2 vor­laukar, í þunnum sneiðum

1 rautt chili, fín­saxað (fræin með ef þú vilt salsað sterkt)

2 msk. söxuð stein­selja

2 tsk. ólífu­olía

Öllu blandað saman í skál.

____________________________________________________________

Rækjur með smjör- og blóðbergsbollubrauði

for­réttur fyrir 4 eða kvöld­veður fyrir 2

20 tígris­rækjur

2 msk. Shriracha Hot Sauce

2 msk. olía

¼ tsk. salt

2 tsk. sykur

5 hvít­lauks­rif, marin

Útbúið mar­iner­ing­una og látið rækj­urnar mar­iner­ast í nokkra tíma. Þær eru svo þræddar á grillpinna en ekki henda mar­iner­ing­unni. Rækj­urnar eru grill­aðar þar til þær eru orðnar bleikar og gegn­steiktar en passið að ofelda þær ekki. Mar­iner­ingin er sett í lít­inn pott og látin malla í nokkrar mín­útur, síðan er henni hellt yfir grill­aðar rækj­urnar.

Smjör- og blóðbergsbollubrauð

2 öskjur til­búið pizzudeig, ekki útrúllað

50 g smjör, brætt

blóð­bergs- eða rós­mar­ín­greinar

1-2 msk. polenta

gróft sjáv­ar­salt

Smyrjið 20 cm laus­botna köku­form að innan með olíu og polentan er hrist innan í form­inu svo hún þeki botn og hliðar. Deiginu er skipt í u.þ.b. 14 jafn­stóra hluta og þeir hnoð­aðir létt í litlar bollur sem er jafnað í formið. Þær þekja ekki botn­inn en fylla vel út í eftir hef­ingu. Mér finnst fínt að láta deigið hef­ast í 1-2 klukku­stundir undir plast­filmu áður en ég baka það. Ofninn er hit­aður í 200°C.  Smjörið er brætt og kælt aðeins, svo er því penslað yfir brauðið. Að lokum er blóð­bergi og grófu salti dreift yfir og brauðið bakað í 30-35 mín­útur. Tekið úr form­inu um leið og það hefur kólnað aðeins og borið fram með rækj­unum og auka smjöri.

Umsjón / Íris Hauks­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina