Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Partí ársins

Nú eru ára­mótin á næsta leiti og þá fara flestir í ein­hvers konar veislu eða partí.

Partí ársins

Það er því við hæfi að skoða nokkrar bestu og fræg­ustu par­tí­myndir allra tíma.

Í kvik­mynd­inni Animal House fer allt úr bönd­unum.

Á æsku­slóðum
Eins og nafnið gefur til kynna fjallar kvik­myndin Sisters um syst­urnar Kate og Mauru Ellis (mynd hér að ofan). Þegar þær kom­ast á snoðir um áform for­eldra sinna um að selja æsku­heim­ili þeirra ákveða þær að halda kveðju­hóf á meðan for­eldr­arnir bregða sér frá. Þetta partí skal toppa öll partí sem áður hafa verið haldin í þessu húsi. Félögum þeirra úr gagn­fræði­skóla er öllum boðið. Þrátt fyrir að meiri­hluti þeirra sé nú orð­inn ráð­settur og með börn kunna þeir enn að djamma. Tina Fey og Amy Poehler, sem leika syst­urnar, eru kómískir snill­ingar. Í mynd­inni fylgj­umst við með kostu­legum und­ir­bún­ingi og auð­vitað veisl­unni sjálfri sem eins og flestir ættu að geta giskað á fer heldur betur úrskeiðis með veru­lega skondnum afleið­ingum.

Tryllt tógap­artí
Animal House (hér til hliðar) ger­ist árið 1962 í Faber-fram­halds­skól­anum. Delta Tau Chi-bræðra­lagið er illa þokkað og hver sem er getur fengið inn­göngu á meðan Omega Theta Pi-bræðra­lagið er ekki opið hverjum sem er og í raun stút­fullt af ríkum, hvítum strákum sem eng­inn þolir nema skóla­stjór­inn. Skóla­stjór­inn leitar til þeirra til að hrekja fyrr­nefnda bræðra­lagið úr skól­anum. Alls kyns belli­brögðum er beitt og skóla­stjór­inn nær vilja sínum næstum fram. Delt­urnar halda risa­stórt tóga-partí með hljóm­sveit og öllu klabb­inu. Ýmist­legt skraut­legt ger­ist í partí­inu, meðal ann­ars sefur einn bræðr­anna hjá eig­in­konu skóla­stjór­ans.

________________________________________________________________

Thomas lætur orðið ganga að öllum sé boðið heim til hans í partí árs­ins – og eng­inn lætur segja sér það tvisvar.

Sögulegt partí
Í Project X á Thomas afmæli og eins og alla unga menn dreymir hann um að halda besta og flottasta afmælispartí sem haldið hefur verið. Til allrar lukku verða for­eldrar hans ekki heima svo Thomas lætur slag standa og fær félaga sína, J.B. og Costa, í lið með sér. Hann lætur orðið ganga að öllum sé boðið heim til hans í partí árs­ins – og eng­inn lætur segja sér það tvisvar. Allir mæta og upp­hefst ein­hver svaka­leg­asta veisla sem sögur fara af. Það skemmir auð­vitað ekki fyrir að Thomas á ríka for­eldra sem búa í stóru húsi með sund­laug og alls konar fín­eríi. Auðvitað reyn­ast nágrann­arnir ekki alveg sáttir við lætin en það bíttar engu.

________________________________________________________________

Lúðarnir í Superbad eyða heilum degi í að kom­ast yfir nægt áfengi fyrir partý.

Þrauta­ganga
Lúðarnir og bestu vin­irnir Evan og Seth í mynd­inni Superbad gera hér um bil hvað sem er til að vinna sér hylli kven­pen­ings­ins. Þegar þeir kom­ast óvænt yfir heim­boð í partí eyða þeir heilum degi, ásamt vini sínum Fogell, í að kom­ast yfir nægt áfengi fyrir partíið. Þeir ætla að deila áfeng­inu með tveimur stelpum, Jules og Beccu, í þeirri von að þeir missi loks­ins svein­dóm­inn og geti farið í fram­halds­skóla eftir við­burða­ríkt sumar. Áætlun þeirra flæk­ist þegar Fogell lendir upp á kant við tvær klaufskar löggur sem hægja á þeim en jafn­framt aðstoða þá um leið. Komast þeir ein­hvern tím­ann í partíið og með nægi­legt áfengi?

________________________________________________________________

Can‘t Hardly Wait ger­ist nær ein­göngu í einu partíi.

Óþreyju­full ung­menni
Can‘t Hardly Wait er klass­ísk par­tí­mynd í þeim skiln­ingi að hún ger­ist nær ein­göngu í einu partíi. Eftir braut­skrán­ingu nem­enda í Hunt­ington Hill-skól­anum er komið að lokap­ar­tí­inu. Þar er sam­an­komin hin skraut­lega nem­enda­flóra sem þrif­ist hefur í skól­anum und­an­farin fjögur ár – nördar, íþróttagarpar, feg­urð­ar­dísir og horn­rekur. Öll eru þau stað­ráðin í að sleppa fram af sér beisl­inu og gera upp þær til­finn­ingar sem legið hafa bældar alla skóla­göng­una, enda ekki seinna vænna áður en þau halda sína leið.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina