Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Blóðugir glæpir og annar hryllingur

Ekki missa af þessum sjón­varps­þáttum.

Blóðugir glæpir og annar hryllingur

Það verður að segj­ast eins og er, það er skemmti­leg­ast að horfa á glæpa­þætti í einum rikk og þurfa ekki að bíða í viku eða meira eftir næsta þætti. Hér eru nokkrir afar spenn­andi þættir sem eru fáan­legir á Netflix.

Rannsókn raðmorð­ingja
Mind­hunter (sjá mynd að ofan) eru nýlegir þættir fram­leiddir af Netflix. Þætt­irnir ger­ast árið 1977 þegar glæpa­sál­fræði var á frum­stigi. FBI-menn­irnir Holden Ford og Bill Tech byrja að skoða morð­ingja sem virð­ast ekki hafa drepið af hefð­bundnum ástæðum, svo sem hefnd eða ástríðu, og hafa jafn­framt myrt fleiri en fimm ein­stak­linga, ýmist í einum rikk eða yfir lengri tíma. Þeir vilja kom­ast að því hvað hvetur þessa menn til að myrða og hvernig megi koma í veg fyrir slíka glæpi. Þætt­irnir eru sann­sögu­legir og við­tölin við morð­ingj­ana eru byggð á upp­runa­legum gögnum Ford og Tech auk þess sem þeir eiga heið­ur­inn af hug­tak­inu raðmorð­ingi.

Lucifer sest að í Los Angeles þar sem hann starfar sem ráð­gjafi hjá LAPD auk þess að reka næt­ur­klúbb­inn Lux.

Djöfull og dauði
Banda­rísku þætt­irnir Lucifer fjalla um satan sjálfan, Lucifer Morn­ings­tar. Honum leið­ist í hel­víti og því ákveður hann að yfir­gefa krúnu sína að halda upp á yfir­borðið. Hann sest að í Los Angeles þar sem hann starfar sem ráð­gjafi hjá LAPD auk þess að reka næt­ur­klúbb­inn Lux. En hvað veit djöf­ull­inn um glæpi – merki­lega mikið að því er virð­ist.

________________________________________________________________

Í þátt­unum Luther kynn­umst við tit­il­per­són­unni John Luther, yfir­manni rann­sókn­ar­deildar lög­regl­unnar í London, sem sér um alvar­lega glæpi.

Skugga­legir glæpir
Bretar kunna svo sann­ar­lega að gera löggu­þætti. Í þátt­unum Luther kynn­umst við tit­il­per­són­unni John Luther, yfir­manni rann­sókn­ar­deildar lög­regl­unnar í London, sem sér um alvar­lega glæpi. Vinnan er númer eitt, tvö og þrjú í lífi Luthers og það bitnar bæði á honum og þeim sem standa honum næst. Vegna þess hve skugga­legir glæp­irnir sem hann rann­sakar eru þá finnst honum stundum sem myrkrið sé að gleypa sig.

________________________________________________________________

Johnny Lee Miller sem Sherlock Holmes og Lucy Liu sem Watson.

Í nýjum bún­ing
Það þekkja flestir einka­spæj­ar­ann Sherlock Holmes, enda hafa fjöl­margar birt­ing­ar­myndir hans komið í sjón­varpi og á hvíta tjald­inu. Elem­ent­ary eru banda­rískir þættir sem setja sög­urnar um Sherlock Holmes, sem Arthur Conan Doyle skrif­aði, í nýjan bún­ing. Þætt­irnir ger­ast í New York, ekki í London, í sam­tím­anum og í þetta skipti er Dr. Watson kona, sem Lucy Liu, leikur. Johnny Lee Miller er einnig frá­bær í hlut­verki Sherlocks og þætt­irnir eru hreint út sagt ávana­bind­andi.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina