Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Útivistarparadísin Hafnarfjörður

Guðni Gíslason, rit­stjóri Fjarð­ar­pósts­ins og inn­an­húss­arki­tekt, segir frá úti­vistar­perlum í Hafn­ar­firði.

Útivistarparadísin Hafnarfjörður

Hafn­ar­fjörður er svo miklu meira en þyrp­ing húsa en þar má finna eitt stór­brotn­asta úti­vista­svæði lands­ins. Guðni Gíslason, rit­stjóri Fjarð­ar­pósts­ins og inn­an­húss­arki­tekt, hefur búið í Hafn­ar­firði síðan 1962 og þekkir bæinn og umhverfi hans vel. Við fengum hann til að segja okkur frá nokkrum perlum á svæð­inu.

Guðni er kvæntur Krist­jönu Þórdísi Ásgeirs­dóttur og þau eiga sex syni og 5 barna­börn. „Við Krist­jana byrj­uðum að búa á brúð­kaups­nótt­inni árið 1978 í gömlu húsi við Suð­ur­götu. Síðan hefur annað ekki komið til greina en að vera hér enda gott að búa í Hafn­ar­firði sem státar af gríð­ar­lega fal­legu bæj­ar­stæði sem er umvafið af sjáv­ar­strönd, fjöl­breyttu hrauni og ótelj­andi nátt­úru­fyr­ir­brigðum og minjum um byggð fyrri alda. Mann­lífið er gott og fjöl­breytt félags­starf og menn­ing­ar­starf­semi. Þrátt fyrir stærð­ina er það eins og að búa í þorpi, í besta skiln­ingi þess orðs, að búa í Hafn­ar­firði.“

Hellis­gerði
Milli Skúla­skeiðs og Reykja­vík­ur­vegar er skrúð­garður Hafn­firð­inga, ein­stakur fyrir hraun­lands­lag sitt. Var farið að nota hann sem áning­ar­stað á 19. öld­inni en hann dregur nafn sitt af Fjarð­ar­helli sem þar er. Form­legur skrúð­garður varð hann árið 1923 og eftir það hófst trjá­rækt þar og síðar blóma­rækt. Þarna eru ákjós­an­legir staðir til að setj­ast á teppi með nesti og njóta þess­arar nátt­úruperlu í hjarta Hafn­ar­fjarðar.

Við Hval­eyr­ar­vatn, Höfða­skógur og Helga­fell í bak­sýn. Mynd / Guðni Gíslason

Malirnar
Mikil útgerð hefur verið í Hafn­ar­firði enda er þar góð höfn frá nátt­úr­unnar hendi. Malirnar er sam­nefni mal­ar­kamba á milli hraun­kletta við norð­an­verðan Hafn­ar­fjörð. Kross­eyri var við gamla hafn­ar­garð­inn en er nú horfin en utar sjást enn Lang­eyramalir við Herj­ólfs­götu og Litlu-Lang­eyr­armalir undan Brúsa­stöðum. Skers­eyr­armalir liggja milli Brúsa­staða og Balaklappar. Frá bíla­stæði innst við Herj­ólfs­götu er skemmti­leg göngu­leið eftir fjöru­kamb­inum. Skarf má sjá á klettum í sjónum og þarna má sjá ummerki eftir útgerð fyrri alda.

Hval­eyr­ar­vatn
Jafnt að vetri sem sumri er umhverfi Hval­eyr­ar­vatns, rétt innan byggðar í Hafn­ar­firði, orðin hrein­asta perla. Á sumrin hóp­ast fólk að vatn­inu á góð­viðr­is­dögum og buslar í vatn­inu, gengur og hjólar á stígum allt umhverfis vatnið og nýtur lífs­ins. Skóg­rækt­ar­fé­lag Hafn­ar­fjarðar hefur ræktað þar mik­inn skóg og lagt stíga og þar má finna svæði með sýn­is­hornum af flestum trjá­teg­undum og einnig er þar að finna nyrsta rósa­garð í heimi. Hafn­firsku skát­arnir eiga skála við vatnið og hafa komið þar upp úti­vistar­para­dís.

Helga­fell
Bæj­ar­fell Hafn­firð­inga er 338 metra hár móbergs­stapi ofan Kald­ársels. Fjallið, sem mynd­að­ist við gos undir jökli seint á ísöld, er vin­sælt til upp­göngu og ágæt­lega mörkuð leið er frá Kald­ár­botnum, upp­tökum kalda vatns Hafn­firð­inga. Á fjall­inu er varða og í henni má finna gesta­bók. Fjöl­margir áhuga­verðir staðir eru nálægt Helga­felli og göngu­ferð í kringum fjallið getur leitt fólk að Litlu-borgum, frið­uðum hraun­mynd­unum S-A fjalls­ins, Valabóli austan Vala­hnjúka og fleiri staða.

Foss­hellir
Fjöl­marga hraun­hella má finna í landi Hafn­ar­fjarðar. Ef gengið er til aust­urs frá bíla­stæð­unum við Kald­ár­botna ofan Kald­ársels, með fram vatns­vernd­ar­girð­ing­unni er komið í Helgadal. Þar er göngu­leið á sléttri hraun­hellu þar til göngu­leiðin snýr til suð­urs. Þar í N-A er komið að jarð­falli. Gengið er niður í jarð­fallið og til vinstri og er þá komið að hraun­foss­inum sem hellir­inn er nefndur eftir. Þarna þarf vasa­ljós og ef haldið er upp foss­inn má sjá hraun­mynd­anir sem minna á jötu og eru ummerki hraun­straums. Þá fer að glitta í ljós og þegar út er komið er horft til baka að göngu­leið­inni. Líkur eru á að Foss­hellir sé hluti 100 m hellis en op inn í hann má finna í hraun­sprungu um 100 m N-V af útgöngu­leið­inni. Skammt þar undan er Rauðs­hellir sem einnig er áhuga­verður.

Gjárnar
Rétt áður en komið er í Kald­ár­sel, þar sem gamli Kald­ársels­veg­ur­inn mætir þeim nýja eru ein­stak­lega fal­legar hraun­mynd­anir sem kall­ast Gjár. Gjárnar eru leifar tæmdrar hrauntjarnar sem mynd­að­ist fyrir u.þ.b. 7000 árum þegar Búr­fells­gosi var að ljúka. Sjóðandi heit hrauneðjan kraum­aði um stund í tjörn­inni áður en hraun­flaum­ur­inn rann eftir neð­an­jarð­ar­rásum í átt til sjávar og tjarn­ar­botn­inn storkn­aði. Gjárnar voru frið­lýstar sem nátt­úru­vætti árið 2009.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Aðalmynd: Guðni við Tröllin í Vala­hnúkum, Helga­fell í bak­grunni. Mynd / Jón Guðnason

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina