Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ekkert lát á endurgerðum

Ekkert lát virð­ist ætla að verða á end­ur­gerðum Hollywood-kvik­myndum á næst­unni. Hér er listi yfir nokkrar sígildar.

Ekkert lát á endurgerðum

Ocean’s Eleven, Twelve, Thirteen og nú Ocean’s Eight!
Í hinni upp­runa­legu Ocean’s 11 mynd mátti sjá hina óvið­jafn­an­legu Rat Pack, Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. í aðal­hlut­verkum og myndin fékk á sínum tíma góðar við­tökur. Sagan segir frá Danny Ocean sem vill fremja stærsta rán sög­unnar og til þess safnar hann saman ell­efu manna úrvalsliði. Þegar ráð­ist var í end­ur­gerð mynd­ar­innar árið 2001 var öllum ljóst að leik­ara­valið þurfti að sam­bæri­legt og það tókst svo sann­ar­lega með George Clooney, Brad Pitt og Matt Damon. Þó að sígilda útgáfan sé alls ekki léleg þá verður að við­ur­kenn­ast að sú nýrri hefur mun meira skemmt­ana­gildi, er bæði fyndn­ari og meira spenn­andi, og verður því yfir­leitt ofan á í sam­an­burð­inum. Nú er von á fjórðu mynd­inni og þar verða skær­ustu kven­stjörnur Hollywood í aðal­hlut­verkum, meðal ann­ars Cate Blanchett, Sandra Bullock og Anne Hathaway.

3:10 to Yuma
Þó svo að sumir ríg­haldi með klass­ísku útgáf­unni af 3:10 to Yuma sem kom út árið 1957 eru flestir á sama máli um að end­ur­gerð James Mangold frá árinu 2007 sé mun betri. Það er einkum vegna þess að tækn­inni hefur fleygt tölu­vert fram á þessum fimm­tíu árum og því er hasar­inn í mynd­inni mun áhrifa­rík­ari og meira spenn­andi, án þess að það sé farið yfir strikið í ein­hverjum tækni­brellum. Aðal­leik­ar­arnir, Russell Crowe og Christian Bale, sýna ótrú­lega takta í hlut­verkum sínum en Bale leikur smá­bónda sem tekur að sér að halda útlaga, Crowe, föngnum á meðan beðið er eftir lest sem mun færa hann fyrir dóm­stóla en Crowe reynir að beita alls kyns brögðum til að sleppa. Þetta er sígildur vestri með mjög skemmti­legum og spenn­andi sögu­þræði.

Freaky Friday
Eflaust eru margir sem ekki vita að hin geysi­vin­sæla Disney-mynd Freaky Friday, með Jamie Lee Curtis og Lindsey Lohan í aðal­hlut­verkum, er í raun end­ur­gerð á mynd sem kom út árið 1977. Myndin fjallar um unga stúlku sem skiptir um lík­ama við móður sína skömmu fyrir brúð­kaup þeirrar síð­ar­nefndu. Eins og áður hefur komið fram þá lék Lindsey Lohan ung­lings­stúlk­una í end­ur­gerð­inni en hún var þá á hátindi frægðar sinnar. Það var þó ekki síðri leik­kona sem fór með sama hlut­verk í upp­runa­legu mynd­inni en það var engin önnur en Jodie Foster.

The Great Gatsby
Til eru tvær kvik­myndir sem hafa verið gerðar eftir hinni sígildu skáld­sögu F. Scott Fitzgerald, The Great Gatsby, og segir frá Nick Carraway sem fer frá mið­vest­ur­ríkjum Banda­ríkj­anna til New York vorið 1922, þegar djass­inn og hið ljúfa líf ræður ríkjum í borg­inni, og dregst fljót­lega inn í heim hinna ofur­ríku, heim sjón­hverf­inga, ásta og svika. Það er erfitt að bera þessar tvær kvik­myndir saman, og nær ómögu­legt færa rök fyrir því að önnur myndin sé betri en hin, því þótt þær segi sömu sögu þá er nálgun þeirra á efn­inu gjör­ó­lík. Sú fyrri, kom út árið 1974 með Robert Redford og Miu Farrow í aðal­hlut­verkum, er hefð­bundn­ari og hóg­vær­ari að öllu leyti en sú seinni. Baz Luhrman end­ur­gerðin sem kom út árið 2013 er aftur á móti algjört augna­konfekt með frá­bærum leik­urum í öllum hlut­verkum og hvert ein­asta augna­blik hefur verið stíliserað út í eitt. Hvorug myndin er galla­laus en þær hafa báðar marga kosti sem vega upp á móti þeim.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina